Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 73

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 73
sakamál 73Helgarblað 19. janúar 2018 Á fyrri tímum var það stundað að setja heilu fjölskyldurnar á sveitina ef yfirvaldi sýndist sem foreldrar væru ekki matvinnungar. Þegar slíkt gerðist var fjölskyldum sundrað tvist og bast og undir hælinn lagt hvers lags vist beið viðkomandi. S lík var staðan hjá Páli Hann- essyni, kvæntum, fjögurra barna föður, þegar hann sagði sig til sveitar vorið 1900 í Kleifahreppi í Vestur-Skaftafellssýslu. Segir að Páll hafi löngum verið upp á kant við sveitar- yfirvöld og gengið brösuglega að sjá sín- um farborða. Sleginn á 20 krónur Á meðal barna Páls Hannesson- ar var Páll Júlíus. Um sjö ára ald- ur, 1901, hafði Páll Júlíus verið „sleginn“ bónda nokkrum í Hörgsdal. Gjaldið var einfalt ómagaeftirlag; 54 krónur. Ári síðar hljóp heldur betur á snærið hjá hreppsnefndarmönn- um þegar þeim barst boð frá Oddi Stígssyni, ungum bónda sem ný- fluttur var í vesturbæinn á tvíbýl- inu Skaftárdal. Tilboðið hljóðaði upp á 20 krónur og skipti engum togum að Páll Júlíus var sleginn Oddi og fór með honum í Skaftár- dal að uppboði loknu. Fjörmikill og glaðsinna Þegar þarna var komið sögu var ungi drengurinn sagður vera búlduleitur, rjóður í kinnum og frekar grannholda. Sagði bóndinn í Hörgsdal að Páll Júlíus hefði í fyrstu verið ógegninn, en með góðu hefði því verið breytt til betri vegar. Hann hefði verið fjörmik- ill, glaðsinna og gáskafenginn, en aldrei svikull, hraustur og ekki frekur til matar. Þannig var sá Páll Júlíus Pálsson sem Oddur í Skaftár dal tekur við og er treyst fyrir árið 1902. Vottorð um gott atlæti Ítrekaðar tilraunir föður Páls til að fá drenginn til sín aftur féllu ekki í góðan jarðveg hjá yfirvaldinu og skrifaði oddviti Kleifahrepps með- al annars að hann væri því algjör- lega mótfallinn að Páll fengi að fara með son sinn frá Skaftárdal. Hann hefði fengið vottorð um að vel færi um drenginn þar og þar vildi hann vera. Það átti eftir að breytast með óhugnanlegum hætti. Tíðindi af andláti Fátt segir af högum Páls Júlí- usar fyrr en sýslumaðurinn í Skaftafellssýslu fær bréf dagsett 27. mars 1903. Inniber bréfið þær upplýsingar að Páll Júlíus sé ekki lengur í lifandi manna tölu. Í kjölfarið kom margt miður geðslegt í ljós um þann aðbún- að sem Páll naut síðustu mánuði sinnar stuttu tilveru. Í stuttu máli lést hann sökum vannæringar og illrar meðferðar hjá Oddi Stígssyni í Skaftárdal. Með eðlilegum hætti framan af Í lengra máli er óhætt að segja að um hreinan hrylling hafi verið að ræða. Í upphafi sumars 1902 og fram á haust má sennilega segja að störf Páls hafi ver- ið með því sniði sem þá tíðkaðist hjá niðursetningum á hans aldri; kúarekstur og heyskaparvinna um sumarið og síð- an hefur hann tekið upp kartöflur ásamt öðru heimilisfólki og hjálpað til í sláturtíð- inni. Síðan gengur vetur í garð og þá þarf að moka undan kúnum, bera mykju út, gefa kúnum og brynna og reka hross til vatns. Að eigin sögn sótti Odd- ur sjálfur vatn í fjós og brynnti klárum þegar veður voru vond. Daufur og upp- burðarlítill Bergur Einarsson, bóndi í austurbæn- um, bar þó að hann hefði iðulega séð Pál litla sinna þeim verkum í frosti, og einnig að Oddur hefði verið nokkuð harður við pilt og verið „garralegur“ í orði. Bergur sagði einnig að Páll hefði hljóðað þegar Oddur lagði á hann hendur fyrir utan bæjardyrnar. Rétt fyrir jólaföstu 1902 dvöldu foreldr- ar Páls, Páll og Pálína Pálsdóttir, í Skaftár- dal og síðar sagði Páll Hannesson að son- ur hans hefði sagt sér að Oddur beitti hann oft hörðu og væri laus höndin. Sonur hans hefði verið afar ólík- ur því sem áður var; yfirkominn af ótta, daufur og uppburða- lítill. Var þessi lýsing staðfest af öðrum vitn- um sem kölluð voru til þegar dauði Páls Júl- íusar var rann- sakaður. Með kolbrand en kvartar aldrei Sagan seg- ir að Oddur hafi hlerað að meðferð hans á Páli litla væri milli tanna á fólki í sveitinni og þann 11. des- ember kom fað- ir Páls í Skaft- árdal og sagði drengurinn þá að Oddur væri ekki eins vondur við hann og fyrr. Einnig var það mat þeirra sem létu sig málið varða að Páll litli liði ekki sult þegar þar var komið sögu. Þremur mánuðum síð- ar fór að síga á ógæfuhliðina hjá Páli litla. Hann var kominn með opin sár á fætur sem vall úr daun- ill vilsa. Ekki var leitað til læknis vegna þessa og sárin stækkuðu og Páll hríðhoraðist. Eftir því var tekið þegar Páll leitaði í austurbæinn að hann átti erfitt með gang, en engum þar var kunnugt um sár- in, enda kvartaði hann aldrei. Berg- ur sagði að þá hefði Páll verið „magur og gauðarlegur“. Gripinn með kæfubita Í mars er á bænum vinnukona, Margrét að nafni. Í hennar vitnisburði kemur fram að oft hafi hún heyrt Pál hljóða og gráta við fjósverkin, en einskis spurt. Margrét sagði hann hafa verið „gauðarlegan“ og hið sama orð notaði fleira fólk sem bar vitni í málinu. Hinn 21. mars, þegar fólk hafði tekið á sig náðir, laum- aðist Páll úr rekkju og staulað- ist í ólæst loft í bænum þar sem hann vissi að kæfa var geymd. Þegar hann sneri til rekkju, með smá kæfubita, greip Oddur hann glóðvolgan. Hafði hann voldugan hrísvönd um hönd, dró Pál út fyrir bæjardyr og lét höggin dynja á baki hans. Næstu nótt rak sulturinn Pál enn og aftur fram úr rúminu í leit að einhverju matarkyns. Um morguninn kemst „þjófnaðurinn“ upp og aftur greip Oddur til hrís- vandarins. Óhugnanlegur vitnisburður Þann 26. mars, 1903, kvaddi Páll Júlíus Pálsson jarðlífið. Hvað sem vitnisburði þeirra sem eftir lifðu líður þá er óhætt að segja að rýr, magur og illa farinn líkami Páls litla hafi verið sannferðugastur. Áverkar sáust á gagnauga, efri vör, bak við eyrun og á bakinu. Líkið var blóðlítið og magurt – svo magurt að telja mátti rifbeinin úr 23 feta fjarlægð – kinnfiskasogið og fitulag með öllu horfið. Greini- leg merki var að sjá um beinkröm, kolbrandur í báðum stórutám inn að beini og neglur lausar. Aðrar tær voru með minni kolbrandssár en bjúgbólga á báðum fótum. Svo mörg voru þau orð. Síðasta för Odds Ekki var talið að hjónin í vestur- bænum í Skaftárdal, Oddur Stígs- son og Margrét Eyjólfsdóttir, hefðu myrt Pál litla af ásetningi. Margrét var sýknuð, en Oddur viðurkenndi að hafa veitt drengnum áðurnefnda áverka auk þess sem hann sinnti ekkert um sárin á fótum hans. Oddur var dæmdur til 12 mánaða betrunarvinnu. Þegar hann, að afplánun lokinni, var á leið heim til sín drukknaði hann í Hólmsá. n Heimildir: Morgunblaðið 28.11.1982; Landsyfirréttardómar 7. árg. 1909 og Wikipedia „Líkið var blóð- lítið og magurt – svo magurt að telja mátti rifbeinin úr 23 feta fjarlægð – kinnfiskasogið og fitulag með öllu horfið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.