Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 43
Brot af því bestaHelgarblað 19. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ Gardínuþvottur sparar fé og er umhverfisvænn Nýja tækNihreiNsuNiN Fólk gerir sér oft ekki grein fyrir því hvað gardínuþvottur getur sparað mikla peninga. Fyrirtæki eru stundum að henda sérsaum- uðum gardínum sem kosta 40.000 krónur stykkið á meðan það kostar aðeins 3.000 krónur að þvo þær svo þær verði alveg eins og nýjar. Þetta er bæði sóun á peningum og plasti,“ segir Íris eiríksdóttir hjá fyrirtækinu Nýja tæknihreinsunin sem sérhæfir sig í gardínuþvotti. Nýja tæknihreinsunin sinnir bæði gardínuþvotti fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. almenningur kemur gjarnan með gardínur í þvott fyrir jólin en verkefni fyrir fyrirtæki og stofnanir eru stærri og reglulegri. Íris segir að gott sé að þvo gardínur á að minnsta kosti tveggja ár fresti: „sólin eyðileggur þetta svo mikið ef ekki er þvegið,“ segir hún. Nýja tæknihreinsunin er með föst verkefni í gardínuþvotti fyrir alþingi, Landspítalann, Össur og fleiri stóra aðila. Notast er við eina stóra vél fyrir verkin, sem er innflutt frá Banda- ríkjunum, en vélin er sérhönnuð fyrir gardínuþvott og gerð úr sérsmíðuðu stáli. Í vélina er síðan sett sérstök náttúruvæn sápa sem hentar fyrir gardínur. „Fyrirtækið hefur starfað í 20 ár en ég og maðurinn minn tókum við rekstrinum af tengdaforeldrum mínum síðastliðinn maí. Við fluttum reksturinn frá selfossi og í kópa- voginn og síðan um verslunar- mannahelgina má segja að þetta hafi sprungið út og verkefnum hefur fjölgað gífurlega,“ segir Íris. „Við höfum líka sérhæft okkur í sótthreinsun á gardínum fyrir myglu. Þannig tókum við fyrir allt Bugl-húsið hjá Landspítalanum í samvinnu við verkfræðistofuna eflu. sambæri- leg verkefni standa nú yfir fyrir aðra aðila.“ Nýja tæknihreinsunin er til húsa að Askalind 4 í Kópavogi. Símanúmer 897-3634. Glæsileg íslensk hönnun frá Gilbert úrsmið js Watch co. reykjaVik Js Watch co. reykjavik úrin eru íslensk frá grunni. Þau eru hönnuð á teikniborði js hér heima á Íslandi. allir íhlutir úrsins eru síðan sérframleiddir eftir þeirra hönnun í mörgum, sérhæfðum verksmiðjum í Þýskalandi og sviss og settir saman hér á landi undir ströngu gæðaeftirliti Gilberts Ó. Guðjónssonar úrsmiðameistara sem nýtir áralanga þekkingu og reynslu sína af úrsmíði til að tryggja að hvert og eitt úr standist ströngustu kröfur. Frá upphafi framleiðslunnar hefur verið leitast við að sameina, glæsilega hönnun, gæði, fyrsta flokks úrverk og falleg armbönd. Vönduð úr eru munaðarvara og fylgihlutir sem bæði karlmenn og konur njóta þess að velja, bera og eiga. en úr er ekki bara skart- gripur. Það er nytjahlutur sem hjálpar okkur að gegna skyldum okkar, halda loforð og skapa góðar minningar. sérstaða úranna á íslenskum markaði ásamt persónulegri þjón- ustu og árangursríku markaðs- og kynningarstarfi hefur leitt til þess að úrin hafa orðið eftirsótt meðal heimsfrægra einstaklinga sem koma til landsins. Meðal þekktra einstak- linga má til gamans nefna Ben stiller, tom cruise, Quentin tarantino, jude Law, Viggo Mortensen, Mads Mikk- elsen, tobey Maguire, Dennis Quaid, elvis costello, ian anderson, yoko ono, sean Lennon, Dalai Lama, katie couric, Vinnie jones og constantine Grikklandskonung. Fágæti úranna ásamt því að vera framleidd í hæsta gæðaflokki er það sem gerir þau eftirsóknarverð, en á skífu allra úranna stendur reykjavík. Það ásamt, vönduðu verki, framleiðslu og sígildu útliti gerir úrin fágæt og einstök. Gilbert úrsmiður hefur lagt sitt af mörkum við að hvetja til bættrar verslunar og þjónustu við ferða- menn efst á Laugaveginum og hefur ásamt fleirum tekið ríkan þátt þátt í að byggja upp verslun í Vitahverfinu. Persónuleg þjónusta og góð vöru- þekking er aðalsmerki verslunarinnar og þjónustustig verslunarinnar er til fyrirmyndar. Viðskiptavinir eiga kost á að hitta framleiðendur, fá að sjá úrsmiði að störfum og koma með ábendingar varðandi samsetningu og útlit þeirra úra sem þeir hyggjast kaupa. Ferðamenn geta óskað eftir einkaheimsókn komist þeir ekki í versl- unina á hefðbundnum opnunartíma og eru þeir þá jafnan sóttir á hótel sitt og ekið til baka að lokinni heimsókn. heildstæð áferð og framúrstefnuleg ásýnd markaðs- og kynningarmála js Watch co. reykjavík hefur vakið athygli bæði innanlands og utan. Úrvalið hefur aldrei verið meira en nánari upplýsingar um úrin og hönnunina má finna á vefsíðunni www.gilbert.is. Gilbert úrsmiður, Laugavegi 62, sími: 551-4100.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.