Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 47
Brot af því bestaHelgarblað 19. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ Gallery Pizza er gamalgróinn veitingastaður í hjarta Hvolsvallar, stofnaður upp úr 1990, af þeim Þorsteini Jónssyni og Ingólfi Ingólfssyni. Núverandi eigendur staðarins, hjónin Sigurður B. Guðmundsson og Jaroon Nuamnui, keyptu reksturinn árið 2012 og hafa kappkostað að halda í þær venjur sem fært hafa staðnum vinsældir í gegnum tíðina, ásamt því að byggja hann upp og þróa áfram. „Hér eru margir fastir viðskiptavinir, t.d. fólk úr sveitinni, og heimamenn eru afskaplega duglegir að stunda þennan stað. Þess vegna hefur verið hægt að hafa hann opinn allt árið um kring í gegnum árin. Erlendir ferða- menn eru síðan mikil viðbót. En fólk kann vel að meta að hér sé haldið í hefðirnar sem sköpuðust fyrstu árin, sem lýsir sér meðal annars í kjör- orðinu „matarmikið og vel útilátið“. Svona í bændastíl,“ segir Sigurður B. Guðmundsson, en Gallery Pizza er þekktur fyrir í senn fjölbreyttan, vel útilátinn og bragðgóðan mat. „En um leið og við höldum í hefðirn- ar þá byggjum við líka upp og mæt- um aukinni aðsókn sem hefur verið undanfarin ár enda mikil uppbygging og gróska í héraðinu sem við njótum góðs af. Til dæmis byggðum við hér huggulega útiaðstöðu sem er mikið notuð á sumrin,“ segir Sigurður. Á Gallery Pizza eru yfir 20 tegund- ir af pizzum í boði. „Síðan velur fólk sér líka oft það sem það vill á sína pizzu og setur hana þannig saman sjálft. En það má nefna til sögunnar þrjár pizzur sem hafa notið gífurlegra vinsælda í gegnum tíðina og heita allar dálítið sérstökum nöfnum. Ein sú frægasta er Hraun – Lava, sem er afskaplega vinsæl, en á henni er pepperóní, sveppir, hvítlaukur, jala- peno, rjómaostur og grænar ólífur. Gallery Djúsí er önnur fræg, hún er með pepperóní, sveppum, lauk, ananas og piparosti. Síðan er hér fornfræg pizza sem heitir Fjallamjólk og er mjög vinsæl í sveitinni. Hún er með pepper óní, ananas, beikoni og chili-kryddi. Sjávarrétta pizzan er líka afar vinsæl,“ segir Sigurður. Pizzurnar á Gallery Pizza hafa sín sérkenni sem finnast ekki annars staðar: „Þetta eru alvöru pizzur. Við gerum allt frá grunni og samkvæmt uppskriftun- um sem voru hér í upphafi. Botninn er milliþykkur og eins og karlarnir segja oft þegar þeir hringja og panta: „Hafðu þetta vel útilátið á köntunum.“ Pizzurnar okkar eru bragðmiklar og matarmiklar og Jaroon handsker allt grænmetið til að ferskleikinn haldi sér sem best.“ Margvíslegir aðrir réttir eru á boðstólum hjá Gallery Pizza, til dæmis kjúklinga salat, sjávarréttasalat, ham- borgarar, lambakótelettur og sub- samlokur. Þá eru fiskréttir vinsælir á staðnum. Í hádeginu á virkum dögum eru alltaf tilboð og en fast hádegis- verðartilboð á föstudögum er pizza- hlaðborð á 1.600 krónur. „Það er líf og fjör í hádeginu hér á föstudögum. Hér hittist margt fólk úr sveitinni, bændur og hestamenn, því hér eru hestabú- garðar í kring. Stemningin er afskap- leg góð. Einnig er vinsælt hjá hópum að hringja, panta sér pizza-hlaðborð og koma hér saman,“ segir Sigurður. Annar eigandinn, Jaroon Nuamnui frá Suk- hothai í Taílandi, sker pizzurnar. Gallery Pizza byggir á gömlum grunni GALLEry PIzzA, HVoLSVEGI 29, HVoLSVELLI Veitingastaðurinn Essensia var opnaður fyrir rétt rúmu ári og er hugarfóstur Hákonar Más Örvarssonar sem vildi opna ekta ítalskan veitingastað í fínni kantinum. Fyrir utan hágæða matreiðslu hefur verið lögð mikil vinna í að hafa um- hverfið sem fallegast og í ósviknum ítölskum anda: „Við fengum til okkar ítalska arkitekta til að hanna staðinn og allar innréttingar og smíði – stólar, borð og barinn, öll ásýnd staðarins er flutt inn frá Ítalíu,“ segir Hákon. Það sama má segja um matseldina, þar á meðal pizzugerðina, þetta er allt ekta ítalskt: „Við gerum pizzur í þessum Napolit- ana-stíl sem fer þannig fram að pizzan er aldrei mikið lengur en eina og hálfa til tvær mínútur í 320°C heitum eldofninum. Það fer hins vegar meiri tími í að undirbúa hana, fletja út deigið og setja ofan á hana. Pizzurnar eru lagaðar aðeins minni en gengur og gerist en hráefnið er það sem gerir gæfumuninn varðandi gæðin.“ Vinsælasta pizzan á Essensia er humarpizzan og hefur hún slegið svo rækilega í gegn að hún er orðin eitt af helstu einkennismerkj- um staðarins: „Við notum ítalska San Marsano-tómata sem eru mikilvægt hráefni í þessum Napolitana-pizzum. Við gerum okkar eigin ricotta-ost og notum einnig mascarpone sem grunn með tómötunum, síðan, að sjálfsögðu, humarinn okkar góða. Við þetta bætist síðan smá chili, hvítlauksolía og sjávar- salt,“ segir Hákon, en aðrar pizzur á matseðlinum eru líka vinsælar og vandað er til verka við gerð þeirra í hvívetna, til dæmis við hina hefð- bundnu Margarita-pizzu, og einnig óvenjulegri pizzur, eins og kartöflupizzu með pancetta- beikoni, rósmaríni og brieosti. Í rauninni er engin sérlöguð pizzasósa á pizzunum okkar heldur notum við San Marsano-tómatana beint og byggjum þetta síðan á deiginu sem er alltaf lagað daglega á staðnum, en þó ekki bakað fyrr en 1–2 dögum síðar; þetta meðal annars er það sem gerir pizzurnar bragðgóðar og einstakar.“ Fyrir utan pizzurnar er matseðillinn á Essensia nokkuð fjölbreyttur. Boðið er upp á afbragðsgóða pastarétti, steikur, fiskrétti og fleira. og sem fyrr segir er umhverfið fallegt og þægilegt. „Þetta er í fínni kantinum, þú situr vel í gæðastólum og það eru tau servíettur á borðum. Útsýnið er að Hörpu og nágrenni og fólk nýtur þess virkilega að slaka hér á yfir góðum mat,“ segir Hákon, en mjög stórir gluggar prýða staðinn og veita frábært útsýni. „Það er mjög vin- sælt að koma hingað áður en farið er í leikhús eða Hörpu,“ segir Hákon og kemur ekki á óvart enda bara nokkur skref frá staðnum yfir í Þjóðleikhúsið og örstuttur gangur að tónlistarhúsinu. Staðurinn er vinsæll en að sögn Hákonar eru Íslendingar í meirihluta þó að erlendir ferðamenn sæki staðinn líka nokkuð vel. Essensia tekur 60 manns í sæti í einu. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni essensia.is. Ekta ítalskur andi og pizzur af betri gerðinni ESSENSIA, HVErFISGÖTu 4–6 Hákon Már Örvarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.