Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 8
8 Helgarblað 19. janúar 2018fréttir fékk falleinkunn í úttekt landlæknis n Forsvarsmenn virtu athugasemdir að vettugi n Opinberir styrkir hækka umtalsvert frá ári til árs A ðra vikuna í röð fjallar DV um málefni Með­ ferðarheimilisins í Krýsu­ vík. Heimilið fær síauknar fjárveitingar frá hinu opinbera á ári hverju en alls munu ríflega 115 milljónir króna renna til þess á ár­ inu 2018. Það er athyglisvert í ljósi þess að heimilið fékk falleinkunn í úttekt Landlæknisembættisins um mitt ár 2016 og hafði ekki brugðist við athugasemdum við eftirfylgni­ heimsókn í lok árs. Þrátt fyrir það hefur heilbrigðisráðuneytið leyft starfseminni að viðgangast án þess að grípa til einhverra aðgerða til þess að laga málin. Rétt er að halda því til haga að árangurinn af meðferðinni var talinn góður í út­ tekt embættismanna Landlæknis. DV birtir svör stjórnarformanns Krýsuvíkursamtakanna, Sigur­ línu Davíðsdóttur, við umfjöllun blaðsins og yfirlýsingu frá stjórn þeirra. Telur stjórnin að umfjöllun DV um starfsemi meðferðarheim­ ilisins sé villandi. Þá birtir DV upplýsingar um tvo starfsmenn samtakanna, einn núverandi og annan sem hefur látið af störfum, sem eiga skugga­ lega fortíð. Annar þeirra hefur ver­ ið tvisvar kærður fyrir nauðganir, er haldinn kynlífsfíkn og hefur viðurkennt að hafa keypt vændi af drengjum og stúlkum sem eru í neyslu, utan veggja Krýsuvíkur. Hinn átti óeðlieg kynferðisleg samskipti við skjólstæðinga sam­ takanna og tók meðal annars upp á myndband kynferðismök sín við fjölmargar konur. Fórnarlömb hans voru grunlaus um upp­ tökurnar. Víða pottur brotinn Forsvarsmenn Meðferðarheimil­ isins í Krýsuvík brugðust ekki við alvarlegum athugasemdum Land­ læknisembættisins sem settar voru fram í kjölfar eftirlitsheimsókn­ ar um mitt ár 2016. Í lok sama árs fóru starfsmenn embættisins í eft­ irfylgniheimsókn en þá kom í ljós að athugasemdirnar höfðu verið virtar að vettugi. Embættið sendi niðurstöðurnar til heilbrigðis­ ráðuneytisins sem hefur ekki brugðist við. Framlög hins opin­ bera til meðferðarheimilisins hafa hækkað hratt undanfarin ár en ráðgert er að samtökin fái um 115 milljóna króna styrk á næsta ári. Í síðustu viku birtist í DV um­ fangsmikil umfjöllun um starfsemi Meðferðarheimilisins í Krýsuvík. Þar voru dregnar fram í dagsljósið ýmsar brotalamir á starfseminni þar á meðal staðfestar frásagnir af óeðlilegum samskiptum starfs­ manna og stjórnenda við skjól­ stæðinga heimilisins. Úttekt DV byggðist fjölmörgum samtölum, bæði frá fyrrverandi starfsmönn­ um og skjólstæðingum. Meðal þess sem ýmsir heim­ ildarmenn DV vöktu athygli á var að verulega skorti á fagmennsku í þeirri meðferð sem fram fer í Krýsuvík, bæði hvað varðar útfær­ slu meðferðarinnar sem slíkrar sem og varðandi starfsmanna­ stefnu stjórnenda. DV ákvað að kanna nánar hvort fótur væri fyrir þeim athugasemd­ um og leitaði eftir því hvort opin­ berir aðilar hefðu tekið út þau störf og þá vinnu sem fer fram á heimilinu. Verður að telja eðlilegt að slík skoðun eigi sér reglulega stað af hálfu opinberra aðila, ekki síst í ljósi þess að ríkið leggur með­ ferðarheimilinu til umtalsverða fjármuni á ári samkvæmt fjárlög­ um, en eins og fram kom í umfjöll­ un DV í síðustu viku jukust fram­ lög ríkisins verulega árið 2016, úr um 73 milljónum í 106 milljónir. Alvarlegar athugasemdir í úttekt Landlæknis Í ljós kom að Landlæknir gerði fyrir tæpum tveimur árum út­ tekt á gæðum og öryggi þjónustu heimilisins og í henni voru gerðar nokkrar alvarlegar athugasemdir við starfsemi heimilisins. Úttektin var unnin af fimm fag­ aðilum frá embættinu; tveimur hjúkrunarfræðingum, geðhjúkr­ unarfræðingi, sviðsstjóra og land­ lækni sjálfum. Í rannsókninni voru fimm meginatriði starfseminn­ ar tekin út, stefnumörkun, vinnu­ lag, árangur, mönnun og húsnæði. Mælikvarðinn fyrir hvern þátt var þrískiptur, niðurstaðan „Gott“ þýddi að settum kröfum væri full­ nægt, niðurstaðan „Viðunandi“ þýddi að umbóta væri þörf á ákveðnum sviðum og niðurstað­ an „Ófullnægjandi“ þýddi að veru­ legra úrbóta væri þörf. Niðurstaða úttektarinnar var sú að í einum þætti, varðandi árang­ ur, taldist kröfum vera fullnægt. Stefnumörkun og húsnæðismál töldust viðunandi en vinnulag og mönnun töldust ófullnægjandi. Heilsufarsupplýsingar skráðar í Excel-skjal Í úttekt Landlæknis kom fram að á meðferðarheimilinu væru hvorki gæðahandbók né skrif­ legar verklagsreglur fyrir hendi. Taldi Landlæknir það gagnrýnis­ vert þar sem brýnt væri að skýrir verkferlar lægju fyrir um megin­ þætti starfseminnar, bæði fyrir starfsfólk og aðra. Þá voru gerðar athugasemdir við ófaglega skrán­ ingu heimilisins á heilsufarsupp­ lýsingum skjólstæðinga en eins og kom fram í úttektinni var það „í raun excel­skjal“. Benti Land­ læknir á hættuna á því að með­ ferðin yrði ekki samræmd og markviss ef skráning væri ekki á samtengjanlegu formi, svo sem eins og í svokölluðu Sögukerfi sem heilbrigðisstofnanir notast almennt við. Enginn ráðgjafa uppfyllir nauðsynleg skilyrði Athugasemdir úttektarinnar voru hve alvarlegastar varðandi mönnun á heimilinu. Í úttektinni kom fram að meðferðin og þjón­ ustan væri að langmestu leyti borin uppi af ráðgjöfum á sviði áfengis­ og vímuvarna. Kom fram að á heimilinu störfuðu fjórir ráð­ gjafar en að enginn þeirra upp­ fyllti menntunarskilyrði reglu­ gerðar velferðarráðuneytisins um áfengis­ og vímuefnaráð­ gjafa, sem eru nánar útlistuð hér í úttektinni. Ráðgjafarnir hefðu þó flestir lokið fjögurra mánaða námi í Ráðgjafaskóla Íslands samhliða fullri vinnu. Var í úttekt­ inni bent á að hvorki hjúkrunar­ fræðingar né sjúkraliðar störf­ uðu í Krýsuvík heldur einungis einn geðlæknir í 20% starfi sem heimsótti starfsmenn einu sinni í viku. Þá kæmi einnig sálfræðing­ ur einu sinni í viku og sinnti með­ al annars handleiðslu ráðgjafa. Skjólstæðingar sem þyrftu á sál­ fræðiaðstoð að halda þyrftu því að sækja hana utan heimilisins og greiða þá sérstaklega fyrir hana. Taldi landlæknir brýnt að auka faglega mönnun á heimilinu í ljósi þess að um heilbrigðisstofn­ un er að ræða. Sjálfsafgreiðsla eftir klukkan fjögur Harðasta gagnrýni úttektarinnar var sú að á heimilinu væri enginn starfsmaður frá klukkan 16.00 til næsta morguns. Utan dagvinnu­ tíma væru skjólstæðingarn­ ir því á eigin ábyrgð. Um helgar væri svipuð staða uppi, kokkur kæmi og eldaði hádegisverð og undirbyggi kvöldverð sem skjól­ stæðingarnir sæju svo sjálfir um að bera fram. Við þetta fyrir­ komulag gerði landlæknir alvar­ legar athugasemdir, ekki hvað síst að teknu tilliti til staðsetn­ ingar heimilisins, sem er nokk­ uð afskekkt. Að mati embættisins var fyrirkomulagið óásættanlegt þar sem um heilbrigðisstofnun væri að ræða og að notendur ættu að njóta sólarhringsþjón­ ustu. Ábendingar hunsaðar Niðurstöðum úttektarinnar fylgdu skýrar ábendingar til stjórnenda heimilisins. Þar á meðal að stjórn­ endur skyldu skrá niður viður­ kenndar og faglegar leiðbeiningar og verklagsreglur varðandi með­ ferðina. Þá þyrfti að bæta skrán­ ingu heilsufarsupplýsinga skjól­ stæðinganna, auka fagmönnun í starfsliðinu og sjá til þess að alltaf væri starfsmaður til staðar á heim­ ilinu til að tryggja öryggi. Um hálfu ári síðar, í desember 2016, fylgdi embættið úttektinni eftir og kannaði hvernig brugð­ ist hefði verið við. Ræddu úttekt­ araðilar af því tilefni við helstu stjórnendur heimilisins og sam­ takanna, þau Lovísu Christiansen framkvæmdastjóra, Sigurlínu Davíðsdóttur formann og Þorgeir Ólason, forstöðumann heimilisins. Samkvæmt skýrslu sem embættið gaf út eftir þá skoðun virðist sem stjórnendur heimilisins hafi að langmestu leyti virt ábendingar embættisins að vettugi. Í skýrslu embættisins kom með­ al annars fram að fulltrúar heim­ ilisins hefðu upplýst um að vinna við gerð gæðahandbókar hafi verið hafin en þrátt fyrir ítrekaðar ósk­ ir hafi embættið ekki fengið afhent drög að þeirri vinnu. Þá upplýstu fulltrúar heimilisins að heilsufars­ upplýsingar væru ennþá skráð­ ar í Excel og að áform um að taka upp nýtt kerfi væru á frumstigi. Varðandi kröfu um aukna fag­ mennsku í starfsliði heimilisins kom fram að ekkert hefði verið unnið að þeim málum og að full­ trúarnir væru mjög ósáttir við reglugerð velferðar ráðuneytisins um menntun, réttindi og skyld­ ur áfengis­ og vímuefnaráðgjafa. Sagði í skýrslunni að enn væri stað­ an því sú að enginn af ráðgjöf­ um meðferðarheimilisins upp­ fyllti skilyrði reglugerðarinnar en að þeir hefðu hlotið menntun og réttindi sem ekki væru viðurkennd á Íslandi. Að lokum var staðan enn óbreytt varðandi helstu gagnrýni úttektarinnar; að enginn starfs­ maður væri til staðar á heimil­ inu eftir klukkan 16.00 á daginn. Munu fulltrúar heimilisins hafa tjáð embættinu að þeir hefðu velt þeirri gagnrýni fyrir sér en ekki gert breytingu af ýmsum ástæðum. Mat Landlæknis að lokinni út­ tekt og eftirfylgni var því nokkuð harðort: „Ljóst er að lítt hefur ver­ ið farið að ábendingum embætt­ isins nema helst hvað húsnæði varðar. Niðurstaða embættisins er því að faglegar lágmarkskröfur til reksturs heilbrigðisþjónustu séu ekki uppfylltar.“ Þá kemur fram að í núgildandi þjónustusamningi við Sjúkratryggingar Íslands segi að meðferðin skuli veitt af læknum og áfengis­ og vímuefnaráðgjöfum en eins og fram hefur komið uppfyll­ ir enginn af ráðgjöfum heimilisins skilyrði reglugerðar. Ýmis önnur ákvæði samningsins eru ekki upp­ fyllt, svo sem er snerta gæði þjón­ ustu, innra eftirlit og skráningu heilsufarsupplýsinga.“ Ráðuneytið þarf að bregðast við. Þessi skýrsla Landlæknis kom út í lok árs 2016, eins og áður segir. DV leitaði upplýsinga hjá emb­ ættinu um hvort að síðar hafi ver­ ið gerð frekari úttekt, veittar frek­ ari ábendingar eða farið í aðrar aðgerðir varðandi þessi málefni heimilisins. Svo reyndist ekki vera en embættið hefur ekki úr mörg­ um verkfærum að moða til þess að bregðast við. „Við upplýstum ráðuneytið um að starfsemin uppfyllti engin skilyrði sem heil­ brigðisþjónusta. Það sem þarna fer fram á miklu frekar skylt við einhvers konar félagslegt úrræði. Það mætti kalla þetta búsetuúr­ ræði með séraðstoð,“ segir Leifur Bárðarson, sviðsstjóri eftirlits og gæða hjá Landlæknisembættinu. Leifur bendir á að Landlæknis­ embættið veiti heilbrigðisstofnun­ um ekki starfsleyfi né neitt slíkt og því sé þeirra eina úrræði að upp­ lýsa ráðuneytið um stöðu mála. Það sé þeirra að bregðast við. „Þá gleymist líka oft í þessari umræðu að aðalábyrgðin liggur hjá stjórn þessara samtaka. Þau þiggja opin­ bert fé til þess að veita tiltekna þjónustu og það er á þeirra ábyrgð að sú þjónusta sé í samræmi við lög og reglugerðir,“ segir Leifur. n Meðferðarheimilið í Krýsuvík Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.