Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Síða 45
Brot af því bestaHelgarblað 19. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Amerísk upplifun í hjarta borgarinnar
AmericAn BAr, Austurstræti 8
American Bar, Austurstræti 8, er einn flottasti sportbar landsins, þar sem hægt er að
fylgjast með spennandi íþróttavið-
burðum á flatskjáum og breiðtjaldi,
borða frábæran mat og njóta sín
í lifandi umhverfi. reglulega troða
upp reyndir og flinkir trúbadorar sem
koma öllum í rétta stemningu með
spennandi lagavali og kraftmiklum
flutningi. eftir miðnætti um helgar
mæta síðan plötusnúðar til leiks og
tryggja dúndrandi stemningu fram
eftir nóttu. enski boltinn er fyrir-
ferðarmikill á skjáum á American Bar
en þar eru líka sýndir leikir í amerísku
nFL-deildinni og ýmsir aðrir íþrótta-
viðburðir.
umhverfi á American Bar er sér-
lega skemmtilegt en þar má sjá ýmsa
forvitnilega ameríska hluti, til dæmis
bandaríska fánann frá árinu 1930,
sem hangir á vegg, 70 ára gamlan
uppstoppaðan svartbjörn og nFL-
hjálma frá öllum liðunum í deildinni,
en þeir prýða veggi staðarins.
maturinn á American Bar er afar
girnilegar. meðal annars er boðið
upp á hamborgara, barbecue-rif,
kjúklingavængi og cesar-salat.
Úrval af drykkjum á barnum er síð-
an framúrskarandi en „drekku tíminn“
– Happy Hour – er alla daga frá kl. 16
til 19.
Á Facebook-síðu American Bar
er gott að fylgjast með því sem er í
gangi á staðnum. Þar eru reglulega
uppfærðar upplýsingar um dagskrá
framundan, íþróttaviðburði á skján-
um og tónlistaratriði á staðnum.
Auk þess er þar að finna reglulega
spennandi tilboð í mat og drykk.
American Bar er opinn mánudaga
til fimmtudaga frá 11 til 01 eftir mið-
nætti, föstudaga og laugardaga frá
11 til 04.30, og loks sunnudaga frá 11
til 01.
Fólk hefur tekið ástfóstri við
hamborgarana á Íslenska barnum
HrÁeFnið skiptir sköpum
Þegar við byrjuðum með Íslenska barinn var ekki pælingin að vera hamborgarastaður en ham-
borgararnir urðu bara strax svo vin-
sælir hjá okkur og það varð til þess að
við stækkuðum hamborgaramatseð-
ilinn og núna bjóðum við upp á sex
ólíka hamborgararétti ásamt borgara
dagsins,“ segir Veronika á Íslenska
barnum, ingólfsstræti 1a. staðurinn
er rómaður fyrir bæði frábæran mat
og góða kráarstemningu og úrvalið á
barnum er frábært.
Veronika segir að ein af ástæðum
vinsælda hamborgaranna í byrjun
hafi verið sú að Íslenski barinn varð
einna fyrstur til að bjóða upp á
vöfflufranskar kartöflur með borg-
urunum, sem þótti afar spennandi
nýjung á sínum tíma en núna eru þær
orðnar útbreiddar.
„Við erum með ferska nauta-
borgara frá kjötsmiðjunni. Það er
mikilvægt nota einungis ferskt gæða-
kjöt. Hamborgari er ekki bara ham-
borgari og almennilegt hráefni gerir
þetta að allt annarri máltíð en það
sem við köllum vanalega skyndibita.
Alvörukjöt, fitubætt, og engin auka-
efni,“ segir Veronika.
Ljúffengur frumleiki einkennir
vinsælustu hamborgara Íslenska
barsins og Veronika tekur sem dæmi
sigguborgarann: „sagan á bak við
sigguborgarann er sú að hún sigga
mamma mín bakar pönnukökurnar
okkar og okkur langaði til að gera
eitthvað meira við þær, þannig að við
ákváðum að leggja efra brauðinu og
erum með pönnuköku fyllta með osti
og beikoni í staðinn. Þetta gerðum
við að borgara dagsins einu sinni en
hann varð svo rosalega vinsæll að
það var ekki annað í boði en að setja
hann á matseðilinn.“
Annað dæmi um frumleika og
vinsældir er lambahamborgarinn:
„Það varð verkfall hér um árið og það
var ekki til nautakjöt í landinu og þá
byrjuðum við með lambaborgarann.
Íslendingar voru ekki mjög spennt-
ir fyrir honum í byrjun en erlendu
ferðamennirnir tóku honum fagnandi.
núna er hann hins vegar orðinn mjög
vinsæll hjá Íslendingum líka. segja má
að verkfallið hafi kennt fleiri Íslending-
um að meta lambaborgara.“
Bæði sigguborgarinn og lamba-
borgarinn eru mjög vinsælir réttir og
seljast í miklu magni á hverjum degi.
Íslenski barinn býður líka upp á hefð-
bundinn hamborgara og hreindýra-
borgara sem er algjört lostæti. einnig
eru kjúklingaborgari og Haf og hagi
sem er nautaborgari með djúpsteikt-
um íslenskum humri.
Eins og áður segir er Íslenski bar-
inn bæði vinsæll veitingastaður og
skemmtistaður. Opið er virka daga frá
11.30 til eitt um nóttina og um helgar
er opið til þrjú að nóttu. Bjórúrvalið
á barnum er magnað en í boði eru
allir íslenskir bjórar sem fáanlegir eru
í flösku og dós. Eingöngu er íslenskur
bjór í boði en úrvalið af íslenskum bjór
er líklega eitt það mesta í heiminum,
tegundirnar í augnablikinu eru um
60.