Orð og tunga - 26.04.2018, Síða 44
Katrín Axelsdóttir: Þórarinn í þágufalli 33
við mál konunnar í Fróðholti sem sagt er frá á seðlinum, þetta hafi
ýmsir aðrir sagt á þessum slóðum.17
En dæmi um Þórarininum eru þó ekki bundin við Rangárvallasýslu
og þennan eina heimildarmann Orðabókar Háskólans. Anna Sigríður
Einarsdóttir, f. 1951, sem á ættir að rekja vestur á firði, þekkir myndina
Þór arininum, auk myndarinnar Þórarinum, sem fjallað var um í 3.
kafla, og raunar enn lengri mynda en Þórarininum. Hún segir (Anna
Sig ríður Einarsdóttir 2015):
(15) Þannig var að pabbi [f. 1913] og bræður hans höfðu
þetta í flimtingum og skensi sín á milli og tóku þá
gjarnan til orða eitthvað á þessa leið: ‘O, þetta er bara
ein helvísk lygin úr honum Þórarinum,’ sagt með
viðeigandi leikrænum tilburðum og ef reglulega vel lá
á þeim þá bættu þeir við endinguna í fíflaganginum og
sögðu: ... Þórarin-inum og höfðu endingar-dræsuna þá
jafnvel lengri!
Bræðurnir sem þarna er sagt frá voru fæddir á Rauðasandi og þeir
hafa hent gaman að máli einhvers sem bjó kannski einnig þar. Vera
má að sá hafi verið aðfluttur — og hinar óvenjulegu orðmyndir hafi
vakið athygli Rauðsendinga sem voru ekki vanir þeim. Það er a.m.k.
engan veginn víst að Þórarinum og Þórarininum hafi verið vana legt
mál á Rauðasandi eins og raunin virðist hafa verið (a.m.k. sums
staðar) í Rangárvallasýslu. Steinunn J. Kristjánsdóttir, f. 1965, er
ættuð úr næsta nágrenni, af Barðaströnd. Móðir hennar, Valgerður
Kristjánsdóttir, hefur búið á Barðaströnd síðan á sjötta áratugnum og
faðir hennar, Kristján Pétur Þórðarson, hefur búið þar alla ævi, frá
1925. Bæði kannast þau vel við myndirnar Þórarinum og Þórarininum
af Barðaströnd og Rauðasandi. Þau segja myndirnar þó eingöngu
hafa verið notaðar til gamans. Það kemur vel heim við vitnisburðinn
í (15). Hið sama gildir um það sem Elva Björg Einarsdóttir, f. 1966
á Barðaströnd, hefur eftir frænku sinni, Guðlaugu Guðmundsdóttur
(1932–2017). Maður Guðlaugar hét Þórarinn og sagði hún fólk á þessu
svæði hafa átt það til í gríni að biðja „að heilsa Þórarininum“.
17 Jón man einnig eftir myndinni Þórarinum (sjá 3. kafla); hann segir bæði Þórarinum
og Þórarininum hafa heyrst þegar hann var að alast upp. Sjálfum var Jóni aldrei
önnur mynd töm en hin hefðbundna mynd Þórarni. — Jón var ekki í hópi reglu-
legra heimildarmanna Orðabókar Háskólans. Skrifari seðilsins í (14) var Árni
Böðvars son, en þeir Jón voru bræðrasynir. — Bróðir Jóns, Magnús L. Sveinsson, f.
1931, minnist myndarinnar Þórarinum og aðeins í máli konunnar í Fróðholti (um
soninn Þórarin). Magnús kannast hins vegar ekki við lengri myndina Þórarininum.
tunga_20.indb 33 12.4.2018 11:50:33