Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 2. M A R S 2 0 1 8
$Stofnað 1913 $ 69. tölublað $ 106. árgangur $
FJÖLBREYTT
UMFJÖLLUN
UM IÐNAÐINN
ÞRÓA
TIL-
LÖGUR
ÍSLANDSBANKI
AFHENTI RANGAR
UPPLÝSINGAR
FENEYJATVÍÆRINGUR UNDIRBÚINN 72-73 VIÐSKIPTAMOGGINNSÉRBLAÐ 16 SÍÐUR
„Rek á ísnum núna er mun meira en verið hefur og því er mik-
ið um ferðir ísbjarna,“ segir Árni Valur Vilhjálmsson ferða-
garpur. Þeir Ragnar Axelsson, ljósmyndari Morgunblaðsins,
voru nú vikunni á Tóbín-höfða við Scoresbysund á austur-
strönd Grænlands, yfirgefinni byggð sem ferðamenn sýna
vaxandi áhuga. Þar felldu menn ísbjörninn, sem hér sést á
mynd, bókastaflega við húsdyrnar á mánudagskvöldið eftir
að hann hafði ráðist á mann og bitið þrisvar. Annar stærri
björn var felldur strax næsta dag.
Morgunblaðið/RAX
Felldu ísbjörn í
yfirgefinni byggð
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Nokkrar af stærstu bílaleigum landsins hyggjast
kaupa mun færri nýja bíla inn til landsins í flota
sinn á þessu ári en þær gerðu á því síðasta.
Þetta staðfesta forsvarsmenn fyrirtækjanna í
samtali við ViðskiptaMoggann. Þannig segir Þor-
steinn Þorgeirsson, framkvæmdastjóri bifreiða-
sviðs Avis, að fyrirtækið muni kaupa 40% minna
inn af bílum í ár en í fyrra. Steingrímur Birg-
isson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar, segir að allt
stefni í að fyrirtækið kaupi 20% færri nýja bíla
inn til landsins í ár en yfir sama tímabil í fyrra.
Þá staðfestir Vilborg Anna Garðarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Sixt, að samdrátt-
urinn á þeim vettvangi muni að öllum líkindum
nema 10-12%.
Hendrik Berndsen, stjórnarformaður Hertz,
segir ekki ljóst hversu mikill samdrátturinn
verði á vettvangi fyrirtækisins en það muni ekki
síst ráðast af því hversu vel takist til við að selja
notaða bíla úr flotanum. Það var aðeins Garðar
Sævarsson, rekstrarstjóri Enterprise, sem tjáði
blaðinu að fyrirtækið byggist við því að nýliðun í
flotanum yrði með svipuðu móti og í fyrra.
Er það samdóma álit allra viðmælenda blaðs-
ins að versnandi rekstrarhorfur hafi breytt stöð-
unni á bílaleigumarkaðnum. Þá hafi breyttar
reglur um vörugjöld á bílaleigubíla kallað á að
leggja þurfi meira eigið fé inn í kaup á hverjum
bíl og að fyrirtækin hafi ekki gott svigrúm til
þess.
Kaupa mun færri nýja bíla
& Bílaleigur panta mun færri bíla en í fyrra & Rekstrarumhverfið sagt afar erfitt
! Jin Zhijian, sendiherra Kína á Ís-
landi, segist í samtali við Morgun-
blaðið vilja efla samstarf og sam-
vinnu Íslands og Kína á ýmsum
sviðum. Nefnir hann í því samhengi
m.a. málefni norðurslóða, nýtingu
jarðvarma og ferðaþjónustu, en
hann vill að komið verði á beinu
flugi á milli Keflavíkur og Kína.
Það sé lykilatriði í nánu samstarfi.
„Ég tel að það sé vel hægt að
opna beina flugleið á milli Kína og
Íslands vegna þess að það bætist
sífellt í hóp þeirra sem vilja ferðast
þessa leið,“ segir hann, en beint
flug eykur einnig viðskipti. »24
Vill sjá beint flug
frá Keflavík til Kína
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504