Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
ALICANTE
Netverð á mann frá kr. 39.900 báðar leiðir
m/sköttum og tösku.Flugsæti
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Frá kr.
39.900
Báðar leiðir
m/sköttum
og tösku
Séra Ólafur Jóhannsson, sókn-
arprestur í Grensáskirkju, sem úr-
skurðarnefnd þjóðkirkjunnar taldi
hafa gerst sekan um siðferðisbrot
gegn tveimur konum hefur áfrýjað
báðum úrskurðum til áfrýjunar-
nefndar þjóðkirkjunnar. Fimm
konur kærðu athafnir séra Ólafs í
sinn garð til kirkjunnar til úrlausn-
ar. Í úrskurði kirkjunnar eru at-
hafnir hans taldar sannaðar en
Ólafur var fundinn sekur um sið-
ferðisbrot í tveimur málanna og
refsingar krafist af biskupi í einu
þeirra. Ólafur fer þess á leit við
áfrýjunarnefnd að báðir úrskurð-
irnir verði felldir úr gildi og hafnar
um leið öllum kröfum gagnaðila.
Hann krefst þess einnig að kostn-
aður við störf áfrýjunarnefndar
verði felldur á kirkjumálasjóð.
Lögmaður Ólafs gerir athuga-
semdir við málsmeðferð hjá úrskurð-
arnefnd þjóðkirkjunnar í báðum úr-
skurðum. Í öðrum þeirra bendir hann
á að atvik málsins áttu að hafa gerst
fyrir 13 árum og að aðilum ber ekki
saman um málavexti og lítill sam-
hljómur milli þeirra. „Í málatilbúnaði
gagnaðila lýsir hún ekki í raun inni-
haldi neinna samtala heldur stað-
hæfir það eitt að áfrýjandi hafi sagt
eitthvað sem hún metur nú, þrettán
árum síðar, af kynferðislegum toga.
Nefndin færir það eitt til sönnunar að
framkvæmdastjóri Kirkjuhússins
hafi að beiðni gagnaðila, gefið einhliða
yfirlýsingu í tilefni af málinu um sam-
tal sem hún hafi átt við gagnaðila en
lýsi ekki innihaldi þess í raun. Þetta
sönnunarmat úrskurðarnefndar er
ótækt og uppfyllir engan veginn kröf-
ur réttarfars,“ segir í annarri áfrýj-
unarbeiðni Ólafs.
Í hinni áfrýjunarbeiðni Ólafs segir
lögmaður hans m.a. að ekki sé sam-
ræmi milli þess sem úrskurð-
arnefndin kveður í málavaxtalýsingu
sinni, og áfrýjandi kannist við, og
þess sem hún síðan leggur til grund-
vallar í forsendum sínum. „Þar eru
honum [Ólafi] lögð orð í munn og
prjónað við það sem áfrýjandi sjálfur
heldur fram.“ Segir hann úrskurð-
arnefndina túlka hugtakið kyn-
bundna áreitni svo vítt að hugtakið
gæti tekið til nánast hverskonar sam-
skipti kynjanna.
Í gær ákvað Agnes Sigurðardóttir
biskup að framlengja leyfi sr. Ólafs
frá störfum ótímabundið meðan mál
hans er til ákvörðunar hjá embætt-
inu. mhj@mbl.is
Mál séra Ólafs til áfrýjun-
arnefndar þjóðkirkjunnar
& Gerir athugasemdir við málsmeðferð innan kirkjunnar
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Mikill meirihluti félagsmanna í Fé-
lagi grunnskólakennara felldi ný-
gerðan kjarasamning FG og Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
Atkvæðagreiðslunni lauk í gær og
urðu úrslitin þau að nei sögðu 2.599
eða 68,52% en já sögðu 1.128 eða
29,74%. Auðir seðlar voru 66. Á kjör-
skrá voru 4.697 félagsmenn og
greiddu 3.793 atkvæði eða 80,75%.
FG og Samband íslenskra sveitar-
félaga skrifuðu undir kjarasamning-
inn 13. mars sl.
71.500 og 55.000 kr.
eingreiðslur
Gildistími samningsins var frá 1.
apríl nk. til 31. mars á næsta ári en
fyrri samningur rann út í lok nóv-
ember í fyrra. Samningurinn kvað á
um 3% launahækkun 1. apríl, 71.500
kr. eingreiðslu um næstu mán-
aðamót til að bæta upp þann tíma
sem samningar voru lausir og 1.
febrúar á næsta ári átti svo að koma
til 55.000 kr. eingreiðslu fyrir mán-
uðina janúar til mars 2019. Þá kvað
samningurinn á um að greiddar yrðu
annaruppbætur, 85.000 kr. í júní og
85.000 kr. í desember.
Einnig var samið um breytingu á
menntunarkafla þar sem persónu-
álag upp á 2% fengist fyrir hverjar
30 ECTS-einingar sem geri að verk-
um að laun félagsmanna geti breyst
mismunandi mikið og verið allt frá
3% upp í 5%, 7%, 12% ,,allt eftir því
hve mikla menntun [sic] þeir hafa
bætt við sig í gegnum tíðina [...],“
eins og sagði m.a. í kynningu á efni
samningsins sem kennarar hafa nú
fellt. Horfið var frá vinnumati og
samið um breytt vinnufyrirkomulag.
Málefnalegar viðræður
„Það eru vonbrigði að þetta skyldi
fara svona,“ segir Inga Rún Ólafs-
dóttir, formaður samninganefndar
sveitarfélaganna. „Við munum hitta
samninganefnd kennara fljótlega og
fara yfir þetta saman,“ segir hún.
Inga Rún segir aðspurð að í þess-
um samningum hafi samninganefnd
sveitarfélaganna gert allt sem hún
gat gert. ,,Þetta voru mjög málefna-
legar viðræður en niðurstaðan var
svo felld.“
Mikill meirihluti
kennara felldi
samninginn
& Launahækkanir gátu verið allt frá
3% upp í 5%, 7% og 12% eftir menntun
Morgunblaðið/Hari
Í skólastofu Samningur grunn-
skólakennara rann út í nóvember sl.
Hvatning til góðra verka voru skilaboðin sem fólust í
því þegar Guðmundi Inga Guðbrandssyni umhverf-
isráðherra var færð að gjöf geispa, en svo er gróð-
ursetningarverkfærið sem íslenskir skógræktendur
gjarnan nota kallað. Það var Jóhann Gísli Jóhannsson,
formaður Landssamtaka skógareigenda og bóndi á
Breiðavaði á Eiðaþinghá, sem afhenti ráðherranum
þetta þarfaþing í tilefni af alþjóðlegum degi skógar
sem var í gær. Við sama tilefni var frumsýnt myndband
sem Skógræktin hefur látið gera og fjallar um skóg-
rækt og sjálfbærar borgir en mikil vakning er í um-
ræðu um þau efni.
Morgunblaðið/Eggert
Ráðherrann fékk geispu að gjöf
„Það eru vonbrigði að hann hafi ver-
ið felldur. Það kom kannski ekki á
óvart miðað við að það var grímulaus
áróður í gangi gegn samningnum af
pólitískum aðilum sem lögðu mikið á
sig við að fella hann án þess að
greina frá því hvað gæti tekið við,“
sagði Ólafur Loftsson, formaður Fé-
lags grunnskólakennara, við mbl.is í
gær.
„Það sem er alvarlegt í þessu er að
stjórnmálaafl geti með beinum hætti
beitt sér í atkvæðagreiðslu kjara-
samnings. Það er alvarleg þróun að
stéttarfélagið sé notað á þennan hátt.
Hitt er ekki launungarmál að fé-
lagsmenn vildu fá meira,“ sagði Ólaf-
ur.
Hann vísaði til herferðar sem and-
stæðingar samningsins háðu á sam-
félagsmiðlum þar sem félagsmenn
voru hvattir til að fella hann. Þar af
eru tveir af 12 manna samn-
inganefnd sem hafi gert mikið í því
að fella hann. Þetta eru að sögn Ólafs
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, sem skipar
3. sæti á lista Framsóknarflokksins,
og Jón Ingi Gíslason, formaður kjör-
dæmisráðs framsóknarmanna í
Reykjavík. thorunn@mbl.is
Grímulaus áróður í gangi gegn samningnum
Kaup Seltjarnarnesbæjar á húsinu
Ráðagerði, því vestasta í bænum,
fyrir 100 milljónir króna eru í höfn.
Bærinn hafði forkauprétt á húsinu
sem var byggt árið 1890. Það hefur
verið í einkaeign en verður í framtíð-
inni nýtt fyrir til dæmis ýmsa menn-
ingarstarfsemi.
„Ég sem menningarfulltrúi bæjar-
ins lýsi yfir miklum áhuga á því að
geta nýtt húsið í menningar- eða
ferðatengda starfsemi og vil samráð
við bæjarbúa um það sem þeir vilja
helst sjá á þessum stað,“ segir María
Björk Óskarsdóttir.
Efla innviði ferðaþjónustu
Umræða hefur verið um uppbygg-
ingu á vesturhluta Seltjarnarness
síðustu misseri auk þess sem kallað
hefur verið eftir aðgerðum í
tengslum við ferðatengda þjónustu
og útiveru á svæðinu. „Með kaupum
á Ráðagerði opnast miklir mögu-
leikar fyrir okkur til að nýta húsið og
þá lóð sem því fylgir auk þess sem
ráðrúm gefst til að vinna hugmynda-
vinnu og meta hvernig það muni best
þjóna íbúum og gestum. Húsið er
kjörið sem áningarstaður fyrir íbúa
og ferðamenn til dæmis sem kaffi-
hús, sögusafn, upplýsingaveita um
Seltjarnarnes, náttúruna, umhverf-
ið, fuglalífið, fornminjarnar og fleira.
Einnig sem móttöku- eða fundarað-
staða,“ segir María Björk.
Hún minnir á að í skýrslu hóps
sem vann við mótun framtíðarstefnu
í ferðaþjónustu á Seltjarnarnesi hafi
verið nefnt að útbúa þyrfti salern-
isaðstöðu og efla innviði ferðaþjón-
ustu. Með kaupum á Ráðagerði er
stórt skref stigið til þess, því margir
fari um þessar slóðir, svo sem vestur
á Gróttu. sbs@mbl.is
Seltjarnarnesbær kaupir
Ráðagerði á 100 millj. kr.
& Kaffihús, sögusafn, upplýsingaveita eða fundarstaður
Ljósmynd/Jón Sigurjónsson
Seltjarnarnes Ráðagerði er vestast
í bænum og út undir Gróttu.