Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
Írland - eyjan græna
sp
ör
eh
f.
Sumar 6
Eire, eyjan græna Írland, býður upp á svo ótalmargt sem
gleður; fallegt landslag, áhugaverða sögu, söngva, sagnir
og skemmtilegt kráarlíf. Frá Dublin verður farið m.a. til
Connemara skagans, skoðum Moherklettana, tökum ferju
yfir Shannonfljótið og komum við í borginni Cork.
5. - 12. júní
Fararstjóri: Jón Baldvin Halldórsson
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 182.400 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Litlu mátti muna að illa færi á heimili
Sólveigar Láru Kjærnested fyrir
stuttu þegar lítill leikfangabolti í
samstarfi við sólina kveikti næstum
því í sófanum í stofunni.
„Ég kom heim úr vinnunni og
settist í sófann. Eftir nokkrar mín-
útur verður mér litið til hliðar og þá
liggur glær lítill bolti á gólfinu við
sófann og það rýkur úr honum. Mér
finnst það skrýtið og tek hann upp og
þá sé ég að hann er farinn að bræða
gat á sófann,“ segir Sólveig Lára.
Þetta gerðist í góðviðrinu fyrir
tveimur vikum. Sólin skein sterkt inn
um stofugluggann á boltann sem
endurkastaði sólargeislunum á sóf-
ann svo áklæðið var farið að brenna.
„Ef ég hefði ekki verið heima á
þessari stundu hefði geislinn getað
farið inn í fyllinguna og eldur brotist
út. Gatið kom á sófann á aðeins
nokkrum mínútum og ég reikna með
að það hefði getað haldið áfram. Ég
er ótrúlega þakklát fyrir að hafa sest
í sófann í þann stutta tíma sem ég
stoppaði heima,“ segir Sólveig Lára.
Börnin hennar áttu boltann sem var
glær plastbolti með glimmervökva
inni í sér sem hægt var að hrista.
„Þessi bolti hefði getað legið hvar
sem var, nálægt mikið eldfimari efn-
um og þá hefði auðveldlega getað
kviknað í á smátíma.“
Sólveig Lára segir það vel
þekkt að sólargeislar sem skína á
spegla eða gler geti kveikt í en hún
hafi ekki áttað sig á að leikfangabolti
úr plasti geti valdið sama tjóni. „Eft-
ir að þetta gerðist dreg ég gard-
ínurnar alltaf fyrir á morgnana áður
en ég fer út.“
Er þakklát fyrir að
hafa sest í sófann
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eldfimt Glæri plastboltinn sem næstum var búinn að kveikja í sófa Sólveigar Láru Kjærnested.
& Sólin endurkastaðist af glærum bolta og bræddi gat á sófa
Sópun á götum og stígum í Reykjavík er hafin.
Ástand gatna og svifryksmengun hefur verið
nokkuð til umræðu að undanförnu og víst er að
margir munu fagna þessum appelsínugulu, stór-
virku götusópum. Þessir tveir voru á ferð í Ár-
bænum í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg
verður fyrst ráðist í að hreinsa fjölförnustu leið-
irnar, það er stofnbrautir og tengigötur auk
helstu göngu- og hjólastíga. Þegar því verki er
lokið verður farið í hverfi borgarinnar og húsa-
götur sópaðar og þvegnar.
„Fólk hefur haft samband þar sem það heldur
að við séum að gleyma þeirra götu, en svo er
ekki. Við munum sópa og þvo húsagöturnar þeg-
ar við höfum þrifið fjölförnustu leiðirnar,“ segir
Björn Ingvarsson hjá þjónustumiðstöð borgar-
landsins. Hægt er að kynna sér verkáætlun
vegna götuhreinsunar á vef borgarinnar. Þau
hverfi sem síðast voru hreinsuð í fyrra verða
hreinsuð fyrst í ár.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Byrjað að sópa götur og stíga í Reykjavík
Þau leiðu mistök urðu í frétt Morg-
unblaðsins á blaðsíðu sex í gær um
viðskipti Íslendinga við danska fyr-
irtækið DNAtest.dk undir yf-
irskriftinni „DNA-próf vinsæl hjá
Íslendingum“ að sagt var að fimm
Íslendingar ættu í viðskiptum við
fyrirtækið á viku, í þeim tilgangi að
láta gera faðernispróf, móðern-
ispróf, systkinapróf o.fl. Hið rétta
er að fimm Íslendingar eiga í við-
skiptum við DNAtest.dk á dag,
hvern dag vikunnar, sem er sjö
sinnum meira en fram kom í frétt-
inni. Leiðréttist það hér með og er
beðist velvirðingar á mistökunum.
Leiðrétting vegna fréttar um viðskipti
Íslendinga vegna DNA-prófa í Danmörku
Ríkisstjórnin hef-
ur ekki kjark til
þess að leiðrétta
þá óhæfu sem
mikill munur á
kjörum alþing-
ismanna og for-
stöðumanna
stofnana ríkisins,
skv. ákvörðun
kjararáðs, og
launafólks hins
vegar er. Þetta segir í ályktun sem
stjórn Landssambands íslenzkra
verzlunarmanna (LÍV) samþykkti í
gær. Þar er mótmælt því sem kallað
er sjálftaka launa meðal stjórnenda í
fyrirtækjum sem hafi farið af stað
þegar kjararáð gaf tóninn.
Þar er minnt á að á sama tíma sé
haldið að launafólki að vera hófstillt í
launakröfum til þess að viðhalda
stöðugleika. Stöðugleiki sé hins veg-
ar ekki til staðar hjá íslensku launa-
fólki sem þurfi á sama tíma að takast
á við skerðingar barna- og vaxtabóta
og raunlækkun á persónuafslætti
sem ekki fylgir launaþróun og hafi
ekki gert lengi.
„Slík ögrun verður ekki liðin og
mun valda upplausn á almennum
vinnumarkaði verði ekkert að gert.
Stjórn LÍV skorar á stjórnvöld og
stjórnir lífeyrissjóða að vinda ofan af
þessari þróun aukinnar misskipt-
ingar,“ segir í ályktuninni sem allt
helsta forystufólk verslunarmanna-
félaganna skrifar undir.
Segja ögr-
un ekki
verða liðna
& LÍV vill vinna
á misskiptingunni
Hjólað Nú virðist
stefna í hart.