Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 38

Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 38
38 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 Leikkonan Cynthia Nixon hefur boðið sig fram í for- kosningum demókrata í september vegna ríkis- stjórakosninga í New York í nóvember. Hún hóf kosn- ingabaráttuna í fyrradag með því að ræða við kjósendur úr röðum minnihlutahópa í Brooklyn. Nixon er þekktust fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Beðmál í borginni (e. Sex and the City) og stefnir að því að verða fyrst kvenna til að gegna ríkisstjóraembættinu í New York. Hún býður sig fram gegn demókratanum Andrew Cuomo sem hefur verið ríkisstjóri í átta ár. AFP Nixon býður sig fram til ríkisstjóra Plastmengunin í heimshöfunum gæti þrefaldast á næsta áratug yrði ekkert að gert. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu sem unnin var fyrir stjórnvöld í Bretlandi. Plastmengun er aðeins ein ógna sem steðja að höfunum, aðrar eru meðal annars hækkandi sjávarborð, hlýnun sjávar og annars konar mengun, segir í skýrslunni sem ber heitið Foresight Future of the Sea Report. Skýrsluhöfundarnir segja hins vegar að efnahagsleg tækifæri leynist í heimshöfunum. Er því spáð að „hagkerfi hafanna“ tvöfaldist fyr- ir árið 2030. Auka þarf rannsóknir á höfunum Meiri þekkingar á hafinu er þörf að mati skýrsluhöfundanna sem segja að fara þurfi í rannsóknaverk- efni í höfunum af sama eldmóði og geimrannsóknir. Skýrslan var tekin saman af sér- fræðingum til að upplýsa ráðherra bresku stjórnarinnar um stöðu haf- anna til skemmri og lengri tíma litið. Í henni er m.a. hvatt til þess að ráðu- neyti samræmi reglugerðir sem tengjast höfunum. Einn höfundanna, Edward Hill, sérfræðingur Hafrannsóknastofn- unar Bretlands, segir að höfin séu gríðarlega mikilvæg efnahagslegri framtíð mannkynsins. „Níu millj- arðar manna munu horfa til hafs eft- ir mat í náinni framtíð. En samt vit- um við lítið um hvað er þarna niðri.“ Hann segir að miklir fjármunir séu settir í það að rannsaka geiminn, þótt engar lífverur hafi fundist þar. „Hafsbotninn er iðandi af lífi,“ segir hann og bætir við að nauðsynlegt sé að auka rannsóknir á því lífi. Höfundar skýrslunnar segja að það sé til mikils að vinna að halda mengun í hafinu í lágmarki. Hafið sé „matarkista nútíðar og framtíðar“ og líffræðilegur fjölbreytileiki skipti sköpum í þeim efnum. AFP Plasthaugar Grafa notuð til að fjarlægja plastrusl sem safnast hefur upp á baðströnd á vinsælum ferðamannastað á eyjunni Balí í Indónesíu. Plastmengunin gæti þrefaldast & Ógnir og tækifæri í heimshöfunum Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hyggst hækka skatta á tekjur stórra tæknifyrirtækja, sam- kvæmt tillögum sem birtar voru í gær. Hún vill að tæknifyrirtækin greiði 3% skatt af veltu vegna ýmis- konar þjónustu á netinu og áætlað er að nýju greiðslurnar nemi alls fimm milljörðum evra, jafnvirði rúmra 600 milljarða króna. Skatturinn á að ná til fyrirtækja á borð við Facebook og Google og mið- að er við að árstekjur þeirra í heim- inum nemi meira en 750 milljónum evra og skattskyldar tekjur þeirra í aðildarlöndum ESB nemi meira en 50 milljónum evra. Stóru tæknifyrirtækin hafa verið gagnrýnd fyrir að greiða of lága skatta í Evrópulöndum og flytja hagnað af viðskiptunum til landa á borð Írland þar sem skattarnir eru lægri. Meðalskattgreiðslur netris- anna nema aðeins 9,5% í aðildarlönd- um ESB en skattar annarra fyrir- tækja nema að meðaltali 23,3%, að sögn framkvæmdastjórnarinnar. Stóru tæknifyrirtækin draga þessar tölur í efa og hafa sagt að skatta- tillögurnar séu vanhugsaðar og til marks um „lýðhyggju“. Evrópuþingið og öll ESB-löndin þurfa að samþykkja skattatillögurn- ar til að þær geti orðið að lögum en ágreiningur er um þær meðal að- ildarríkjanna. Írar hafa efasemdir um að þær og önnur lönd telji að nýju skattarnir eigi einnig að ná til smærri tæknifyrirtækja. Skattar netrisa hækki & Framkvæmdastjórn ESB kynnir áform um að hækka skatta á tekjur stórra tæknifyrirtækja af þjónustu á netinu Boris Johnson, utanríkisráðherra Bretlands, sagði á þingi landsins í gær að stjórnvöld í Kreml hefðu fyrirskipað morðtilræðið við Sergej Skripal, fyrrverandi rússneskan njósnara sem var á mála hjá bresku leyniþjónustunni. Hann telur að meginmarkmiðið hafi verið að senda andstæðingum Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta þau skila- boð að þeir eigi á hættu að verða ráðnir af dögum ef þeir styðji mannréttindi, lýðræði og réttar- ríki. Ráðamennirnir í Kreml hafi valið Bretland til að gera slíka árás vegna þess að Bretar hafi gagnrýnt Rússa fyrir brot á mannréttindum og lýðræðis- reglum. Látið hafi verið til skarar skríða fyrir kosningarnar í Rússlandi til að þjappa þjóðinni saman gegn ímynduðum óvini. Segir Kremlverja bera ábyrgð á árásinni BRETLAND Boris Johnson. Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Með free@home hefur aldrei verið auðveldara og hagstæðara að stjórna heimilinu, sumarbústaðnum eða fyrirtækinu. Ertu að byggja, breyta eða bæta? Endilega kynntu þér málið. Snjalllausnir – nútíma raflögn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.