Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 40
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
Riyadh. AFP. | Skartgripaverslun á markaði í
Riyadh bráðvantar nú starfsmenn eftir að
ríkisstjórn Sádi-Arabíu gaf út tilskipun um
að sádiarabískir ríkisborgarar tækju við
störfum útlendinga í landinu með það að
markmiði að minnka atvinnuleysi meðal
Sáda.
Sádi-Arabía hefur lengi reitt sig á útlend-
inga í verslunar- og þjónustustörfum, eink-
um vegna þess að þeir eru ódýrari og skort-
ur er á innfæddum íbúum með starfsreynslu.
Stjórnin vill nú að Sádar taki við þessum
störfum en sá hængur er á að margir þeirra
eru orðnir svo vanir örlátu velferðarkerfi
olíuríkisins frá vöggu til grafar að þeir fást
ekki til þess. Þeir telja slík störf vera nið-
urlægjandi.
Á skartgripamarkaðnum Tiba í sádiarab-
ísku höfuðborginni hefur þessi stefna komið
verslunum í vandræði. Nokkrum þeirra hef-
ur verið lokað en skortur á reyndu sádiarab-
ísku starfsfólki stendur öðrum fyrir þrifum.
Vilja tvöfalt hærri laun
„Sádar eru nýgræðingar á þessu sviði og
þurfa að öðlast reynslu,“ segir kaupmaður
sem réð ættingja sína til bráðabirgða eftir að
hafa þurft að segja upp reyndu starfsfólki
frá Jemen. Kaupmennirnir segja að margir
Sádar vilji ekki vinna lengi eða mæta til
vinnu á morgnana og vilji fá tvöfalt hærri
laun en vant erlent starfsfólk þótt þeir hafi
enga starfsreynslu. „Þetta er að drepa fyrir-
tækin okkar,“ segir einn kaupmannanna.
Nokkrar verslananna hafa haldið áfram að
greiða erlendum starfsmönnum sínum laun í
von um að stjórnin falli frá tilskipuninni og
þeir geti hafið störf að nýju. Talið er þó ólík-
legt að það gerist.
40% atvinnuleysi meðal ungs fólks
Tilskipunin er liður í þeirri stefnu stjórn-
valda að blása lífi í einkageirann og minnka
útgjöld ríkisins vegna minnkandi olíutekna.
Hún hefur orðið til þess að Sádar eru nú í
fyrsta skipti farnir að vinna við bílaviðgerðir,
afgreiðslu á bensínstöðvum og fleiri atvinnu-
greinar sem voru áður ætlaðar erlendu
starfsfólki.
Þessi stefna er talin vera nauðsynleg. Um
helmingur íbúanna er undir 25 ára aldri og
atvinnuleysið meðal ungs fólks er um 40%,
samkvæmt nýjustu hagtölum. Nær tveir af
hverjum þremur Sádum eru á launum hjá
ríkinu og launa- og bótagreiðslur þess eru
um helmingur af öllum ríkisútgjöldunum.
Stjórnin bætti nýlega sölustörfum í bíl-
partaverslunum, raftækjaverslunum og hús-
gagnaverslunum á lista yfir atvinnugreinar
sem eiga nú eingöngu að vera ætlaðar inn-
fæddum Sádum þrátt fyrir viðvaranir um að
það gæti skaðað fyrirtækin. Nokkrar bíla-
leigur í Riyadh hafa þurft að leggja niður
starfsemi vegna þess að þeim hefur verið
skipað að ráða aðeins Sáda til starfa.
Þurfa að breyta viðhorfunum
til vinnunnar
Útlendingar hafa verið um þriðjungur íbú-
anna og stefna stjórnarinnar hefur orðið til
þess að margir þeirra hafa ákveðið að flytja
búferlum frá Sádi-Arabíu. Starfandi iðn-
verkamönnum fækkaði um 300.000 á fyrstu
níu mánuðum síðasta árs, samkvæmt hag-
tölum frá ríkisstjórninni.
Talið er að það taki að minnsta kosti ára-
tug að breyta vinnumenningunni meðal inn-
fæddra Sáda til að þeir geti tekið við þjón-
ustu-, verslunar- og byggingarstörfum í
Sádi-Arabíu, að sögn Karen Young, sérfræð-
ings í málefnum Persaflóaríkja. „Lausnin á
atvinnuleysisvandanum felst ekki í slíkum
tilskipunum,“ segir Mohammad Bassnawi í
grein í dagblaðinu Saudi Gazette. „Við þurf-
um fyrst að breyta viðhorfum ungra Sáda til
vinnunnar.“
Störf ætluð Sádum sem vilja þau ekki
& Stjórn Sádi-Arabíu fyrirskipar að innfæddir íbúar verði ráðnir í störf útlendinga & Markmiðið er
að draga úr ríkisútgjöldum vegna minni olíutekna & Margir Sádar telja störfin vera niðurlægjandi
AFP
Gersemar Skartgripasali afgreiðir viðskiptavin í verslun á skartgripamarkaðnum Tiba í
Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu. Slík störf eru nú eingöngu ætluð innfæddum íbúum landsins.
Kúrdar halda á kyndlum á göngu upp fjall í grennd við
bæinn Akra í Norður-Írak í tilefni af persneska nýárinu
sem gekk í garð í gær. Margir Kúrdar taka þátt í há-
tíðahöldum dagana 18. til 21. mars ár hvert, kveikja
meðal annars í brennum og dansa í kringum þær til að
fagna nýju ári og komu vorsins.
AFP
Persneska nýárið gengið í garð
Mannræningjar í
Nígeríu slepptu í
gær 101 stúlku af
110 skólastúlk-
um sem var rænt
í bænum Dapchi í
síðasta mánuði.
Hermt er að
a.m.k. fimm
stúlknanna hafi
látið lífið þegar
þeim var rænt og
að minnst ein kristin stúlka sé enn í
haldi mannræningjanna. Talið er
að þeir séu félagar í íslömsku öfga-
samtökunum Boko Haram.
Stjórnvöld í Nígeríu neita því að
þau hafi greitt lausnargjald en
fréttamaður breska ríkisútvarpsins
í landinu telur mjög líklegt að
mannræningjar hafi fengið eitt-
hvað frá stjórninni fyrir að láta
stúlkurnar lausar. Það geti orðið
þeim hvatning til að fremja fleiri
mannrán.
NÍGERÍA
Stúlkur leystar úr
haldi íslamista
Ein stúlknanna
sem var rænt.
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Vörulyftur og varahlutir
frá sænska framleiðandanum
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.