Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 63

Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 63
MINNINGAR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 ✝ Ólafur EiríkurÞórðarson fæddist í Fagra- hvammi í Garði 4. apríl 1943. Hann lést 13. mars 2018. Foreldrar hans voru hjónin Svein- björg Rannveig Sveinbjörnsdóttir, f. 13. nóvember 1915, d. 30. ágúst 1990, frá Eiði í Garði og Þórður Sigursteinn Jörgensson, f. 1. september 1909, d. 17. febrúar 1984, frá Hjallakróki í Ölfusi. Systkini Ólafs eru: Halldór Sveinbjörn, f. 17. september 1941, d. 1. júlí 2007. Anna, f. 1. apríl 1946. Jór- unn Jóhanna, f. 16. ágúst 1947. Marta, f. 15. nóvember 1948, d. 8. janúar 2014. Ingibjörg Þor- gerður, f. 25. júlí 1951. Hafliði, f. 9. mars 1954. Birna, f. 11. apríl 1956. Ólafur átti fósturbróður, Magnús Gíslason, f. 5. ágúst 1932, d. 6. júní 2013. Leising, f. 10. apríl 1989. 3) Björn Árni Ólafsson, f. 25. apríl 1974, kona hans er Kristbjörg Marta Jónsdóttir, f. 13. nóv- ember 1972, börn þeirra eru a) Marta Líf Bjarnardóttir, f. 18. júní 2002, b) Eldey Gígja Bjarn- ardóttir, f. 3. janúar 2008, c) Skarphéðinn Ármann Bjarn- arson, f. 16. september 2010. 4) Ástmar Ólafsson, f. 18. desem- ber 1980, d. 17. júlí 2001. Ólafur tók gagnfræðapróf frá Núpi í Dýrafirði árið 1959. Hann útskrifaðist sem vélstjóri 1964 og var vélstjóri á ýmsum bátum 1964-1968 og aftur árin 1972- 1975. Einnig vann hann við húsasmíðar hjá Skarphéðni Jó- hannssyni tengdaföður sínum. Hann tók sveinspróf í húsasmíði 1975. Ólafur var lengst af vél- stjóri á Keflvíkingi KE-100. Ólafur og Álfheiður bjuggu á Hæðargötu 5 á meðan þau byggðu hús sitt á Hæðargötu 3. Á Hæðargötu 3 bjuggu þau síð- an saman alla tíð. Ólafur tók þátt í starfi UMFN og Fram- sóknarflokksins, á þeim vett- vangi áttu íþrótta- og æskulýðs- mál hug hans. Útför Ólafs fer fram frá Ytri- Njarðvíkurkirkju í dag, 22. mars 2018, klukkan 15. Ólafur kvæntist 15. desember 1963 Álfheiði Skarphéð- insdóttur, f. 22. jan- úar 1945. Foreldrar hennar voru Guð- rún Guðmunds- dóttir, f. 27. júlí 1914, d. 27. febrúar 1983, og Skarphéð- inn Jóhannsson, f. 5. nóvember 1919, d. 18. janúar 2005. Synir Ólafs og Álfheiðar eru: 1) Skarphéðinn Rúnar Ólafsson, f. 8. nóvember 1963, d. 8. mars 1989, 2) Þórður Jörgen Ólafs- son, f. 21. maí 1966, kona hans er Kimberly Ólafsson, f. 30. júlí 1966. Börn þeirra eru a) Sævar Þórðarson, f. 13. júlí 1984, kona hans er Christina Þórðarson, f. 9. desember 1986, börn þeirra eru Tyler, f. 3. október 2006, Særún, f. 10. september 2009, og Thor, f. 18. nóvember 2010. b) Ólöf Rún Þórðardóttir, f. 2. maí 1989, maður hennar er Dan Elsku tengdapabbi. Þú tókst mér opnum örmum frá byrjun, þú varst alltaf að gantast og segja frá og þannig var það fram á síðasta dag. Ég kallaði þig alltaf Ólaf en þú baðst mig um að kalla þig Óla. Annars fannst þér eins og ég væri að skamma þig. Ég dáðist oft að hvað þú varst skapgóður, það var sama hvort einhver var pirraður í kringum þig, þér tókst alltaf að halda ró þinni. Þetta er eitthvað sem ég reyni að kenna börnunum mín- um, barnabörnunum þínum. Þegar það kom í ljós að Marta Líf okkar væri eins einstök og hún er þá tókuð þið Álfheiður strax vel í það að vera stuðn- ingsfjölskylda hennar. Þær eru ófáar stundirnar sem hún hefur átt með ykkur. Hún elskaði að fara til ykkar og hefði örugglega viljað búa þar á stundum. Þú varst alltaf duglegur að leika við hana, fara með hana í bíltúra, skoða merka staði á Suðurnesj- unum og auðvitað að kaupa ís. Þetta er eitthvað sem hún á allt- af eftir að búa að og hún man þetta svo sannarlega ennþá. Eldey Gígja elskaði að búa til skyrgraut með þér þegar hún var hjá ykkur en það er besti grautur sem hún hefur fengið og Skarphéðinn okkar er enn að tala um bátana sem hann smíð- aði með þér úti í bílskúr og þið áttuð bara eftir að mála einn þeirra. Þetta eru allt minningar sem þau eiga um þig vegna þess hve þú varst iðinn við að gera skemmtilega hluti með þeim og vildir að þeim liði vel. Elsku tengdapabbi, takk fyrir að vera alltaf til staðar þegar á þurfti að halda. Þú varst klett- urinn í fjölskyldunni. Við skul- um passa vel upp á Álfheiði okk- ar. Farðu í friði og ég bið að heilsa strákunum þínum. Kristbjörg Marta Jónsdóttir. Elsku Óli afi. Þú og Álfa amma voruð alltaf svo góð við mig. Þið voruð stuðningsfjölskyldan mín í 10 ár og voruð amma mín og afi minn í rúm 15 ár. Þið voruð svo þol- inmóð. Ef ég vildi heyra sama lagið aftur og aftur þá var það í lagi. Ef ég vildi skoða sömu staðina aftur og aftur þá var það í lagi. Takk fyrir að fara með mig í Skessuhelli. Takk fyrir að fara með mig í sund. Takk fyrir að sýna mér landnámsdýrin. Takk fyrir að fara með mig út um allt í heimsóknir til vina ykkar. Takk fyrir að syngja fyr- ir mig. Takk fyrir ferðirnar um Suðurnesin og sérstaklega í Garðinn. Takk fyrir sögurnar ykkar og sönginn. Takk fyrir að fara með mig til Bandaríkjanna. Takk fyrir að koma með mér a sumarhátíðirnar hjá CP-félag- inu. Takk fyrir að mæta með mér á lokaböllin í Reykjadal. Takk fyrir að hafa tekið mér eins og ég er. Takk fyrir að gera líf mitt betra. Takk fyrir að hafa verið amma mín og afi. Takk fyrir allar minningarnar, ég gleymi ykkur aldrei. Ég mun passa ömmu og vera þolinmóð við hana eins og þið voruð við mig. Afi söng fyrir mig Klappa saman lófunum en breytti loka- línunni, hann vildi ekki tína egg úr spóunum: Klappa saman lófunum, reka féð úr móunum, tölta á eftir tófunum, og telja þær á rófunum. Marta Líf Bjarnardóttir. Sagt er að fólk í hrútsmerk- inu sé einlægt, fljótfært, hvat- víst, líflegt, sjálfstætt, stórtækt og uppátækjasamt. Óli var í því merki og með þetta allt. Óli var þrettán árum og viku eldri en ég, ef hann átti afmæli á sunnudegi þá átti ég afmæli næsta sunnudag á eftir. Alltaf hringdi hann í mig og óskaði mér til hamingju með afmæl- isdaginn minn. Líklega hef ég verið um tveggja ára aldur og hann fimm- tán þegar hann fór á Núp í skóla og á sumrin á sjóinn. Óli kom lítið sem ekkert heim eftir það. Hann byrjaði snemma að búa. Sóst var eftir nafna í draumi þegar mamma gekk með Óla, en ekkert varð af þeirri nafngift. Fimm börnum seinna kom að Birni, ég ber nafnið sem Óli átti að bera og svo kom hann með Björn. Við vorum systkinin sem átt- um bara stráka, sex samtals . Sá yngsti af þeim fæddist á Selfossi á mjög snjóþungum degi í jan- úarmánuði svo vart var fært á milli húsa. Óli og Álfheiður komu keyrandi úr Njarðvík til að heimsækja mig í öllum snjón- um og færðu mér hlýjan og fal- legan útigalla á Tóta litla. Óli og Tóti voru víkingar, líkir í háttum, ljósir yfirlitum, hávær- ir, með góða matarlyst og miklir vinir. Eitt sinn bað strákurinn frænda sinn um að keyra sig og dömu, í Corvettunni, á tíunda- bekkjar lokaball. Óli var sko til. Allar limósíur féllu í skuggann þegar Corvettunni var straujað inn eftir Stapaplaninu með al- vöru kaggahljóði. „Hvað er að frétta af Tóta?“ spurði Óli daginn áður en hann kvaddi. Tóti er í námi í Lundi og verður fjarri þegar Óli verður jarðaður. Óli og Álfa komu oft til okkar Gunna og eftir að kaffið og kex- ið var komið á borðið byrjaði spjallið. Við systkinin héldum orðinu en þegar athyglin fór í að dýfa kexinu í kaffið hægðist á okkur og makarnir tóku við. Þá rifjuðu þau upp dagana í Off- íseraklúbbnum, en þar unnu þau saman um tíma. Eitt sinn hittumst við Óli hjá mömmu. Ég hafði verið að kaupa innréttingu í eldhúsið og ætlaði ég að drífa mig heim til að rífa þá gömlu niður. Þá sagði hann: „Hvernig ferðu að með vatnið?“ Með þessum orðum var hann komin í heilsdags hjálpar- starf. Þarna var gott að eiga stóra bróður. Allra síðustu daga hitti ég hann á hverjum degi. Fór í kaffitímanum yfir í næsta hús á spítalann. Óli hafði beðið mig um smá greiða daginn áður og ég kom snemma daginn eftir til að segja honum að hann hefði gengið upp. Óli kvaddi stuttu eftir að ég kom á spítalann. Nú þegar hef skrifað þetta er ég að hlusta á Everybody Hurts með R.E.M. og hugsa til Óla og Álfheiðar þegar þau misstu drengina sína, þá þurftu þau að halda áfram. „Hold On“ eins og segir í laginu. Birna. Óli Þórðar ólst upp suður í Garði, þar sem úthafsaldan lem- ur ströndina nótt sem nýtan dag. Ungir menn þar eyddu flestum stundum við leik í fjöru- borðinu og áttu sér flestir þann draum að komast á sjóinn, helst fyrir fermingaraldur jafnvel á árabátum ef ekki var annað í boði. Karlmennskan efldist við keipinn og löngunina til að verða fullgildur sjómaður, annað stóð aldrei til. Já, sjómennskan „meitlaði svip og stældi kjark“. Óli var hraustmenni til lík- ama og sálar, þó aldrei sæist hann reyna að neyta aflsmunar eða að troða einhverjum um tær, enda naut hann trausts samferðamanna sinna. Hann kynntist ungur að árum æsku- ást sinni Álfheiði Skarphéðins- dóttur úr Njarðvíkum og þar bjuggu þau alla sína búskapar- tíð. Við sem þetta skrifum byggðum okkur öll hús við sömu götuna ásamt Óla og Álfheiði á sjöunda áratugnum og hafa góð vináttutengsl verið með okkur öllum síðan. Hann var ekki að- eins sjómaður, heldur skrapp hann stundum í land og lauk þá námi í húsasmíði og pípulögn- um, ásamt námi í vélstjórn, sem hann nýtti þegar hann var til sjós, enda var hann í innsta eðli sínu sjómaður og unni sjó- mennsku alla tíð. Þau hjónin eignuðust fjóra mannvænlega drengi, sem allir drógu dám af foreldrum sínum, hver á sinn hátt. En þó að Óli hafi alltaf hrifist af sjónum og því sem þar að laut þá fór Ægir konungur mjög óblíðum höndum um þau hjónin þegar hann hrifs- aði til sín bæði elsta soninn, Skarphéðin, og þann yngsta, Ástmar, báða á besta aldri og má nærri geta hvort slíkur harmur og áfall hefur ekki sorf- ið inn að kviku þeirra hjóna. En aldrei heyrðist eitt einasta gremju- eða reiðiorð af vörum þeirra, þá var reyndar eitthvað sem nú kallast áfallahjálp ekk- ert í orðabókinni. Þau unnu bara úr þessu, hvort á sinn hátt að því er okkur virtist. Óli bjó sér til hjúp sem fólst í glettni og stríðni og oft tókst honum að láta blóð viðmælandans renna örar og þá var tilganginum náð, ekki gert til að særa neinn, enda gerði hann oftast mest grín að sjálfum sér og kom öðrum til að brosa. Við vinir og nágrannar þeirra höfum oft hugsað sem svo, úr hverju er svona fólk byggt, sem hefur slíkar taugar og sýnir slíkt æðruleysi í öllu því mikla mótlæti sem þau hjónin hafa mætt á lífsleiðinni? Það má kannski segja um lífshlaup þeirra nú, þegar Óli hefur kvatt þetta jarðlíf eftir hetjulega bar- áttu við illvígan sjúkdóm og Álf- heiður þrotin að kröftum og heilsu, komin á sjúkrastofnun: „Bognuðu aldrei, en brotnuðu í bylnum stóra seinast“. Við vin- irnir drúpum höfði í minningu góðs granna og vinar. Við vottum eftirlifandi sonum þeirra Þórði og Birni Árna ásamt fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð og biðjum al- mættið að vernda þau öll um ókomin ár. Sigríður (Sigga) og Þór- hallur (Halli), Svala og Hilmar, Eygló og Ragn- ar, Þóra Harðar. Ólafur Eiríkur Þórðarson ✝ Helga Guð-björg Brynj- ólfsdóttir fæddist 1. október 1926 að Steinsstöðum í Öxnadal. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 6. mars 2018. Foreldrar henn- ar voru Laufey Sumarrós Jóhann- esdóttir, f. 4. maí 1892, d. 15. janúar 1950, og Brynjólfur Sveinsson, f. 17. júní 1888, d. 25. júlí 1980. Systkini hennar eru Stefanía, f. 1911, d. 2007, Sveinbjörg, f. 1912, d. 1976, Árni, f. 1913, d. 1932, Ingimar, f. 1914, d. 1999, Anna, f. 1916, d. 2007, Geir- þrúður, f. 1918, d. 2009, Björn, f. 1920, d. 2001, Gunnar, f. 1921, d. 1984, Þórdís, f. 1922, d. 2009, Sveinn, f. 1923, d. 1985, Helga Guðbjörg, f. 1925, d. 1926, Krist- ín, f. 1928, Árni, f. 1932, d. 2005, Þorbjörg, f. 1935, d. 1976. Gunnlaugsdóttir, f. 3. júlí 1948, og Gunnar Rafn, f. 12. júní 1949, maki Fanney Kristbjarnardóttir, f. 24. september 1949. Barnabörnin eru 29, barna- barnabörnin eru 58 og langa- langömmubörnin þrjú. Árið 1936 fluttust foreldrar hennar ásamt börnum að Efsta- landskoti, þar sem Helga bjó til fullorðinsára. Hún fluttist síðan til Akureyrar, þar sem hún réði sig í vist hjá Páli Lineberg og Þórhildi konu hans, en fór aftur heim til að annast heimilið í veik- indum móður sinnar og flutti síð- an aftur til Akureyrar eftir lát hennar. Hún var mikil stoð og stytta Þorbjargar systur sinnar sem fékk lömunarveiki sem barn og var fötluð upp frá því. Helga vann ýmis störf um æv- ina ásamt því að sinna barnaupp- eldi og húsmóðurstörfum. Hún vann á kvöldvöktum hjá Verk- smiðjum SÍS, síðan hjá Niður- suðuverksmiðju K. Jónssonar en lengst af vann hún sem skoð- unarkona hjá Útgerðarfélagi Akureyringa. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 22. mars 2018, klukkan 13.30. Árið 1950 giftist Helga Einari Egg- erz Eggertssyni húsasmíðameistara, f. á Akureyri 9. ágúst 1925, d. 13. nóvember 1985. Börn þeirra eru Laufey Brynja, f. 22. desember 1947, maki Guðmundur Karl Sigurðsson, f. 20. febrúar 1945, Hulda f. 9. september 1949, maki Jóhann Steinar Jónsson, f. 19. nóvember 1949, Hallfríður Lilja, f. 1. febrúar 1951, maki Jónas Sigurjónsson, f. 30. júlí 1949, Gunnar, f. 28. janúar 1954, maki Pála Svanhildur Geirsdóttir, f. 24. febrúar 1958, Birgir f. 11. ágúst 1955, maki Ragnheiður Stein- grímsdóttir, f. 2. nóvember 1953, Anna, f. 30. september 1964, maki Arinbjörn Kúld, f. 29. desember 1960. Synir Einars eru Hreinn, f. 19. ágúst 1945, maki Sigríður Amma Helga var einstök manneskja. Hún lifði lífinu af æðruleysi og smitandi lífsgleði. Einstaklega hjartahlý, hjálpsöm og skemmtileg. Hún var algjör húmoristi, gerði mest grín að sjálfri sér en sjaldan að öðrum. Hún var ákveðin og vissi hvað hún vildi. Hún vildi hafa fallegt og snyrtilegt í kringum sig og vildi sjálf vera vel til fara. Hún var mikil barnagæla og alltaf til í að leika sér við börnin. Hún átti stórt pláss í hjörtum okkar allra, ömmubarna og langömmubarna. Hún ljómaði þegar hún hélt á langalangömmubarninu sínu yngstu Helgu síðasta sumar. Þegar amma Helga varð 91 árs í haust bakaði hún sjálf afmælis- tertur og bauð okkur í kaffi. Þegar ég var krakki reyndum við stundum að fá hana og Dúllu systur hennar til að taka út úr sér fölsku tennurnar, þegar þær létu það eftir okkur grettu þær sig þannig að við veltumst um af hlátri. Þegar ég var unglingur var ég að vinna með ömmu tvö sumur á frystihúsi ÚA þar sem hún vann í áratugi. Þegar ég var orðin fullorðin hjálpaði hún mér oft að þrífa eftir flutninga og ferð- aðist með mér bæði innan lands og utan. Hún átti ótrúlega auð- velt með að slaka á og fá sér kríu. Sofnaði í nokkrar mínútur, oft sitjandi í stól, og vildi sjaldnast viðurkenna að hún hefði sofnað. Amma var einstaklega skap- góð og sagði alltaf að það væri hægt að leysa öll mál. Hún var klár kona og með allt á hreinu fram að síðasta andardrætti. Því miður var ég stödd hinum megin á hnettinum en náði að kveðja hana með nútímatækni á Face- time, sem við höfðum stundum notað saman til að spjalla við barnabörnin hennar sem bjuggu erlendis. Í huganum er blanda af sökn- uði og þakklæti. Það eru forrétt- indi að fá að eiga ömmu sína í hálfa öld, ömmu sem var líka vin- kona og fyrirmynd. Elsku amma Helga, ég þakka þér fyrir ljúfa vináttu, alla hjálp- ina, hláturinn og hlýjuna. Helga Björg Jónasardóttir. Nú vaki ég alein og komið er kvöld og kyrrð yfir heimili mitt. Ég skrifa á himinsins heiðríkju tjöld í huganum nafnið þitt. (Friðrik Hansen) Glaðlynd, hjálpsöm, góð vin- kona og mér meira sem systir en móðursystir. Þannig man ég Helgu, en hún var tólfta í röð fimmtán systkina. Ég mun hafa verið fimm eða sex ára þegar ég var af einhverjum ástæðum send ásamt eldri bróð- ur mínum til ömmu og afa í Efstalandskoti. Helga var þá enn í föðurhúsum, og sagði hún mér síðar að ég hefði verið haldin mikilli heimþrá, en með glað- værð sinni og léttri lund tókst henni að fá stelpu til að gleyma öllu óyndi. Frá því ég var unglingur hef- ur vinátta okkar Helgu vaxið og dafnað, og margs er að minnast, enda samveran mikil og sérstak- lega meðan Tobba systir hennar bjó hjá henni. Ógleymanlegar stundir eru óteljandi, einkum úr Strandgötunni og Hjalteyrar- götunni. Sumarbústaðaferðirnar sem farnar voru, og meðan Einars manns Helgu naut við var hann bílstjóri og sá um liðið, en eftir hans daga tók minn maður við því embætti. Lífið hennar Helgu var ekki alltaf auðvelt en með- fætt glaðlyndi leiddi hana gegn- um alla erfiðleika. Á síðari árum voru gönguferðir og búðaráp í uppáhaldi hjá okkur frænkun- um, en Helga elskaði að kaupa sér falleg föt, enda alltaf klædd samkvæmt nýjustu tísku. Að lokum, takk fyrir samveru liðinna áratuga, elsku Helga. Þú sannaðir að gleðin felst ekki í hlutum, hún býr í okkur sjálfum. Við Guðjón sendum öllum ást- vinum Helgu kærleikskveðjur og biðjum Guð að vaka yfir þeim. Erla Halls. Helga Guðbjörg Brynjólfsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.