Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 91

Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 91
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 7ATVINNULÍF Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum „Það sem ekki hefur breyst og mun ekki breytast í auglýsingaheiminum er að það er hugmyndin sem skiptir mestu máli,“ segir Guðmundur Páls- son, framkvæmdastjóri Pipars/ TBWA. Helsta áskorunin í markaðsstarfi er hans sögn að fanga athygli mark- hópsins enda séu fjölmiðlaflóran fjöl- breytt. „Þegar ég hóf störf á auglýs- ingastofu nægði að auglýsa í Morgunblaðinu og á RÚV. Svo bætt- ustu samfélagsmiðlarnir við hefð- bundna miðla sem eru þónokkrir, og í dag hefur sú sérfræðiþekking sem þarf að hafa á samfélagsmiðlum og netmarkaðssetningu dýpkað til muna,“ segir Guðmundur. Hver miðill með sínu sniði „Ef nýta á samfélagsmiðla þarf að finna mismunandi útfærslu af sömu herferðinni því hver miðill er með sínu sniði, hvort sem um ræðir dag- blöð, sjónvarp og útvarp eða muninn á Facebook, Instagram og YouTube. Sama auglýsingin getur ekki birst óbreytt á öllum þessum miðlum. Vandinn hefur verið sá að stór fyr- irtæki sem eiga í viðskiptum um all- an heim hafa ráðið til sín erlenda sér- fræðinga. Af þeim sökum hefur þekking á samfélagsmiðlum ekki byggst upp jafn hratt hér og erlend- is,“ segir hann. Guðmundur segir að fyrirtæki sem starfræki „innanhúss auglýs- ingastofur“ séu í meira mæli farin að leita til auglýsingastofa. „Það er orð- ið mun flóknara að ná til markhópa og því þarf stærri hóp með fjöl- breyttari sérfræðiþekkingu til að ná árangri. Tveggja til fimm manna inn- anhústeymi eiga erfitt með það og þau eiga það til að einangrast innan veggja fyrirtækisins. Hjá auglýs- ingastofum eru mögulega tíu í teym- inu sem sinnir fyrirtækinu og fleiri geta lagt hönd á plóg þegar álagið er mikið fyrir sambærilegt fé og þegar hafður er nokkur fjöldi á launaskrá.“ Agnar Le’Macks, framkvæmda- stjóri Jónsson & Le’Macks, segir að áskoranir og tækifærin felist í stöð- ugum breytingum á umhverfi miðla og stafrænna leiða. „Við erum ná- tengd fjölmiðlaheiminum og fylgjum honum í gegnum þær breytingar sem eru að gerast. Þessum breyt- ingum fylgja gríðarleg tækifæri fyrir samskiptaiðnaðinn, ekki síst þann hluta hans sem snýr að beinum sam- skiptum við fólk. Í raun og því miður eru fjölmiðlar á vissan hátt að verða okkur minna og minna mikilvægir.“ Vítt sjónarhorn og heildarsýn Hallur A. Baldursson, starfandi stjórnarformaður Ennemm, segir að starfsmenn auglýsingastofunnar finni fyrir þungri undiröldu hjá við- skiptavinum hvað varðar þörf fyrir vítt sjónarhorn og heildarsýn. „Þrátt fyrir háværa og fyrirferðarmikla umræðu meðal markaðsfólks um þrengri fókus sem snýst oft að mestu leyti um netið og samfélagsmiðlana. Þessi undiralda tónar vel við áhuga- verðan fyrirlestur Peters Fields sem hann flutti á Ímark-deginum fyrr í mánuðinum og fjallaði um mikilvægi þess að skipta markaðs- fjármagninu skynsamlega á milli markaðs- aðgerða sem miða annars vegar að skammtíma- og hins vegar lang- tímamarkmiðum.“ Hann undirstrik- aði einnig mikilvægi þess að sam- hæfa netmiðlana – sérstaklega samfélagsmiðlana – að hefðbundnu miðlaflórunni og um leið að brýnt væri að tryggja skilning meðal markaðsfólks á áhrifamætti hefð- bundnu miðlanna. Guðmundur segir, spurður hvort það sé orðið dýrara að ná til fólks, að verkefnið sé orðið flóknara. „Við störfum þéttar með okkar viðskipta- vinum, veitum meiri ráðgjöf um það hvernig eigi að ná til markhópa, hvernig eigi að byggja stefnumótun vörumerkja og hvernig talað er á mismunandi miðlum. Að sama skapi framleiðum við meira efni en áður.“ Að hans sögn er staða dagblaða enn sterk, einkum hjá eldri mark- hópum, þrátt fyrir að lesturinn hafi aðeins gefið eftir á undanförnum ár- um. „Staðan er einstök hjá dag- blöðum á Íslandi. Blöðin eru lesin meira en þekkist víða annars staðar. Auk þess stendur sjónvarp og útvarp enn traustum fótum. Þróunin í sjón- varpi verður með þeim hætti að mínu mati að stórum og dýrum sjónvarps- auglýsingum mun fækka og í staðinn verða minni og snarpari herferðir.“ Guðmundur telur að eftirspurn eftir hefðbundnum auglýsingum haldist stöðug til lengri tíma litið en að stafrænt markaðsefni fari vax- andi. Breytt landslag Hallur nefnir fjögur dæmi um það hvernig markaðurinn hafi breyst á umliðnum árum. Í fyrsta lagi sé ný tækni og miðlar sem tengjast netinu stöðugt að kalla fram breytingar í miðlablöndu (e. media mix) herferða. Í öðru lagi séu það nýir keppinaut- ar sem komi á markaðinn. „Einföld breyting eins og koma Costco til landsins kallar samstundis á breytt viðhorf stjórnenda til markaðsmála, í þessu tilfelli sérstaklega hjá smá- söluverslunum,“ segir hann. Í þriðja lagi hafi eftirköst hrunsins haft mikil áhrif á markaðsmál vítt og breitt í viðskiptalífinu síðustu ár sem tengist meðal annars endur- fjármögnun og endurskipulagningu eigendahópa stærri fyrirtækja. Í fjórða lagi hafi ný þekking stöð- ug áhrif til breytinga og vísar Hall- ur til manna eins og Peter Field og Byron Sharp og rannsókna þeirra á raunverulegum markaðsgögnum (e. evidence based research) sem und- irstrika mikilvægi jafnvægis milli langtíma og skammtíma markaðs- aðgerða. Guðmundur segir að samsetning viðskiptavina hafi breyst á þá vegu að ferðaþjónustufyrirtækjum hafi fjölgað á undanförnum tveimur til fjórum árum. „Ferðaþjónustu- fyrirtæki hafa vaxið mikið samhliða vexti í ferðaþjónustu. Okkur hefur tekist að byggja upp góða og víð- feðma þekkingu á málaflokknum. Auk þekkingar á rekstri og sölu vef- verslana. Við önnumst meðal annars sölu fyrir Gray Line á netinu.“ Agnar segir að samsetning við- skiptavina Jónsson & Lemack’s ekki hafa breyst mikið á allra síðustu ár- um. „Ef við förum tíu ár aftur í tím- ann þá hefur hún breyst mikið. Félög sem voru áður stórir auglýs- endur hafa dregið mikið saman en á sama tíma hefur þörf á fjölbreyttari samskiptum aukist mikið. Mjög stór hluti okkar vinnu í dag hefði alls ekki flokkast sem verkefni auglýs- ingastofu fyrir 10-15 árum.“ Hallur segir að reksturinn bygg- ist á langtímasamstarfi við auglýs- endur og er samsetning við- skiptavinahópsins því tiltölulega stöðug. „Viðskiptavinir okkar eru misjafnlega virkir frá einu tímabili til annars en þeir eru yfirleitt í harðri samkeppni á sínum mörk- uðum og segja má að þungi starf- seminnar hjá okkur ráðist hverju sinni af því hvar harðast er barist. Hlutskipti okkar er því að vera stöð- ugt í eldlínunni.“ Hugmyndin ávallt veigamest Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Flóknara er orðið að fanga athygli markhópa. Af þeim sökum starfa auglýs- ingastofur nú nánar með viðskiptavinum og veita þeim meiri ráðgjöf. Morgunblaðið/Eva Björk Á hverju ári keppa auglýsingastofur um hver þeirra hreppir auglýsingaverðlaunin Lúðurinn á ÍMARK-deginum. Hallur A. Baldursson Guðmundur Pálsson Agnar Tryggvi Le’macks Allt um sjávarútveg
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.