Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 101
FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
Körfuboltinn Benedikt fer yfir stöðuna í úrslitakeppni karla. Úr hverju er ofurhetjan frá Hafnarfirði gerð?
Stemning hjá Tindastóli gegn andlausum Grindvíkingum. Létt hjá KR. Kappið ber fegurðina ofurliði. 4
Íþróttir
mbl.is
isstað hafa verið fyrsta flokks enda
var hann byggður sérstaklega upp
til þess að halda Vetrarólympíuleik-
ana og vetrarólympíumótið en kröf-
ur Alþjóðaólympíunefndarinnar til
aðstæðna á mótum eru miklar.
„Það var frábært að taka þátt.“
Yfir 20 gráðu hiti
Aðstaðan var svo sannarlega al-
veg frábær. Eina sem setti strik í
reikninginn var að um tíma var
mjög heitt í veðri. Hitinn fór í 21
gráðu við rásmarkið þegar stór-
svigskeppnin fór fram. „Ég var al-
veg að stikna úr hita. Það voru svo-
lítið aðrar aðstæður en þegar
Vetrarólympíuleikarnir fóru fram á
sama stað í febrúar. Þá var tölu-
vert frost og vindkæling til við-
bótar,“ sagði Hilmar Snær. For-
svarsmenn mótsins voru greinilega
vel undir það búnir að hitinn gæti
rokið upp. Til þess að draga úr
þiðnun snjósins var salti mokað
saman við snjóinn í brekkunum.
„Ástandið var verst fyrstu daga
mótsins. Þegar á leið dró úr hit-
anum. Einn daginn voru brekk-
urnar lokaðar vegna hlýinda, þá
var snjórinn eins súpa. Eftir þetta
frysti hressilega á nóttunni sem
varð þess valdandi að brekkurnar
voru eitt klakastykki og færið þess
vegna glerhart.“
Brekkurnar voru frábærar
Þrátt fyrir sveiflur í veðrinu
fengu keppendur að æfa á milli
þess sem þeir kepptu. Þeir þekktu
því aðstæður ágætlega þegar röðin
kom að þeim í keppninni. „Að-
stæður til æfinga voru fínar fyrir
utan þennan eina dag þegar snjór-
inn leit út eins og súpa. Brekk-
urnar voru frábærar og ég náði
fyrir vikið frábærum æfingum.
Eins var mjög vel hugsað um mig á
allan hátt. Ég hef ekki yfir neinu
að kvarta.“
Hilmar Snær segir aðstæðurnar
einar og sér hafa gert það að verk-
um að mikil áskorun hafi fylgt því
að keppa en sú staðreynd hafi
reyndar bara gert keppnina
skemmtilegri fyrir hann. „Keppn-
isaðstæðurnar voru frábærar og
þær langbestu sem ég hef kynnst
til þessa,“ sagði Hilmar Snær en
með þátttökunni rættist gamall
draumur pilts.
Vetrarleikunum lauk á laug-
ardaginn og daginn eftir héldu
Hilmar Snær, þjálfarar hans,
Georg Hjörleifsson og Einar
Bjarnason, auk Ólafs Magnússonar,
framkvæmdastjóra Íþrótta-
sambands fatlaðra, heim á leið.
Ferðalagið var langt og strangt.
Leyfði sér ekki að sofa út
„Ég kom heim á aðfaranótt
þriðjudagsins og fór í skólann
morguninn eftir,“ sagði Hilmar
Snær sem er að ljúka öðrum vetri í
Verzlunarskóla Íslands. Spurður
hvort ekki hafi verið freistandi að
sofa út á þriðjudagsmorguninn
svaraði hann að það hefði ekki
komið til greina. „Ég gat ekki leyft
mér það,“ sagði Hilmar Snær sem
ætlar þó að taka sér frí frá æfing-
um þessa vikuna. „Ég hef æfingar
á nýjan leik í næstu viku eftir stutt
frí.“
Hilmar Snær stefnir á þátttöku á
heimsmeistaramóti fatlaðra á skíð-
um sem fram fer í Sviss eftir ár.
Mjög ánægður með árangurinn
- Hilmar Snær kominn heim frá Pyeongchang þar sem hann varð í 13. sæti í svigi og 20. sæti í
stórsvigi - Fyrsta flokks aðstæður þrátt fyrir mikinn hita - Ætlar sér líka á næstu leika árið 2022
Ljósmynd/ifsport
Pyeongchang Hilmar Snær Örvarsson á fullri ferð niður brekkuna á Vetrarólympíumótinu í Suður-Kóreu.
SKÍÐI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Þetta er mikil upplifun og var
mikið stærri viðburður en ég hafði
reiknað með,“ sagði skíðamaðurinn
Hilmar Snær Örvarsson sem er ný-
kominn heim eftir vel heppnaða för
og þátttöku á
Vetrarólympíu-
móti fatlaðra í
Pyeongchang í
Suður-Kóreu.
„Keppendur
voru mjög marg-
ir og alveg ótrú-
legur fjöldi af
sjálfboðaliðum að
vinna í kringum
mótið sem er
sannarlega það
langstærsta sem ég hef nokkurn
tímann tekið þátt í,“ sagði hinn 17
ára gamli ólympíufari í sjöunda
himni með þátttökuna. Hann er
staðráðinn í endurtaka leikinn að
fjórum árum liðnum.
Hilmar Snær var eini íslenski
keppandinn á mótinu. Hann hafnaði
í 13. sæti í svigi af 40 keppendum í
standandi flokki hreyfihamlaðra,
LW2, og hreppti 20. sæti í stór-
svigi. „Ég er mjög ánægður með
árangurinn. Fyrir utan að ég gerði
lítils háttar mistök í fyrri ferðinni í
sviginu, seinni keppnisgreininni
minni á laugardaginn. Annars er ég
mjög sáttur við mig,“ sagði Hilmar
Snær sem var að taka þátt í sínu
fyrsta stórmóti með stóru essi á
ferlinum. Hann er jafnframt yngsti
keppandi sem Ísland hefur sent á
Vetrarólympíumót fatlaðra.
Hilmar segir aðstæður á keppn-
Hilmar Snær
Örvarsson.
Í SANTA CLARA
Anna Marsibil Clausen
annamarsy@mbl.is
Hann var nokkuð rigningarlegur,
himinninn yfir knattspyrnuvelli San
Jose-háskólans í Sílíkondal Kaliforníu
þegar íslenska karlalandsliðið mætti í
gær til æfingar fyrir yfirvofandi vin-
áttuleik sinn gegn Mexíkó. Öllu bjart-
ara var yfir Kolbeini Sigþórssyni.
Hann er allur að koma til eftir lang-
varandi hnjávandræði og eygir nú
HM drauminn.
„Meiðslin sem eru búin að halda
mér frá í tvö ár, þau eru mjög góð og
ég hef ekki fundið fyrir þeim í þrjá
fjóra mánuði,“ sagði Kolbeinn við
Morgunblaðið fyrir æfinguna. Hann
spilaði sinn fyrsta leik, eftir 559 daga
fjarveru, með varaliði Nantes fyrir
viku, en ekki fór betur en svo að hann
slasaðist á nára. Hann vill þó ekki
meina að nárinn muni halda honum
frá HM.
„Það er ekki stórmál og bara fylgir
því að vera svona lengi frá,“ sagði
hann. „Ég finn að ég er andlega á
mjög góðum stað, ferskur í lík-
amanum, ferskur í hausnum og bara
klár í að byrja að spila aftur fyrir
landsliðið.“
Nokkuð ólíklegt er að af því verði í
þessari ferð. Landsliðið mætir
Mexíkó á föstudag og Perú þriðju-
daginn 27. mars en Heimir Hall-
grímsson telur ekki ráðlegt að spila
Kolbeini út að sinni. Kolbeinn sé eftir
allt rétt að byrja að feta sig aftur inn
á völlinn og mikill munur sé á að spila
leik með varaliði og landsliði.
Erum að meta stöðuna
„Það væri óvarlegt að fara að spila
honum í jafnmiklum hraðaleik, þar
sem allir eru að sanna sig,“ sagði
Heimir.
Vera Kolbeins í ferðinni snýst eftir
allt ekki um spilamennsku, að sögn
þjálfarans. Mikilvægara sé að meta á
honum stöðuna og fylgjast með hvort
hann komi til greina í lokahópinn fyr-
ir Rússland. Enn sem komið er sé
staðan ágæt.
„Hann er svona smá að vaxa inn á
æfingarnar, vera meira og meira
með,“ sagði Heimir. „Svo sjáum við til
hvað framhaldið verður.“
En eins og áður segir er Kolbeinn
sjálfur mjög brattur og bjartsýnn á
að komast í hópinn.
„Það er æðislegt að vera kominn
aftur,“ sagði hann. „Ég finn ekki fyrir
pressu þegar ég spila með landslið-
inu. Mér líður bara vel og held að það
sé ástæðan fyrir því að mér hefur
gengið vel með því.“
Morgunblaðið/Eggert
Tilbúinn Kolbeinn Sigþórsson er
bjartsýnn á sína stöðu fyrir HM.
„Ég er á mjög góðum stað“
- Kolbeinn ánægður með stöðuna - Heimir reiknar ekki með að hann spili
ÍÞRÓTTIR