Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 106

Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 106
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 Útgefandi Árvakur Umsjón Jón Agnar Ólason Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@mbl.is, Jón Agnar Ólason jonagnar.is Auglýsingar Valur Smári Heimisson valursmari@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Haraldur Guðjónsson Elínrós Líndal elinros@mbl.is S igríður Mogensen er nýr sviðstjóri á Hugverkasviði Samtaka iðnaðarins. Fyrir þann tíma starfaði hún m.a. sem hagfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins og hagfræðingur á skrifstofu sérstaks saksóknara. Þá hefur Sig- ríður einnig starfað sem fréttamaður á Stöð 2 og blaðamaður á Viðskiptablaðinu. „Gífurleg tækifæri felast í því fyrir Ísland að byggja með markvissum aðgerðum upp öfl- ugan tækni- og hugverkaiðnað og efla nýsköp- un á öllum sviðum. Hér er nú þegar mikil gróska í nýsköpun en þó eru margvíslegar hindranir til staðar sem við þurfum að ryðja úr vegi. Við þurfum og viljum fá stjórnvöld í lið með okkur í þessa vegferð,“ segir Sigríður. Nýsköpunarlögin góð byrjun „Ríki um allan heim keppast við að laða til sín frumkvöðlastarfsemi og rannsóknir og þróun og við erum því miður ekki samkeppnishæf hvað þetta umhverfi varðar.“ Spurð um nýsköpunarlögin sem sett voru árið 2016 segir hún. „Lögin voru vissulega skref í rétta átt en við þurfum að gera enn bet- ur og setja markið hærra. Er þetta sér- staklega mikilvægt í ljósi þeirra öru tækni- breytinga sem við stöndum frammi fyrir. Aðgerðir sem miða að því að efla nýsköpun munu hafa úrslitaáhrif um það hvaða þjóðir skara fram úr eftir 5, 10 eða 20 ár. Fyrsta og mikilvægasta skrefið er að efla skattalega hvata vegna nýsköpunar og afnema þök á endurgreiðslur vegna rannsóknar og þróunar.“ Hálauna störf í landið Að mati Sigríðar er það efnahagsleg aðgerð og snýst ekki um ívilnanir til einstakra fyr- irtækja. „Þetta er einföld aðgerð í skattkerfinu sem mun skapa ríkissjóði tekjur til framtíðar, langt umfram útgjöld, því hún hvetur fyr- irtæki til að stunda rannsóknir og þróun hér á landi og skapar því hálaunastörf og eykur framleiðni og verðmætasköpun til langs tíma. Lönd í kringum okkur bjóða mun hagstæðari skilyrði fyrir fyrirtæki sem stunda rannsóknir og þróun og við höfum því miður séð á eftir slíkum verkefnum úr landi. Hvert fyrirtæki eða verkefni sem við sjáum á eftir er tap fyrir íslenskt samfélag. Stórátak þarf til að mark- mið Vísinda- og tækniráðs náist um að fjár- festing í rannsóknum og þróun nái 3% af landsframleiðslu árið 2024, en um 40 milljarða þarf til viðbótar á ársgrundvelli miðað við verðlag dagsins í dag. Þetta gerist ekki af sjálfu sér.“ Fjármögnunarumhverfið Fjármögnunarumhverfi frumkvöðla má efla til muna. Líkt og fram kom á Iðnþingi virðast mörg lífvænleg fyrirtæki eiga í erfiðleikum með fjármögnun. Sníða þarf vankanta af ákvæðum nýsköpunarlaganna sem snúa meðal annars að stærðarmörkum fyrirtækja sem geta nýtt sér skattaafslátt við fjármögnun. Ríkið leggur einnig nú þegar mikla fjármuni til nýsköpunar, í gegnum hinar ýmsu stofnanir, og myndi ég vilja sjá að það færi fram skoðun og einföldun á kerfinu í heild sinni. Velta má upp þeirri spurningu hverju styrkjakerfið er og hefur skilað okkur og hvort bæta megi úr. Vert er að skoða þann möguleika að ríkið taki ekki beinar fjárfestingaákvarðanir heldur fjár- festi til að mynda samhliða fagfjárfestum og einkasjóðum í nýsköpunarverkefnum og sprotafyrirtækjum. Við þurfum einnig að grípa til aðgerða til að laða erlenda sérfræðinga hingað til lands. Gagnatengingar mikilvægar „Samtök iðnaðarins og Íslandsstofa vinna nú að því verkefni að koma á laggirnar upplýs- ingasíðu í því skyni en ýmislegt má einnig bæta í lagaumhverfinu, til dæmis hvað varðar dvalarleyfi, til að auðvelda fyrirtækjum að ráða til sín öfluga starfskrafta erlendis frá.“ Annað mikilvægt verkefni til framtíðar er að efla gagnatengingar til Íslands, bæta við streng og auka hraða. Mun gæði gagnateng- inga skipta sköpum fyrir þjóðina til langs tíma litið. Hugbúnaðarþróun, kvikmyndavinnsla og gagnaverastarfsemi eru dæmi um greinar sem eru háðar því að gagnatengingar séu eins og best verður á kosið og þarf að hlúa að þessum innviðum eins og öðrum,“ segir hún að lokum. Sprotar „Lönd í kringum okkur bjóða mun hagstæðari skilyrði fyrir fyrirtæki sem stunda rannsóknir og þróun og við höfum því miður séð á eftir slíkum verkefnum úr landi.“ Nýsköpun skapar gífurleg tækifæri Sigríður Mogensen segir nauð- synlegt að styðja við nýsköpun með öllum ráðum, um leið og mikilvægt sé að laða erlenda sérfræðinga hingað til lands. Samtök iðnaðarins voru þátttakendur í sýningunni Verk og vit sem fram fór í Laugardalshöll fyrir skömmu en samtökin eru meðal bakhjarla sýning- arinnar. Um 25.000 gestir komu á sýninguna og sýnir þessi mikli fjöldi að áhuginn er mikill meðal fagaðila og almennings á byggingariðnaði, mann- virkjagerð og skipulagsmálum. Alls tóku 120 sýn- endur þátt að þessu sinni og kynntu vörur sínar og þjónustu, en þetta var í fjórða sinn sem sýningin var haldin. Á myndinni eru talið frá vinstri, Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs, Sig- urður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, og Friðrik Á. Ólafs- son, viðskiptastjóri byggingariðnaðar á mann- virkjasviði SI. Samtök iðnaðarins tóku þátt í Verk og vit Fjölmennt var á fyrsta Framleiðsluþingi SI í Silf- urbergi í Hörpu. Á þinginu var efnt til umræðu um verðmæti íslenskrar framleiðslu, helstu tækifæri og áskoranir sem íslenskir framleiðendur standa frammi fyrir og hvað væri íslenskt. Á þinginu kom fram að á Íslandi er fjölbreyttur og umfangsmikill framleiðsluiðnaður sem skapar fjölda starfa og mikinn gjaldeyri. Íslensk framleiðsla er einn af burðarásum hagkerfisins þar sem mikilvæg verð- mæti verða til og skapa margvísleg margföldunar- áhrif. Sérstakur gestur þingsins var Jens Holst- Nielsen, sérfræðingur í alþjóðaviðskiptum hjá Dansk Industri sem gaf innsýn í hvað danskir framleiðendur hafa gert til að skapa vörum sínum sérstöðu innanlands og utan. Efnt var til pall- borðsumræðna með iðnaðarráðherra þar sem tæpt var á mörgum þeim málefnum sem skipta ís- lenskan framleiðsluiðnað mestu máli. Umræða um verðmæti íslenskrar framleiðslu Pallborð Tæpt var á mörgum þeim málefnum sem skipta íslenskan framleiðsluiðnað mestu máli.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.