Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 112

Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 112
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is G óðir innviðir eru nauðsyn- legir svo að fyrirtækin í landinu geti þrifist vel. Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV, segir að í röskan áratug hafi fjárfesting í upp- byggingu innviða verið með minnsta móti og brýnt sé að ráðast í fram- kvæmdir á ýmsum sviðum. Um þetta fjallaði hann í pallborðs- umræðum á Iðn- þingi fyrr í mán- uðinum. Sigurður segir vegasamgöngur gott dæmi og bendir á hversu miklu var áorkað á árunum 1991 til 2006 á höfuðborg- arsvæðinu og í nágrenni þess, en litlu eftir það og biðtími í kerfinu aukist verulega. „Ef við skoðum t.d. samgöngur á höf- uðborgarsvæðinu þá var lyft grett- istaki á þessu tímabili, s.s. með færslu Hringbrautar, mislægum gatnamótum við Skeiðarvog, tvöföld- un Ártúnsbrekku og mislægum gatnamótum við Höfðabakka, Suður- landsveg og upp í Grafarholt við Húsasmiðju, og áfram til norðurs með tvöföldun vegarins í gegnum Mosfellsbæ og byggingu Hvalfjarð- arganga,“ segir hann. Framkvæmdir sem hafa gefið góða raun „Framkvæmdirnar voru ekki minni á norður/suður-ás höfuðborgarsvæð- isins, með lagfæringum á gatnamót- um Miklubrautar og Reykjanes- brautar, mislægum gatnamótum við Stekkjarbakka, við Mjódd, Smára- lind, Arnarnesveg, Vífilsstaðaveg, Kaldárselsveg, Ásbraut og tvöföldun Reykjanesbrautar að stórum hluta. Allt var þetta afrekað á þessu fimm- tán ára tímabili, en undanfarin tíu ár hefur nær ekkert gerst.“ Segir Sigurður að sumir haldi þeim sjónarmiðum á lofti að ný um- ferðarmannvirki séu óþörf, og leysi engan vanda í samgöngum á höf- uðborgarsvæðinu eða annars staðar. „En þessu má svara með því að biðja fólk að hverfa aftur til ársins 1991 og minnast þess hvernig ástandið var þá. Ef sömu sjónarmið hefðu orðið ofan á fyrir rösklega aldarfjórðungi byggjum við í dag við ástand sem enginn myndi vilja.“ Hann bætir við að auk þess að liðka fyrir samgöngum um alla höf- uðborgina hafi þessar framkvæmdir greinlega fækkað slysum. „Á öllum þeim gatnamótum sem talin voru upp hér að framan voru árekstrar al- gengir, og oft um alvarleg slys að ræða og jafnvel banaslys. Með út- hugsuðum framkvæmdum á þessum slysapunktum var slysunum nær út- rýmt.“ Góðir hlutir gerast þar sem lagðir eru góðir vegir Góðar vegasamgöngur skipta at- vinnulífið miklu og segir Sigurður að fyrirtæki á landsbyggðinni standi frammi fyrir alvarlegum vanda vegna vega sem hafa fengið að grotna niður og ráða ekki við þá miklu aukningu umferðar sem orðið hefur á þjóðvegunum. Hann segir vissulega þörf á fleiri samgöngu- mannvirkjum í höfuðborginni en þar sé þó útlit fyrir að takist að halda yf- irborði gatna í sæmilegu horfi með átaki sem hófst á síðasta ári og verð- ur framhaldið á þessu.. Slæmir vegir torvelda vöruflutn- inga og fæla frá ferðamenn á meðan góðir vegir leyfa gott flæði vöru, starfsfólks og innlendra jafnt sem er- lendra ferðamanna. „Við sjáum það t.d. gerast með tvöföldun Reykjanes- brautarinnar og betri tengingum út frá höfuðborgarsvæðinu að búið er að stækka atvinnusvæðið og vaxandi fjöldi fólks sem getur búið í Reykja- nesbæ, Hveragerði eða uppi á Akra- nesi en unnið í Reykjavik – eða öfugt. Tvöföldun Reykjanesbrautarinnar hafði í reynd þau áhrif að stytta ferðalagið á milli Reykjavíkur og byggðanna úti á Reykjanesi og veg- urinn þar að auki orðinn mun örugg- ari, þó enn vanti herslumuninn sem drífa á í að ljúka.“ Sigurður minnir á að sagan sýni það glögglega að góðar samgöngur eru einn mikilvægasti áhrifaþátt- urinn hvað snýr að hagsæld þjóða. Þegar saga Íslands er skoðuð megi t.d. sjá hvernig bættar samgöngur innanlands og út í heim hafa skapað ný tækifæri og leiðir til tekjuöflunar. „Fyrir skemmstu las ég áhugaverða bók sem setti einmitt fram þá kenn- ingu að betri samgöngur væru það sem einkum skýrði það forskot sem Evrópa hafði fyrr á öldum á heims- hluta á borð við Afríku. Lönd Evrópu nutu góðs af því að þar mátti flytja vörur nokkuð greiðlega eftir ám sem liggja hér og þar um álfuna á meðan í Afríku voru sömu samgöngutæki- færin ekki til staðar og því ekki sömu möguleikarnir til viðskipta á milli fjarlægra svæða. Með þetta í huga gætum við rétt ímyndað okkur hvernig atvinnulífið væri á Íslandi ef enn þyrfti að ferðast á einbreiðum og holóttum vegum hringinn í kringum landið, og hvaða tækifæri fyrir minni tafir í umferðinni, atvinnuuppbygg- ingu, ferðamennsku og öryggi veg- farenda gætu verið fólgin í að gera enn betur en við gerum í dag.“ Atvinnulíf og samfélag reiða sig á innviðina Eftir tímabil mikilla framkvæmda seint á síðustu öld og fram á miðjan 10. áratug hefur vegakerfið tekið litlum framförum. Ófullnægjandi dreifikerfi raforku er farið að valda vandræðum. Morgunblaðið/Golli Smíði Úr safni, framkvæmdir við Hörpu. Góðir vegir, rétt eins og tónlistarhús, laða að gesti og styðja við ferðaþjónustu. Sigurður Ragnarsson Vegirnir eru ekki eini hluti innviðakerf- isins sem má bæta. Samtök iðnaðar- ins gáfu út ítarlega skýrslu seint á síðasta ári þar sem farið var yfir ástand innviða í landinu og framtíð- arhorfurnar skoðaðar. Komu ýmsar brotalamir í ljós, þar á meðal að orku- öryggi á landinu er ógnað vegna ófull- nægjandi rafdreifikerfis. „Það er eðlilegt að náttúran fái alla jafna að njóta vafans þegar kemur að framkvæmdum sem geta spillt útsýni og breytt ásýnd landsins, en engu að síður er ljóst að næg raforkufram- leiðsla og gott dreifikerfi er forsenda atvinnurekstrar og lífsgæða,“ segir Sigurður. „Þá er líka ljóst að ef dreif- ing orkunnar um landið væri betri þá væri virkjunarþörfin minni. Á svæðum eins og í Eyjafirði er nú svo komið að á álagstímum þarf að nota díselraf- stöðvar til þess að anna eftirspurn- inni. Íhaldssemin þegar kemur að því að hlífa landinu frekar en reisa línur hefur því gert það að verkum að spúa þarf díselreyk út í loftið í stórum stíl þegar hægt væri að tengjast end- urnýjanlegum og umhverfisvænum orkugjöfum ef bara mætti flytja orkuna betur á milli landshluta. Þess- ari íhaldssemi fylgja líka samfélags- legar afleiðingar, og hefur hún haft áhrif á orkuöryggi í ákveðnum lands- hlutum.“ Sigurður tiltekur líka samskiptin við útlönd sem mikilvæga innviði. Hann segir gott netsamband út í heim eitt- hvað sem íslenskt atvinnulíf geti ekki verið án, og hafi verðmætar nýjar at- vinnugreinar sprottið upp í kringum það að geta flutt gögn greiðlega til og frá Íslandi og nýta íslenskt rafmagn. Bent hefur verið á að huga verði að framkvæmdum áður en langt um líð- ur, endurnýja suma af þeim strengjum sem fyrir eru og leggja nýja. „Mikið er í húfi og sést kannski hvað best á því að ef við myndum ímynda okkur að netsambandið við heiminn slitnaði þá væru áhrifin sambærileg við að færa íslenskt atvinnulíf tuttugu ár aftur í tímann.“ Áhyggjur af orkumálum Nýsköpun Gagnaverin eru ný atvinnugrein sem reiðir sig á öruggar og hraðar tengingar við umheiminn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.