Breiðfirðingur - 01.04.1970, Blaðsíða 34
32
BREI8FIRÐINCUR
skuldum fram um 1870, En árið 1883 er hún laus úr
skuldum í sæmilegu standi og á þá í sjóði 372 krónur, sem
auðvitað eru gullkrónur.
Eins og áður er sagt hefur Múlakirkju verið þjónað af
Flateyjarklerkum alla tíð. Og prestana flesta er hægt að
nafngreina allt frá 1219. Alls eru þeir þrjátíu og sr. Þór-
arinn Þór hinn þrítugasti og um leið síðasti, því nú er
Flateyjarprestakall orðið sameinað Reykhólaprestakalli
með lögum 1970.
Prestar þessir hafa margir verið merkisklerkar og mætir
menn. Fara af þeim ýmsar sögur, sem hafa sumar geymzt
í munnmælum, en aðrar verið skráðar einkanlega í Sögu
Flateyjarhrepps, sem fræðasafnarinn Gísli Konráðsson
skrifaði síðasta aldarfjórðung ævinnar, sem hann dvaldi í
Flatey á vegum breiðfirzkra höfðingja.
í 24. kapítula í 4. þætti Sturlungasögu er getið um fyrsta
prestinn. En það var árið 1219, en hann bjó á Múla og hét
Oddleifur Jónsson.
Um hann er helzt til sagna, að ekki vildi hann taka á
móti Guðmundi góða Arasyni þegar hann baðst þar gist-
ingar við þriðja mann.
En sr. Oddleifi hefndist hryggilega fyrir þessa ógest-
risni við hinn góða biskup, því að nóttina fyrir Maríu-
messu þetta sama ár brann bærinn á Skálmarnesmúla til
kaldra kola og allt heimilisfólkið ásamt prestinum varð
því húsvillt líkt og nauðleitarmenn þeir, sem neitað var
um gistingu.
Þá var Árni Jónsson prestur á Múla frá 1590—1645
og hefur enginn þjónað þ,ar lengur, enda varð hann há-
aldraður og hélt embætti fram á tíðræðisaldur, lézt 95