Breiðfirðingur - 01.04.1970, Blaðsíða 35
BREIÐFIRÐINGUR
:«
ára að aldri. Hann tók tvisvar við embættinu og bjó í
Látrum, af því að hann var svo ósáttur við Finn Jónsson,
bróður sinn bónda í Flatey, og þeir heilsuðust aldrei ára-
tugum saman.
Sr. Árni Jónsson lærði í Hamborg og kom þaðan með
merkilega hluti t. d. sjónauka (kíki) og sigurverk (úr) og
líklega eins konar loftvog. Hann var sagður sjá fyrir veðra-
breytingar og ýmsa óorðna atburði og talinn rammgöldr-
óttur. Mátti helzt enginn óhlýðnast honum. Hann átti
mörg börn, og þar á meðal tvo sonu, sem hétu Sveinbjörn
og Snæbjörn og þóttu afbragð ungra manna við Breiðaf jörð.
Þeir óhlýðnuðust eitt sinn banni hans um að fara í róður,
lögðu af stað, er hann lagði sig hádegisdúr og drukknuðu
báðir í þeirri sjóferð.
Allt fram á þennan dag hafa nöfnin Sveinbjörn og Snæ-
björn verið algeng í ættum Breiðfirðinga og kemur það
til af því, hve bræðranna, sona prestsins var saknað og
látið heita eftir þeim.
Árið 1615 drukknuðu 80 manns við Breiðafjörð í einu
stórviðri, og var talið vegna þess, að ráðum sr. Árna hefði
ekki verið hlýtt.
En prestur þessi reyndi að ala á trú fólksins með því að
fara um allt mikilli dul og leynd. Hann var 17 ár prestur
í Tröllatungu í Strandasýslu, en kom aftur til Flateyjar-
þinga svo sem áður er sagt.
Kona hans hét Þórunn Þorsteinsdóttir og var frá Múla.
Sr. Árni andaðist 8. ágúst 1655.
Næstur sr. Árna var sr. Nikulás Guðmundsson og bjó
á Múla. Hann tók við embætti 1655. Hann var prestur í
Flateyjarþingum í 53 ár.