Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1978, Page 66

Breiðfirðingur - 01.04.1978, Page 66
64 BREIÐFIRÐINGUR helst aldrei skilja hana við sig á þessum viðkvæmu árum bernskunnar, enda var líf þeirra alla tíð svo samofið af kærleika og hlýju á báðar hliðar að fátítt mun. Og þær nutu þess að vera samvistum allt lífið, utan þess tíma er Ragna var í skóla og vann fyrir kostnaði þeim sem af skóladvöl hennar leiddi og fetaði þannig í fótspor móður sinnar á hennar yngri árum. Og enn er Önnu leitað og hún beðin um hjálp og nú er það skáldið Stefán frá Hvítadal, sem kominn er og biður hana að taka að sér heimilið og allan barna hópinn, meðan hann fylgir konu sinni á sjúkrahús, hann geti ekki sagt um hve langan tíma þetta taki, en hann mun ekki sjálfur koma heim fyrr en þau komi bæði hjónin aftur, ef allt gangi að óskum. Verði dvölin kannski nokkrar vikur eða meira. Anna tekur dót sitt saman og fer með skáldinu ásamt dóttur sinni. Fyrirvaralaust er hún tilbúin, lét aldrei standa á sér. Skáldið kom heim fyrir jólin með konu sína nokkuð vel hressa en honum fannst hún þurfa á hvíld og heimilishjálp að halda og bað Önnu að vera hjá sér vetrar- langt, sem hún gerði. Þau Anna og Stefán urðu miklir vinir, hann mat hana mikils, sá kosti hennar og hæfileika og hafði yndi að viðræðum við hana. Stefán orti nokkuð þennan vetur. Það hefur Ragna dóttir Önnu sagt mér, að hann hafi haft sér stofu í húsi sínu sem hann hélt til í, þegar hann orti, ekki máttu börnin koma þar inn, nema á þröskuldinn, þar inni var brennt reykelsi og lagði ilminn um allt. Skáldið lá aftur á bak í rúmi sínu þegar hann orti og raulaði alltaf það sama fyrir munni sér, það kallaði hann að „kliða“. Ragna sagði mér líka, að hann hefði verið sér mjög góður, alveg eins og sínum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.