Breiðfirðingur - 01.04.1987, Síða 50
48
BREIÐFIRÐINGUR
mennina og kolin eða brandinn upp á yfirborð. Lyftan var
rafdrifin. Caterpillar rafstöð, 75 kw sá fyrir allri orku við
þessa vinnslu. Brandurinn var sprengdur laus og honum
handmokað í járnbrautarvagn, sem tók 1 tonn, brautin
lengd eftir þörfum, eftir því sem göngin lengdust. Vagninn
með brandinum síðan hífður upp og út á brú, sem tengd var
turninum og síðan sturtað í haug fyrir ofan námuopið úr all-
mikilli hæð. Afköst voru um 40 tonn á dag. Þessi lyfta, eða
stóll, var hífð og slakað með rafmagnsspili. Merki voru
máluð á spilstrenginn, sem sögðu til, hvenær mátulega var
híft eða slakað. Áttu menn líf sitt undir að spilstrengurinn
héldi og eins undir nákvæmni þess, er stjórnaði spilinu. Þar
mátti ekki mörgum tommum muna. Spilmaður var oftast
Jóhannes Jakobsson frá Grund í Saurbæ.
Allar lyftur eru þannig útbúnar nú, að ef híft er undir slit,
þá svissast straumur af og þó spilstrengur slitni, þá spennast
stálfjaðrir út í sliskjurnar og varna því að stóllinn falli. Þó
ekki sé lengra síðan, voru allar öryggiskröfur á þeim tíma
svipaðar þessu. Vægast sagt hrikalegar, menn geta nú naum-
ast trúað þessu. Enginn sími var niður í námuna til verka-
mannanna, heldur var allt túlkað með höggum, þetta mörg
högg til að að hífa, og þetta mörg högg þá átti að slaka.
Menn komust þó upp og ofan stiga, sem byggður var utan
við stólinn.
Stanslaust var blásið lofti niður í námuna. Dæla varð tals-
verðu vatni úr námunni á morgnana áður en vinna gat hafist,
og eins eftir helgar. Þak gangnanna var mjög slétt og fallegt
og engin hætta á hruni, að séð varð. Annar aðbúnaður
verkamanna var góður. Reist var íbúðarhús og mötuneyti.
Þó setja mætti út á öryggisbúnað námuvinnslunnar á
þessum tíma var þessi útbúnaður allur með miklum dugnaði
framkvæmdur undir verkstjórn Karls Guðmundssonar, sem
er frábærlega snjall verkstjóri. Hann stjórnaði síðar spreng-
ingunni á jarðgöngunum að Búrfellsvirkjun. Karl var ekki
lengi verkstjóri við sjálfa vinnsluna. Þar kom til Sveinn, sá
sem var fyrsti vélamaður með skurðgröfu hér á landi, við