Breiðfirðingur - 01.04.1987, Page 74
72
BREIÐFIRÐINGUR
Öndverðarnesi og suður með Svörtuloftum. Strandlengjan
er umkringd sjó og oft er hann þungur með brim og boða,
sem einnig getur sýnt nokkra tign í vissum skilningi. Pað
koma líka blíðudagar og sléttur sjór með fagurt sólarlag,
sem dreifir geislum sínum um allan Breiðafjörð.
Eftir að ég fluttist í annað umhverfi fór lífið að opnast
fyrir nýjum kringumstæðum, enda landslagið talsvert öðru-
vísi en í Ólafsvík. Til dæmis hraun með alls konar kynja-
myndum, jafnvel listaverkum frá náttúrunnar hendi. Par er
að finna talsvert háa sjávarbakka, sem voru í brimlöðri
þegar verst lét og kom það fyrir að bátar færðust úr stað og
jafnvel brotnuðu og eyðilögðust en þá var enginn Viðlaga-
sjóður til að bæta tjónið. Þá er fjallgarður fallegur. Par er að
finna mikið af örnefnum, sem eiga sína sögu og einkenni,
sem sjómenn fyrri tíðar höfðu sem mið þegar á sjóinn var
farið og leitað var eftir góðum afla. En árin liðu svo
umhverfið féll saman í heildarmynd þegar frá leið í nýjum
heimkynnum á sínum stað.
Snemma vöktu hjá mér athygli árabátarnir með sín þöndu
segl, en slíkur var skipakostur sjómanna á þeim tíma, sem
ég fór að muna eftir mér. Sjómennskan var þá ekki dans á
rósum, því stundum varð að taka áhættu, þegar veður
breyttist snögglega með stuttum fyrirvara og ströndin var
brimi drifin.
Ég mun hafa verið um 9 ára gamall, þegar bátur fórst í
lendingunni og 8 menn drukknuðu. Öllum líkunum var náð
og þau borin inn í samkomuhús staðarins. Þar voru líkin
höfð á meðan líkkistusmíðin fór fram. Faðir minn var
smiður og það féll því í hans hlut ásamt fleirum að smíða á
staðnum 8 líkkistur. Þetta var mikið áfall fyrir aðstandendur
og sló trega á þorpsbúa. Þetta hefur verið mér ógleyman-
legur atburður enda kom ég oft í samkomuhúsið á meðan
faðir minn var þar við smíðar. Sjóslys voru afar tíð á Breiða-
firði og kringum Snæfellsnes, um það hafa verið skráðar
margar frásagnir.