Breiðfirðingur - 01.04.1987, Page 96
94
BREIÐFIRÐINGUR
útivist hverfur aftur heim til ættjarðarinnar, ríkari af fjölbreyttri
lífsreynslu en fjöldinn.
í eftirfarandi þáttum segir hann frá uppvexti sínum við Breiða-
fjörð, dvöl á dönskum búgarði og fyrstu árum sínum í Ameríku. í
seinna þættinum, sem birtist í næsta hefti, segir Guðmundur meira
og nánara frá söngferli sínum og fleira, bæði í Chicago og Los
Angeles.
E.K.
Fagrar æskusveitir
Reykhólasveit og Geiradalur í Austur-Barðastrandarsýslu
eru af mörgum taldar með fegurstu sveitum á íslandi. í
austri blasa við Skarðsstrandarfjöll, í vestri rís Reykjanesfjall
og í björtu veðri sést alla leið vestur á Skor. En úti fyrir
miðju blasir Snæfellsjökull skínandi bjartur og fagur. Seint
mun mér gleymast sú sýn er getur að líta á sólbjörtu síð-
sumarskveldi, þá augum er rennt yfir hinn breiða flóa með
öllum sínutn óteljandi eyjum og skerjum. Var það eins og
fagurt málverk í fullkomnu jafnvægi.
í þessari sveit man ég fyrst eftir mér. Ég er fæddur á Efri-
Brunná í Dölum, 24. október árið 1900. Foreldrar mínir,
Guðlaugur Guðmundsson og kona hans Sigurlína Guð-
mundsdóttir, voru bæði ættuð úr Strandasýslu. Þau munu
hafa byrjað búskap á Efri-Brunná í Saurbæ, en þegar ég var
á öðru ári fluttu þau vestur að Kletti í Geiradalshreppi.
Klettur er vestasti bærinn í hreppnum, stendur hátt frá sjó
og er útsýni þaðan hið fegursta.
„ . . . Þar liggja smaladrengsins léttu spor. “
Á Kletti var ég með foreldrum mínum til vorsins 1910. Ég
átti bróður, er Pétur hét og var hann eldri en ég. Við bræður
byrjuðum snemma að hjálpa til við ýmis störf. Þá var fært frá
ám á flestum bæjum. Var það oft erilsamt að eltast við
sauðfé og flytja lömbin á fjall eftir fráfærurnar. Ég var á
tíunda ári en bróðir minn ellefu, er við fengum þann starfa