Breiðfirðingur - 01.04.1987, Page 104
102
BREIÐFIRÐINGUR
ára og á að fermast næsta vor 1915. Pað var barnaskóla-
kennsla í samkomuhúsinu í Nesi í nokkrar vikur á hverjum
vetri. Mér gekk vel að læra og þegar fullnaðarprófið var
haldið um vorið fékk ég 8 í aðaleinkunn. Sr. Jón Porvalds-
son á Stað á Reykjanesi var prófdómari. Ég var mjög
ánægður með þessa einkunn og mér var óskað til hamingju.
Við vorum aðeins tveir drengir, sem fermdust þetta vor í
Garpdalskirkju. Hinn drengurinn var Vilbert Zakaríasson á
Tindum. Við fórum suður að Staðarhóli í Saurbæ í Dölum til
sr. Sveins Guðmundssonar, sem þjónaði Garpsdalskirkju.
Vorum við þar í viku til undirbúnings fyrir ferminguna. Við
vorum fermdir á annan í hvítasunnu. Faðir minn, sem þá var
til heimilis á Þambárvöllum við Bitrufjörð - hjá Skúla
bróður sínum, kom suður og var við ferminguna. Hann gaf
mér fimm krónur í fermingargjöf og svo fékk ég sálmabók
frá Jóni Ólafssyni kaupfélagsstjóra. Þá bók á ég enn þá, hún
hefir fylgt mér alla mína ævi. Á fremsta blaði stendur skrifað
með fallegri rithendi: Guðmundur Guðlaugsson, 24. maí
1915.
Nú, þegar ég var kominn í kristinna manna tölu var ætlast
til meiri vinnu af mér. Þarna var vinnumaður og kaupafólk
á sumrin. Ég gekk til túnasláttar og allrar vinnu eins og full-
orðinn væri. En þótt vinnan væri oft erfið, þá var alltaf
nógur og góður matur.
Selveiðar
Um vorið 1916 tilkynnti Ólafur mér að hann ætlaðist til að
ég stundaði selveiðina þá um vorið. Það var til mikils ætlast
af óhörðnuðum ungling, en það var ekki til neins að mögla
og ég var líka dálítið upp með mér að hann skyldi treysta
mér til þess. Selveiðin á vorin fer þannig fram, að það eru
lögð net á milli skerja austan við nesið á Gilsfirði. Par er
útfiri svo mikið að hægt er að ganga út mörg hundruð metra
þegar mest er lágsjóað um fjöruna.
í fyrstu lögn er farið með 6-8 net. Hvert net er 20-30