Breiðfirðingur - 01.04.1994, Blaðsíða 77
MINNINGAR
75
bara hálfkalt. Við flýttum okkur nú út að Nesi, sem er um 20
mín. gangur. Þar heima fagnaði mér mamma, pabbi og systk-
inin öll. Og það var nú indælt að vera aftur komin heim.
Aftur í Akureyjar.
Nóttina eftir var Steini kominn með háan hita og hálsbólgu.
Síðan varð hann allur rauðflekkóttur, og sagði læknirinn að
þetta væri „skarlatsótt“. Nokkru seinna tók ég þessa veiki og
varð mikið veik. Aðrir á heimilinu fengu hana ekki. Heilmikið
var sett í sóttkví, og mátti þá enginn koma til okkar. Þetta þótti
okkur heldur dauflegt, og það um jólin, en foreldrar okkar
sögðu að víst mættum við þakka guði fyrir að fá heilsuna aft-
ur. En lengi vorum við Steini að ná okkur, og ekki gat ég farið
út í Akureyjar fyrr en í lok febrúar. Fólkið í Akureyjum talaði
mikið um að ég hefði heldur átt að fara á sjúkrahús en til
starfa svo föl og lasleg væri ég að sjá. En mér fannst ég orðin
býsna brött og kennslan gekk furðu vel. Eftir sumarmálin voru
börnin prófuð og fengu góðan vitnisburð.
Um páskana fór ég heim, en lofaði að koma aftur í Akur-
eyjar og vera þar í vorvinnu í þrjár vikur. Eg hafði nú mikinn
hug á því að fara í Kennaraskólann næsta vetur, og varð því að
reyna að vinna mér inn sem mesta peninga. Það var snemma
morguns, sem ég kom heim, og er ég hafði heilsað gekk ég
inn í baðstofuna, þar sem fólkið var nýkomið á fætur. Sé ég þá
að í einu rúminu sat uppi lítið barn - um tveggja ára - ljós-
hærður og laglegur drengur, og er ég hafði heilsað honum,
kallaði liann hástöfum: „Mamma, mamma - hún Jana systir
okkar er komin.“ Þessi litli drengur hét Guðlaugur Bjarnason,
og hafði faðir hans komið með hann til Stykkishólms fyrir
þremur vikum. Bjarni þessi var ættaður úr Stykkishólmshreppi
og hafði misst konu sína frá þremur ungum börnum og var nú
atvinnulaus og heimilislaus. Þau hjón höfðu búið í Reykjavík,
og tóku einhverjir kunningjar þeirra þar elsta og yngsta barnið
til fósturs, en þennan dreng kom faðirinn með, og átti hreppur-
inn hér að annast uppeldi hans. Fyrir bænastað oddvita