Breiðfirðingur - 01.04.1994, Blaðsíða 132
130
B RlilÐFIRÐINGUR
varð stúdent 1722, vann hjá Páli frænda sínum Vídalín 1724
og vígðist að Staðarbakka í Miðfirði 1726. Hann þótti drykk-
felldur og illskiptinn. (ísl. æviskrár II, 319). Faðir Hannesar
var Þorlákur Guðbrandsson Vídalín (um 1672- dó í Stórubólu
1707, einnig kona hans Helga Bjarnadóttir Arngrímssonar
lærða, sem var í tvímenningsfrændsemi við hann), lærði í
Hólaskóla, fór utan 1695, skráður í stúdentatölu í Kaupmanna-
höfn 15. okt. sama ár, var lögsagnari Páls Vídalíns lögmanns í
Dalasýslu 1698-99, sýslum. ísafjarðarsýslu 15. júlí 1700. Var
gáfumaður og skáldmæltur, fyrri hluti Ulfarsrímna eftir hann
var prentaður í Hrappsey 1775 og tvívegis síðar (Isl. æviskrár
V, 156-57). Faðir Þorláks var Guðbrandur Arngrímsson
(1639- dó í eldsvoða að Lækjamóti í Víðidal ásamt konu sinni
26. febrúar 1719), hann ólst upp í Selárdal hjá hálfsystur sinni
og manni hennar Páli Björnssyni presti, varð sýslumaður, vel
skáldmæltur (ísl. æviskrár II, 109-10). Foreldrar Guðbrandar
voru Arngrímur Jónsson lærði (1568- 27. júní 1648) og seinni
konu hans. Var prestur á Melstað, rektor á Hólum og umboðs-
maður Guðbrands biskups. Fræðimaður, samdi Crymogæu, og
er útkoma hennar talin „með stórtíðindum í sögu íslenskrar
menningar og íslenskra fræða.“ (ísl. æviskrár I, 29-31. Jakob
Benediktsson: Crymogæa, Sögufélag 1985, Inngangur, 13). I
móðurætt var Arngrímur kominn af Jóni Sigmundssyni lög-
manni (-1520).
Faðir Jóhannesar var Guðmundur Hákonarson (um
1789-1855-60), fæddur að Höfðakoti ytra í Setbergssókn, síð-
ast bóndi í Mýrdal í Kolbeinsstaðahreppi. Jófríður Guðmunds-
dóttir, systir Jóhannesar var amma Snorrastaðabræðra. Faðir
Guðmundar var Hákon Hákonarson (um 1762-1816), hann
bjó fyrst að Stóru-Seljum í Bjarnarhafnarsókn, en við Manntal
1801 var hann búandi að Höfðakoti ytra í Setbergssókn.
Meðal bræðra Guðmundar var Hákon Brokeyjarskáld (sem í
ísl. æviskrám II, 232 er sagður Guðmundsson), og Snæbjörn,
og eru til þjóðsögur um þá. Faðir Hákonar í Höfðakoti var
Hákon Guðmundsson. I Jarða- og bændatali 1752-1767 er
hann sagður vera bóndi að Hólum í Helgafellssveit árið 1754.