Breiðfirðingur - 01.04.1994, Page 115
AF CiLEYMDU DALASKALDI
1 13
þroski og gæðin þrotnuðu,
þá var úti gleði.
6. Þegar árið þetta leið,
þrautum hlaðinn nógum,
eg hjá móður minni reið
Magnúsar- að -skógum.
7. Tólf þar dvaldi talin ár
tjáð af móðurinni.
Foreldrar Bjarna fluttust árið 1841 frá Magnússkógum í
Hvammssveit að Laugum í sömu sveit, móðir hans deyr 1843
og faðir hans hættir búskap 1844; en þá segir Bjarni (12. er.):
„fyrir smala fór eg dreng / fyrst að Kýrnastöðum.“ Þar er hann
tvö ár, næstu sex ár í Skoravík, þrjú ár á Skarfsstöðum og loks
tvö ár á Saurhóli í Saurbæ.
21. Þannig liðu þrettán ár,
þau rjeð stöðugt smala;
flækingurinn fannst mjer sár,
fjas er um að tala.
Samkvæmt þessu hefur Bjarni verið smali fram um þrítugt
enda kemur fram hér síðar að hann var ekki orkumikill. Helst
er að sjá að hann hafi verið fæddur seint á ári og sé ekki fullra
30 ára, en hér var líklegast komið árið 1857. Eftir þetta fer
hann í vinnumennsku, er tvö ár á Skarfsstöðum og eitt ár (23.
er.): „til Daða á (!) Hólunt.“ Síðan er hann lausamaður (24.
er.): „fyrst að Kýrnastöðum.“ Svo er helst að skilja að hann
hafi verið lausamaður annað ár í Sælingsdal. Næst er hann
vinnumaður eitt ár í Snóksdal og annað (30. er.): „Hóli að í
Harðardal“, en þar á eftir fjögur ár á Skriðukoti í Haukadal og
kynnist þar konuefni sínu, Málfríði Jónsdóttur. Þau giftast og
búa eitt ár (33. er.): „Hóli á í Harðardal“ og eignast son sem
dó tæpra 20 vikna. Næsta ár eru þau á Seljalandi í sömu sveit,
^ Breitffirðintiur