Breiðfirðingur - 01.04.1994, Blaðsíða 178
176
B R Ii I D I-1 R D I N C. U R
Aðalfundur félagsins var haldin 22. febrúar og mættu 39 fé-
lagar. Fram fóru venjuleg aðalfundarstörf.
1 stjórn voru kjörnir: Sveinn Sigurjónsson, formaður, Gísli
Guðmundsson, varaformaður, Hörður Rúnar Einarsson, gjald-
keri, Hinrik Hinriksson, ritari, Benedikt Egilsson, varagjald-
keri, Sigurveig Ebbadóttir, vararitari, Björk Magnúsdóttir,
spjaldskrárritari.
I varastjórn voru kjörnir: Júlíana Osk Guðmundsdóttir,
Bryndís Guðmundsdóttir og Gyða Þorsteinsdóttir.
Endurskoðendur: Haraldur Finnsson og Sigvaldi Þorsteins-
son.
Varaendurskoðendur: Eggert Kristmundsson og Ulfar
Reynisson.
Kjörnefnd: Sigvaldi Þorsteinsson, Sigurjón Sveinsson og
Halldór Guðjónsson.
Birgi Kristjánssyni sem verið hefur formaður félagsins und-
anfarin ár eru þökkuð heilladrjúg störf fyrir félagið, einnig eru
Auði Baldursdóttur og Olöfu Sigurjónsdóttur þökkuð nokk-
urra ára stjórnarstörf fyrir félagið.
Stjórnin hélt sex stjórnarfundi á starfsárinu svo og fundi
með skemmtinefnd, en skemmtinefnd hefur staðið að fram-
kvæmd og undirbúningi skemmtanahalds með miklum ágæt-
um.
Starfsemi í félagsskap sem þessum ræðst af góðri samvinnu
og áhuga fyrir góðu félagsstarfi. Allir þeir sem lagt hafa hönd
á plóg hafa unnið af alúð til þess að sem bestur árangur næð-
ist. Það er okkur öllum mikilvægt að hvert starfsár takist eins
og best verður á kosið. Samheldni og gott samstarf skilar von-
andi því sem ætlast er til.
Að lokum vill stjórn Breiðfirðingafélagsins þakka félags-
mönnum og velunnurum félagsins samstarfið á liðnu ári.
Með bestu kveðju
Sveinn Sigurjónsson
formaður
12 BiTÍðfirðingiir