Breiðfirðingur - 01.04.1994, Blaðsíða 133
Æ V 1 ÞURRABIIÐARMANNS
131
Faðir Hákonar var Guðmundur Bjarnason (um 1696-1773),
bóndi í Galtardalstungu á Fellsströnd, og Steinunnar Bene-
diktsdóttur úr Hrappsey Jónssonar fálkafangara. I Bændatali
og skuldaskrám 1720-1765 er Guðmundur Bjarnason sagður
vera bóndi að Fremri-Hundadal árið 1734. Faðir Guðmundar
var Bjarni Bjarnason (um 1644-1723) í Arnarbæli á Fells-
strönd, auðmaður og þjóðsagnapersóna. Kona lians var Guðný
Hákonardóttir (um 1658-1723) frá Miðgörðum í Staðarsveit,
af kunnum ættum. Samkvæmt Jarðabókinni áttu þau hjón 14
jarðir, meðal þeirra voru höfuðból. Faðir Bjarna í Arnarbæli
var Bjarni Jónsson á Hafurs-Hesti í Önundarfirði, faðir Bjarna
á Hesti var Jón yngri dan Magnússon (um 1575-1651) á Eyri í
Seyðisfirði í Isafjarðardjúpi, hans foreldrar voru Magnús prúði
Jónsson (um 1525-1591), skáld og sýslumaður í Ögri og að
Bæ á Rauðasandi, og Ragnheiður Eggertsdóttir (um 1550-6.
ág. 1642) Hannessonar (um 1515-um 1583) lögmanns að Bæ
á Rauðasandi (Isl. æviskrár III, 431). Foreldrar Magnúsar
prúða voru Jón Magnússon (-1564) á Svalbarði í Eyjafirði
sem Svalbarðsætt hin yngri var kennd við, af ætt Mýramanna,
og Ragnheiður „á rauðum sokkum“ Pétursdóttir (-1540). Fað-
ir Ragnheiðar var Pétur Loftsson (um 1475- fyrir 1546)
lögréttumanns frá Djúpadal í Eyjafirði, af ætt Lofts ríka
(-1432).
Samkvæmt Ministeríalbók Nesþinga þá flutti Jóhannes
Guðmundsson frá Mýrdal til Ólafsvíkur árið 1839 og kvæntist
þar Guðbjörgu, sem var 32 ára ekkja með eitt barn.
I sömu heimild, bls. 146, segir að 15. mars 1842 hafi dáið í
Ólafsvík ellefu menn. Þeir eru allir nafngreindir og aldurs
þeirra getið en ekki dánarorsakar, og enginn þeirra virðist hafa
verið greftraður. Meðal þessara ellefu manna var Jóhannes
Guðmundsson, sagður tuttugu og fimm ára. I sömu Ministerí-
albók segir að þrem vikum áður, eða 23. febr. 1842, hafi farist
bátur í lendingu á Gufuskálum og níu menn drukknað, og að
19. mars hafi einnig farist þar bátur með fjórum mönnum.
I ritinu Gesti Vestfirðingi árið 1847, bls. 9 segir svo: „I
Marts mán. fórust 2 skip frá Gufuskálum og 1 frá Ólafsvík, öll