Breiðfirðingur - 01.04.1997, Blaðsíða 39
VÖLUNDURINN FRÁ BÚLANDSHÖFÐA
37
tíma vestur á Snæfellsnesi og tók þá töluvert af myndum,
einkum af fólki. Séra Jens á Setbergi gerði mér þá orð að
koma til sín, og myndaði ég hann í fullum skrúða.“
- Mjaltastóllinn frá Þórólfsstöðum?
„Líklega vita nú fáir, að í hlíðinni í utanverðum Hraunsfirði
var býli, sem ýmist var kallað Þórólfsstaðir eða Hlíð. Þar bjó á
árunum 1681-1707 Oddur þorsteinsson, en þá fer bærinn í
eyði vegna snjóflóða og skriðuhlaupa. Oddur var forfaðir minn
og ennfremur t.d. Árna Þorsteinssonar, sýslumanns í Kross-
nesi, Torfa, skólastjóra í Ólafsdal, Brandar á Eyri, tengdaföður
Helga Pjeturss, og Karvels Ögmundssonar. Mig hafði lengi
langað til að kanna þetta gamla bæjarstæði, sem var þarna á
Straumhlíðinni og grennslast eftir, hvort þar væri nokkuð að
finna. Eftir að ég hafði fengið leyfi til að hrófla þarna við, fór
ég tvívegis vestur með nokkuð löngu millibili. Við könnun
taldi ég mig finna þarna þrjár bæjarrústir og koma niður á
greinilega gólfskán. En ekkert var þarna að finna annað en
höfrungshaus og á honum greinilega sagarför, því að kúlan
hafði verið söguð af til þess að hann væri hæfilegur sess.
Þykir mér líklegt, að þetta hafi verið mjaltastóll formóður
minnar, Guðrúnar Guðmundsdóttur á Þórólfsstöðum, konu
Odds. Ég tók með mér sýnishorn af gólfskálinni og vitaskuld
mjaltastólinn, sem varla getur verið yngri en þriggja alda
gamall og er nú stofuprýði hjá mér.“3)
Að bera vel aldurinn
- Ég veit, að þú hefur nýlokið við málverk af Dritvík, að þú synd-
ir í hverri viku, að þú ferð enn skottuferðir í bfl þínum og að þú
ert enn léttur á fæti eins og miðaldra maður. Ef þetta er ekki að
bera aldurinn vel, þá veit ég ekki hvað það er. Er þetta ættlægt?
„Faðir minn varð hálfáttræður, móðir mín komst á níræðis-
aldur, Þorsteinn bróðir minn varð næstum því níræður, Ing-
veldur, systir mín, sem enn er á lífi, er 94 ára og Þorgeir móð-
urafa minn vantaði örfáa mánuði upp á að verða hundrað ára,
en hann lést 1915, þá talinn elsti maður á Islandi. Árið áður