Breiðfirðingur - 01.04.1997, Page 74
72
BREIÐFIRÐINGUR
Þinghúsið á Grund í Eyrarsveit. Ljósm. Gunnar Kristjánsson (?)
og heyra seiðandi töfrandi hláturóma hennar fylla salinn og
umhverfið og koma öðrum til að njóta þess. Svo maður var
orðinn allur ein tilhlökkun til þess væntanlega og ókomna.
Nú mátti ekki láta standa á neinu og ekkert mátti vanta,
heldur birgja sig vel upp af kaffi, sykri, kökum, mjólk o.fl. ef
fjölmenni yrði, ekkert inátti mistakast og allt að vera í lagi.
Samkomuhúsið var timburhús, panelklætt að innan og í
lofti, en járnklætt að utan og þakið. Húsið var stór salur með
bekki á tvo vegu, hliðarherbergi voru tvö, annað stórt, hitt
minna. Svo kom forstofa og lítið herbergi til að hita kaffið í og
hafa þar alla aðstöðu til veitinga, þótt oft væri þröngt á þingi
þar, en forstofuherbergið og stærra herbergið inn af var notað
til að spila í og drekka og rabba saman. Litla innsta herbergið
tókum við fyrir snyrtiherbergi fyrir dömurnar, þar sem þær
gátu þvegið sér og greitt og snyrt sig til. Þar var sett vaskafat,
handklæði, sápa og spegill, og svo veitt aðstöð eftir þörfum,
með vatn o.fl. Þegar öll snyrting var búin voru settar þar upp