Breiðfirðingur - 01.04.1997, Síða 92
90
BREIÐFIRÐINGUR
frá Tjaldanesi vestur að Reykhólum á Reykjanesi. Ég lagði út
á ísinn undan Tjaldanesi og riðum við beint á Reykhóla, það
er um hálfa þriðju viku sjávar. Á tveim stöðum um miðjan
fjörðinn fengum við tvo nokkuð djúpa ála af sjó sem hafði
bullað upp um sprungur um flóðið, en ekkert var að óttast,
ísinn var löngu svo þykkur að engin hætta var á að niður færi.
Þetta var fljótfarið því ísinn var vel sléttur nema við löndin,
þar varð maður að fara á jökum sem voru ósléttir.
Mjög stuttu eftir að þessi ferð var farin var orðinn svo
mikill vöruskortur að það var brugðið á það ráð að panta flóa-
bátinn Svan, sem um þessar mundir annaðist vöruflutninga til
Salthólmavíkur og Króksfjarðar, til þess að koma með frá
Reykjavík vörur eins langt og mögulegt væri inn í ísinn. Menn
voru komnir með hesta og sleða þar að, sem hann komst ekki
lengra. Hann komst ekki inn á móts við Skarðstöð sem var
höfn mjög góð, þar sem oft hafði verið skipað upp vörum,
enda þá verslun þar sem Guðmundur Jónasson rak lengi.
Þegar menn og skip mættust var varan hífð á sleðana og
haldið inn miðjan fjörðinn allt til Salthólmavíkur, og þetta
dugði þar til ísinn fór. Og þá held ég að mönnum hafi létt og
síðan hafa siglingar þangað ekki teppst.
Þjóðmálastefnafyrri tíma
Ég man fremur lítið eftir því, fyrr en ég fór að stálpast, og
man ég að faðir minn var strax fylgjandi Samvinnuhreyfing-
unni. Þegar ég fór að mynda mér skoðun aðhylltist ég hana,
og hef alla tíma talið mig henni fylgjandi, enda ef rétt er farið
að hlutunum hlýtur samstaða og samhljálp að vera mikill léttir
fyrir fjöldann. Ég heyrði þá ekki talað um nema tvo flokka og
þá var ekki jafnmikill og harður flokkadráttur eins og nú er
löngu hafinn.
En svo ég víki að einum eftirminnilegum stjórnmálafundi
sem var haldinn í Búðardal í Dölum og sá fjölmennasti sem ég
minnist eftir að ég varð fullorðinn. Þar mætti úr öllum hrepp-
um sýslunnar mikið fjölmenni og fundurinn var fjörugur, enda