Breiðfirðingur - 01.05.2015, Page 17
BREIÐFIRÐINGUR 17
í eigu Haraldar Sigurðssonar prófessors, með samstarfssamning við
Stykkishólmsbæ. Í Eldfjallasafninu er að finna safn listaverka, muna,
forngripa, steintegunda o.fl. úr fórum Haraldar Sigurðssonar en hann
hefur stundað jarðfræði- og eldfjallarannsóknir um allan heim. Einnig
er í bænum vélsleðasafn í einkaeigu. Leikfélagið Grímnir hefur starfað
lengi, sem og Lúðrasveit Stykkishólms sem hélt upp á 70 ára afmæli
sitt á síðasta ári.
Norðurljósin, menningarhátíð þar sem Hólmarar skemmta Hólmurum,
er haldin annað hvert ár, auk þess sem Júlíanna, hátíð sögu og bóka,
hefur fest sig í sessi í menningarflóru bæjarins. Bæjarhátíðin Danskir
dagar hefur verið haldin síðastliðin 20 ár, þriðju helgi ágústmánaðar.
Af því sem að ofan er ritað má sjá að Stykkishólmur er metnaðarfullt
bæjarfélag með hátt þjónustustig. Rekstur bæjarfélagsins hefur verið
erfiður á síðustu árum og ekki staðist kröfur eftirlitsnefndar með fjár-
málum sveitarfélaga. Fjárhagsáætlun 2015 gerir hins vegar ráð fyrir að
vera innan þeirra marka í öllum liðum og að skila tekjuafgangi. Velta
Stykkishólmsbæjar er áætluð rúmur milljarður á þessu ári.
Mörg spennandi og krefjandi verkefni eru á borði bæjarstjórnar.
Mikilvægt er að vel takist til því með þeirri framtíðarsýn sem við höfum
mun Stykkishólmur verða enn ákjósanlegri kostur en nú er hvað varðar
búsetu. Efst á baugi eru úrbætur í öldrunarþjónustu, bygging leiguíbúða
með aðkomu bæjarins og spennandi skipulagsmál, m.a. vegna áhuga
Íslenska kalkþörungafélagsins á að setja upp verksmiðju í Stykkishólmi.
Mikill vöxtur hefur verið á sviði ferðaþjónustu og stefnir í að svo
verði áfram, auk þess sem Stykkishólmur býður upp á fjölmörg tækifæri
á sviði nýsköpunar.
Framtíðarsýnin er því blómlegt bæjarfélag með margvíslegum at-
vinnu tækifærum sem laða mun að nýja íbúa.
BYGGÐIRNAR