Breiðfirðingur - 01.05.2015, Page 53
BREIÐFIRÐINGUR 53SAGNFRÆÐINGAR SKRIFA UM BREIÐAFJÖRÐ
bátaeigenda við Þórð var undirstaða valda hans við Breiðafjörð. Þegar
á þurfti að halda gat Þórður kallað út lið bátamanna og látið til sín taka.4
Bátar og samgöngur ollu einmitt að eðlilegt gat virst að Breiðafjörður
væri undir stjórn eins manns sem tryggði frið og auðveldaði bændum
að stunda búskap sinn óáreittir og eiga friðsamleg viðskipti og önnur
samskipti.
Samanburður við Miðjarðarhafið er freistandi, þótt það væri margfalt
stærra en Breiðafjörður.5 Þar var margt sem sundraði og truflaði sam-
göngur og viðskipti. Til þess að tryggja frið þurfti sterkt vald og það
kom með Rómverjum. Í tíð Ágústusar um Kristsburð ríkti friður við
Miðjarðarhaf, talað var um frið Rómverja (lat. pax Romanorum) og
hann var eins konar hugsjón. Samgöngur voru þá greiðar um hafið
sem Rómverjar kölluðu „hafið okkar“ (lat. mare nostrum) og viðskipti
blómstruðu og önnur samskipti. Þórður Sturluson virðist hafa verið
nógu öflugur til að ná svipuðum árangri við Breiðafjörð og mætti
því kalla Ágústus Breiðafjarðar. Hann komst a.m.k. nærri því að
ríkja einn við Breiðafjörð, um 1220 eða svo, en þetta veldi hans stóð
ekki lengi og varð sundrungaröflum að bráð. Um það er m.a. fjallað í
Breiðafjarðarverkefninu sem svo nefnist og hér er kynnt.
Ferðir í Saurbæ
Næst skal litið á bændur fyrir norðan fjörðinn og ferðir þeirra. Þær
munu hafa verið í nokkuð föstum skorðum, farið var frá Hagavaðli eða
Brjánslæk yfir fjörðinn og land tekið á Hallbjarnareyri (þar sem Þórður
bjó), á Þórsnesi (þar sem var þingstaður) eða á Geirröðareyri (núna
Narfeyri). Bændur frá Barðaströnd og lengra að sóttu líka sjóleiðis á
Þorskafjarðarþing og ef þeir ætluðu til alþingis gátu þeir farið um Saurbæ
í stað þess að fara um Hallbjarnareyri, Þórsnes eða Geirröðareyri. Hið
merkilega var að þeir sem áttu farmaskip gátu flutt með sér hesta til
að halda áfram ferð sinni landveg. En algengara mun hafa verið að fá
lánaða hesta þar sem bátum var lent. Í Sturlungu segir að árið 1219 fór
Eyjólfur Kársson úr Flatey og suður til Geirröðareyrar og er greint frá
4 Helgi Þorláksson, „Ódrjúgshálsar og sæbrautir“.
5 Sverrir Jakobsson, „Braudel í Breiðafirði?“