Breiðfirðingur - 01.05.2015, Blaðsíða 75
BREIÐFIRÐINGUR 75SAGNFRÆÐINGAR SK IFA UM BREIÐAFJÖRÐ
vel hægt að skoða sýninguna í hlutum, þó að besta upplifunin fengist
að sjálfsögðu með því að skoða hana í heild. Báðar þessar sýningar
eru sjálfstæðar einingar þótt þær fjalli um svipað efni. Verkefnið
Miðstöðvar og mangarar fjallar um sögu verslunar og valda við Breiða-
fjörð frá 13. öld fram til einokunarverslunar Dana í byrjun 17. aldar.
Þessi saga hefur ekki verið sögð áður með jafn markvissum hætti.
Fyrri söguritun hefur miðast við hefðbundna þjóðar- og héraðssögu,
en hér er farið á skjön við það og leitast við að skrá heildstæða sögu
alls Breiðafjarðarsvæðisins. Við skráningu sögunnar er notast við
frumheimildir eins og hægt er, frekar en þá sögu sem áður hefur verið
skrifuð. Í verkefninu Miðstöðvar og mangarar er lögð áhersla á að segja
frá verslun erlendra kaupmanna við Breiðafjörð með sérstaka áherslu á
þátt Þjóðverja í þeirri sögu, en þýskir kaupmenn voru atkvæðamiklir
á svæðinu, og raunar landinu öllu, á 15. og 16. öld. Þó að Þjóðverjar
séu fyrirferðarmiklir í þessu verkefni er einnig fjallað um viðskipti
Breiðfirðinga við aðra erlenda kaupmenn, einkum frá Englandi, en
líka frá Noregi, Hollandi og Danmörku. Einnig er fjallað um samskipti
erlendu kaupmannanna við valdamenn á svæðinu og er miðstöðvahluti
nafns verkefnisins vísun í valdamiðstöðvar við Breiðafjörð. Helsta
markmið Miðstöðva og mangara er að miðla þeim hluta Sögu Breiða-
fjarðar er snýr að sambandi erlendra kaupmanna og valdamikilla
Íslendinga á svæðinu á 13.–17. öld. Önnur markmið verkefnisins eru
að auka fjölbreytni í menningarferðaþjónustu á svæðinu og með því
reyna að laða fleiri ferðamenn, innlenda sem erlenda, í Breiðafjörðinn.
Menningarferðaþjónusta hefur verið í örum vexti undanfarna tvo áratugi
og mikil vakning hefur orðið í sýningastarfi. Fjölgun ferðamanna hefur
verið gríðarleg og innan ferðaþjónustugeirans hefur fólk smám saman
áttað sig á að ferðamenn koma hingað í leit að fleiru en íslenskri náttúru.
Ferðamenn hafa einnig áhuga á menningu. Söfn og sýningar gegna
lykilhlutverki í því.1 Sýningar sem þessar eiga vonandi eftir að hjálpa
til við að auka umferð ferðamanna um svæðið og geta því orðið til
hagsbóta fyrir alla þá sem starfa í menningar- og ferðaþjónustugeiranum
á Breiðafjarðarsvæðinu. Öll ferðaþjónusta byggir á upplifun. Því þarf
1 Eggert Þór Bernharðsson, Miðlun sögu á sýningum, 15.