Breiðfirðingur - 01.05.2015, Síða 78
BREIÐFIRÐINGUR78
Sýning sem þessi er óvenjuleg að því leyti að hún er ákaflega víð-
feðm. Hún nær yfir allt Breiðafjarðarsvæðið, frá Rifi á Snæfells nesi að
Brjánslæk á Barðaströnd, að Flatey meðtalinni. Oft er töluverð vega-
lengd milli sögustaðanna og reikna má með að það taki 2–3 daga að
skoða þá alla. Sérstaða sýningarinnar felst einnig í því að skiltin eru
á sögu stöðunum sjálfum, þar sem þeir atburðir sem sagt er frá áttu
sér stað. Eitt af því sem ferðamenn sækjast eftir á sögustöðum er
upprunaleiki. Þeir vilja fá söguna beint í æð. Oft og tíðum er þeim hins
vegar boðið upp á afskræmda útgáfu af fortíðinni, þar sem búið er að
„endurskapa“ söguna í annarri mynd.6 Í Miðstöðvum og möngurum er
ekkert endurskapað. Þar sér fólk staðina eins og þeir eru í dag. Frásagnir
á skiltunum gefa einhverjar hugmyndir um hvernig staðirnir gætu hafa
litið út áður. Annars er fólk hvatt til að gefa hugmyndafluginu lausan
tauminn og ímynda sér hvernig hafi verið umhorfs á öldum áður.
Eins og áður var minnst á fóru höfundar í vettvangsferð um
Breiðafjarðarsvæðið og í þeirri ferð voru mögulegir skiltastaðir heim-
sóttir. Með því að fara á staðina var hægt að ákveða með nokkurri
vissu hvar skiltin gætu staðið í framtíðinni. Þannig var hægt að kanna
aðstæður á svæðinu og ákveða hvort skiltin skyldu til að mynda standa
við afleggjara eða hvort betra væri að staðsetja þau annars staðar. Þá
veitti ferðalagið einnig vitneskju um aðstæður á svæðunum sem um
ræðir, til að mynda ástand vega, aðstæður fyrir ferðamenn og fleira þess
háttar.
Styrkleikar verkefnisins felast í ýmsu. Sagan er sögð á þeim stöðum
sem hún varð til, sem gefur verkefninu ákveðinn upprunaleika. Áhugi
fólks á svæðinu er nauðsynlegur fyrir framgang verkefnisins; þann
áhuga virðist alls ekki vanta. Þýskir ferðamenn eru stór hluti markhóps
Miðstöðva og mangara, þar sem saga þýskra kaupmanna við Breiðafjörð
er fyrirferðarmikil. Nauðsynleg þjónusta, svo sem veitingasala, gisting,
sundlaugar og bensínstöðvar, er yfirleitt í seilingarfjarlægð, sem og
önnur menningar- og ferðaþjónusta. Því ætti að vera hægðarleikur fyrir
fólk að sameina skiltasýninguna öðrum ferðalögum. Veikleikarnir snúa
aðallega að aðstöðu og aðgengi, svo sem salernisaðstöðu og aðgengi
6 Timothy og Boyd, Heritage tourism, 238.