Breiðfirðingur - 01.05.2015, Síða 82
BREIÐFIRÐINGUR82
um menningartengda ferðaþjónustu. Sýningin veitir einnig tækifæri á
samstarfi breiðfirsku sveitarfélaganna, sem ekki hefur verið áberandi í
ferðaþjónustu á svæðinu. Vegna þess að sýningin er hugsuð og hönnuð
sem farandsýning sem ferðast muni víða mun hún, eins og gefur að
skilja, ferðast um öll sveitarfélög fjarðarins með mislöngu stoppi, með
því móti munu fleiri sjá hana en ella. Þá má einnig benda á að sýningin
verður mun ódýrari í uppsetningu en ef um skammtímasýningu væri
að ræða því fleiri leggja hönd á plóg. Þá veitir hún einnig stöðum sem
minna hafa á milli handanna tækifæri á að setja upp metnaðarfulla
sögusýningu í sínu rými. Ætlað er að sýningin muni þannig kalla á
samstarf enda er það forsenda þess að hún geti orðið farandsýning.
Þannig er verkefnið Saga Breiðafjarðar hugsað, enda beinist það ekki
að einum stað frekar en öðrum, horft er á allan fjörðinn og svæðið í
kring og þess vegna er sýningunni einnig beint þangað.
Markmið
Segja má að helsta markmið sýninganna Miðstöðvar og mangarar
við Breiðafjörð sé að kynna fyrir ferðamönnum þætti úr langri og
áhugaverðri verslunarsögu Breiðafjarðar frá 1300-1700. Einnig verða
aðrir þættir ræddir, til dæmis órjúfanleg tengsl landslags Breiðafjarðar
og búskapar á svæðinu við stjórnmál og valdabaráttu við fjörðinn á
tímabilinu. Stuðst verður við nýjar og nýlegar rannsóknir innan Háskóla
Íslands og þeim miðlað á sýningunum til ferðamanna, skólahópa og
annarra fróðleiksfúsra sýningagesta. Markhópur sýninganna er því
breiður og verða allir textar, bæði á sýningarspjöldum og skiltum, sem
og á heimasíðu, á íslensku, ensku og þýsku. Með því móti verður tryggt
að sem breiðastur hópur gesta skilji og njóti umfjöllunar sýninganna.
Horft er bæði til íslenskra og erlendra ferðamanna og mætti þá helst
nefna Þjóðverja í því sambandi, enda beinast sýningarnar að miklu leyti
að þeirra sögu, það er sögu Hansasambandsins.
Heimildir
Ambrose, Timothy og Paine, Crispin. Grunnatriði safnastarfs. Fyrra hefti. Þjónusta–
sýningar–safngripir. Þýð. Helgi M. Sigurðsson. Reykja vík: Árbæjarsafn, 1998.
Eggert Þór Bernharðsson. Miðlun sögu á sýningum: Safna- og sýn ingaferð um Ísland
2002–2003. Saga XLI:2, 2003, 15–66.