Breiðfirðingur - 01.05.2015, Blaðsíða 126
BREIÐFIRÐINGUR126
við kannski tvær og þrjár vikur í einu á vorin; það var öðruvísi en núna
þegar maður skreppur bara oftar. Ég tala nú ekki um eftir að ég stofnaði
þetta fjós hér sem þarf að sinna.
Finnst þér líf og starf fara vel saman hérna í Stykkishólmi?
Já, algerlega. Ég myndi segja að með því að flytja hingað þá verður
fókusinn á starfið mitt miklu meiri, líka þar sem ég ákvað að taka skrefið
og stofna Leir 7. Starfið verður einfaldara og fókusinn er einbeittari.
Áður en ég kom hingað var ég með eigin verkstæði en alltaf líka að
kenna öðru hvoru þannig að þetta var meira slítandi. Mér þykir gott að
áreitin eru ekki eins mörg og í Reykjavík eða Hafnarfirði. Ég segi oft
að það sem ég er að gera hérna hefði ég ekki gert í Hafnarfirði. Og hér
hafa opnast möguleikar í þessu umhverfi, í sambandi við náttúruna og
nýtingu á afurðum hennar.
Nú var verið að opna hagleikssmiðju í vinnustofu þinni í Leir 7.
Segðu mér meira frá því, hvernig kom það til?
Leir 7 var boðið að vera hluti af neti sem handverksverkstæði tilheyra
og heitir Economusée, en það er fyrirbæri sem stofnsett var í Kanada
fyrir um tuttugu árum síðan. Þar fóru yfirvöld að gefa gaum að litlum
verkstæðum sem voru að vinna ýmis handverk, verkstæðum þar sem
unnið var úr hráefnum frá grunni að fullbúinni söluvöru. Markmiðið
með þessu var að vekja athygli á þessum litlu stöðum og tapa ekki
þekkingu og hjálpa stöðunum að verða sjálfbærir og geta staðið undir
sjálfum sér án þess að það sé nokkur fjárhagsstyrkur. Þá var búið til net
þar sem hægt er að fara inn á vefsíðu og kynna sér ýmislegt í sambandi
við trésmíði, bátasmíði, ostagerð, ullarvinnslu, keramik, silfursmíði.
Ýmislegt sem fólk var að vinna eins og ég vinn hér, með hráefni að
fullunninni vöru og með söluaðstöðu. Þetta verkefni nær yfir Kanada,
Noreg, Írland, Færeyjar og Grænland og Ísland er núna hluti af þessu.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands er tengiliðurinn í verkefninu og hefur núna
boðið þremur stöðum á Íslandi að vera hluti af þessari hagleikssmiðju.
Það var mikill heiður fyrir mig að vera boðið að taka þátt í þessu
verkefni af hálfu Nýsköpunarmiðstöðvar.
Hvað er það besta við þetta starf, Sigríður Erla, að þínu mati?
Nálægðin við handverkið. Og sjálfstæðið, að ráða sér sjálfur og hafa