Breiðfirðingur - 01.05.2015, Síða 144
BREIÐFIRÐINGUR144
þeirra) var berrössuð og ísköld! Þeim varð svo mikið um að þau fóru
heim og sátu uppi alla nóttina og prjónuðu á hana buxur, prjónuðu sína
skálmina hvort og fóru með til Ingu um morguninn.
Ekki við eina fjölina felldur
En Steinunn, langalangalangamma mín, móðir Guðfinns, hafði heldur
ekki farið troðnar slóðir. Fyrri maður hennar var 33 árum eldri en hún.
Sá hét Finnur Finnsson og hafði verið lausamaður fram á sjötugsald-
ur. Þau giftu sig og fóru að búa á Litla-Bakka og áttu saman einn son
sem var hálfbróðir Guðfinns langalangafa míns. Hann hét Finnur, oft
kallaður „Finnur gamli“ á Fitjum, og var fæddur 1813, þá var Stein-
unn 33 ára og Finnur maður hennar 67 ára. Finnur dó 76 ára þegar
sonur þeirra var aðeins 9 ára. Þá var hjá þeim vinnumaður að nafni
Helgi Björnsson, tíu árum yngri en Steinunn. Þau giftust og áttu tvo
syni, Guðfinn langalangafa og Gísla. Það munaði því 43 árum á fæðing-
ardögum eiginmanna hennar!!
Og Helgi blessaður, vinnumaðurinn góði, faðir Guðfinns langalang-
afa, var nú aldeilis ekki við eina fjölina felldur. Hann átti fimm börn með
þrem konum auk Steinunnar. Eitt fyrir hjónaband, tvö í hjónabandinu
framhjá og eitt í seinna hjónabandi sínu, eftir að hann missti Steinunni.
Hann átti soninn Jón, sama ár og hann átti Guðfinn, sá var líka fæddur á
Litla-Bakka aðeins þrem mánuðum á undan Guðfinni. Svo koma synir
þeirra Steinunnar; Guðfinnur og Gísli. Síðan á hann tvo drengi með
Bóthildi nokkurri, en hún var vinnukona á Litla-Bakka hjá þeim hjón-
unum. Þeir hétu Jósafat og Helgi, báðir fæddir á Litla-Bakka. Ári eftir
að Steinunn deyr giftist Helgi aftur. Sú hét Guðrún Guðmundsdóttir og
var 34 árum yngri en hann. Þau áttu einn son, Guðmund. Þá var Helgi
um sextugt. En aðeins tveim árum síðar deyr Helgi. Já, það hefur svo
sannarlega verið fjör í baðstofunum eða að húsabaki hér áður fyrr.
Barna-Steinn
Ekki var ástandið betra hjá honum langalangalangafa mínum, hon-
um Barna-Steini, sem átti að minnsta kosti 23 börn með átta konum.
Jóhann a Hólmfríður, langalangamma mín, kona Guðfinns Helgason-