Breiðfirðingur - 01.05.2015, Page 188
BREIÐFIRÐINGUR188
og hefur aðsókn verið ágæt.
Mikil ánægja er með kaffið
og meðlætið á spiladögum,
enda nær allt bakkelsi heima-
bakað.
Prjónakaffið er orðinn
fastur liður í dagskrá fé lags-
ins og er aðsókn mjög góð,
allt að áttatíu manns hafa
mætt. Kaffi og meðlæti er selt
á prjóna kaffinu og með því
fylg ir happdrættismiði. Það
er ánægjulegt að sjá hve mikið af ungu fólki hefur komið á prjónakaffið
og kannski er þetta ein leiðin til að laða það að félaginu.
Bridge er síðan spilað öll sunnudagskvöld frá hausti og fram á vor
og er aðsóknin góð.
Páskabingó er haldið skömmu fyrir páska ár hvert, einnig við góða
aðsókn. Dagur aldraðra er alltaf í byrjun maí. Þá er veglegt kaffi hlaðborð
á boðstólum, sem er sameiginlegt verkefni Félags breiðfirskra kvenna,
stjórnar og skemmtinefndar Breiðfirðingafélagsins og Breiðfirðin ga-
kórsins.
Til skemmtunar var m.a. söngur Breiðfirðingakórsins.
Gróðursetningarferð í Heiðmörk er farin í upphafi júní. Þá er
grisjað, gróðursett og gangstígur lagfærður.
Sumarferð félagsins var farin öll árin í júní. Árið 2010 var farið
að Varmalandi í Borgarfirði, að Árbliki 2011, að Breiðabliki 2012, að
Logalandi í Borgarfirði 2013 og að Árbliki 2014.
Hagyrðingakvöld er haldið í afmælisvikunni ár hvert. Því hafa
eftirtaldir stjórnað: Níels Árni Lund árið 2011, Kristján Jóhann Jónsson
2012 og Jóhanna Fríða Dalkvist 2013. Árið 2014 var hagyrðingakvöldið
haldið í samvinnu við Barðstrendingafélagið og þá einnig undir stjórn
Jóhönnu.
Í afmælisvikunni 2011 flutti Árni Björnsson erindi undir yfir
Stjórn Breiðfirðingafélagsins 2015. Fv. Finn
björn Gíslason, Sigrún Eyjólfsdóttir, Hörður
Einarsson, Jófríður Benediktsdóttir og Snæ
björn Kristjánsson, formaður.