Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Síða 10

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Síða 10
10 TMM 2010 · 3 Einar Már Guðmundsson Bankar og eldfjöll „Íslendingar geta hvorki stjórnað bönkum né eldfjöllum,“ sagði breski gamanleikarinn John Cleese þegar hann þurfti að taka leigubíl frá Osló til Brussel. Samkvæmt fjölmiðlum kostaði leigubíllinn 650.000 krónur. Ekki er ólíklegt að gestgjafar Johns Cleese hafi borgað brúsann eða þeir sem áttu von á honum til Brussel. Jafn ómissandi maður og John Cleese borgar ekki leigubíla. Það fylgdi þó ekki sögunni; og heldur ekki hvort hann ætlaði að hitta hr. Brussel, sjálft Evrópusambandið. John Cleese myndi þó ekki muna mikið um að borga einn taxa eftir allar auglýsingarnar sem hann lék í fyrir Kaupþing. Hann var um hríð andlit bankans og á því sinn þátt í stjórnleysi bankanna og hruni, í þeirri stað­ reynd að Íslendingar geta ekki stjórnað bönkum. John Cleese var einsog meðvirkur aðstandandi. Hlutverk hans var að fegra ástand, sem í raun var glæpsamlegt, og sem slíkur tók hann þátt í að viðhalda trúnni á loftbólukerfi íslensku fjármálafurstanna, á spilavítiskapítalisma þeirra. Hann seldi persónu sína þeirri veröld til framdráttar. Ég veit ekki til að það komi fram í Rannsóknar­ skýrslunni um bankahrunið hvað John Cleese fékk greitt fyrir leik sinn í auglýsingunum fyrir Kaupþing, en skilanefndin ætti að geta slegið því upp í bókhaldi hins hrunda banka. Hann var í vinnu við að fegra Kaupþing og drauma þeirra um heimsyfirráð; og hjá Kaupþingi var mönnum ekki í kot vísað. Stjórnendur bankans lánuðu heilu fjárlögin til bresks kráareiganda, svo dæmi sé tekið, og hver öðrum og vinum sínum ógrynni fjár, enda mælist gjaldþrot þeirra eitt það stærsta í veraldarsögunni. Stjórnendur bankans þénuðu hundrað þúsund krónur á tímann og þeir hæstlaunuðu tóku sér sem svaraði Nóbelsverðlaunum í mánaðarlaun. Reiknimeistarar hafa komist að því að hefðu þeir þegið meðallaun fyrir störf hefðu launagreiðslur hafist löngu fyrir Krist. Annar bankastjórinn hét Sigurður Einarsson og er eftirlýstur af Inter­ pol þegar þessar línur eru skrifaðar. Hinn bankastjórinn hét Hreiðar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.