Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Side 38
P é t u r H . Á r m a n n s s o n o g S i l j a Tr a u s t a d ó t t i r
38 TMM 2010 · 3
en sveitasetrið að Skriðuklaustri. Tillaga að húsi Gunnars í Reykjavík
er dagsett í sömu viku og Höger lést, þann 21. júní 1949. Allt bendir
því til að það hafi verið seinasta verkefnið sem hann vann að. Afrit af
tillögunni hefur varðveist í bréfasafni Gunnars á Landsbókasafni.31
Teikningin, sem flokka má sem frumdrög, sýnir tvær mismunandi
grunnmyndir fremur lítils íbúðarhúss á einni hæð með tiltölulega hefð
bundinni herbergjaskipan. Engar útlitsteikningar fylgdu tillögunni.
Eftir andlát Högers ákvað Gunnar að ekki yrði unnið frekar með
tillögu hans. Í staðinn kaus hann að fela ungum íslenskum arkitekt,
Hannesi Kr. Davíðssyni (1916–1995), að hanna hús sitt við Dyngjuveg
út frá breyttum forsendum. Hannes nam arkitektúr í Danmörku á
stríðsárunum og fluttist heim árið 1945. Að sögn Hannesar þekktust
þeir ekki þegar Gunnar Gunnarsson hafði samband við hann eitt kvöld
og bað hann um að teikna hús fyrir sig. Gunnar hafði skömmu áður
komið í nýbyggt íbúðarhús við Skaftahlíð 1–3 í Reykjavík, sem Hannes
hafði teiknað og vakið hafði athygli fyrir nýstárlegan arkitektúr. Var
það, að sögn Hannesar, ástæða þess að Gunnar kaus að leita til hans með
verkefnið.32 Það er til marks um víðsýni Gunnars að hann valdi sér lítt
þekktan en efnilegan arkitekt af yngstu kynslóð til að teikna hús sitt í
Reykjavík, að vini sínum, Höger, látnum.
Aðstæður í umhverfinu réðu miklu um gerð hússins að Dyngjuvegi
8 en það stendur á einum fegursta sjónarhól í borginni, byggt á árunum
1950–52. Innra skipulag var hugsað með sérstöku tilliti til óska og
þarfa Gunnars og Franziscu, sem heimili þeirra og vinnustaður undir
einu þaki. Vinnustofa skáldsins er á efri hæð og þar nýtur útsýnis og
sólarljóss úr öllum áttum. Gunnarshús við Dyngjuveg er nú í eigu
Reykjavíkurborgar og þar er aðsetur Rithöfundasambands Íslands,
skrifstofur og gestaíbúð.
Greinarhöfundar þakka þeim Skúla Birni Gunnarssyni, forstöðumanni Gunn
arsstofnunar, og Jóni Yngva Jóhannssyni bókmenntafræðingi mikilvæga aðstoð
við öflun heimilda vegna vinnslu þessarar greinar. Ljósmyndir eru úr ljós
myndasafni Gunnarsstofnunar.
Tilvísanir
1 Sjá: Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindórsson, Landið þitt Ísland, 4. bindi. (Reykjavík,
1983), bls. 126. Þar stendur m.a.: „Árið 1930 settist Gunnar Gunnarsson rithöfundur […] að
á Skriðuklaustri er hann hafði keypt og bjó þar í nokkur ár. Reisti hann þar sérkennilegt og
vandað stórhýsi sem þýskur arkitekt, Hüger, hafði teiknað, sá sami og teiknaði Arnarhreiður
Hitlers.“