Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Side 56
L a u f e y H e l g a d ó t t i r
56 TMM 2010 · 3
mannslíkama og alls konar vélar og vélræna hluti og bregst þannig á
gagnrýninn hátt við aukinni tæknivæðingu og afleiðingum hennar í
nútímaþjóðfélagi.
Í sama sal gátu áhorfendur séð í fyrsta skipti á sýningu blaðsíður úr
bókinni Mécasciences pour le mécacours moyen (Vélvísindi fyrir meðal
þungt vélnámskeið) frá árinu 1962, eins konar andvísindarit í náttúru
fræðum þar sem Erró klippir saman vélar og dýr og helgar dóttur sinni
Turu sem þá var tveggja ára gömul. Reyndar er tekið fram á fyrstu
blaðsíðunni að bókin sé ætluð fyrir nemendur í menntaskóla eða gagn
fræðaskóla. Á sama tíma og þessar klippimyndir voru gerðar birti Erró
persónulegar skilgreiningar sínar á lífs og listformum í tengslum við
vélar í Mécanismo, mécanifeste (Vélkerfi, vélstefnuyfirlýsing) á Feneyja
tví æringnum 1962.
Stjórnmál, listir, geimferðir og grínteikningar
Árið 1963 fer Erró í fyrsta skipti til New Yorkborgar þar sem hann
uppgötvar popplistina og kynnist helstu forsprökkurum hennar í
gegnum sænska listamanninn og vin sinn, Oyvind Fahlström (1928–
1976). Hann heillast af súpermörkuðum borgarinnar, auglýsingum,
skrautlegum umbúðapappír neysluvarningsins og finnur þar miklu
fjölbreytilegra myndefni en hann hafði áður þekkt. Eftir þessi kynni
verður hann djarfari í tilraunum sínum og ákveður endanlega að nota
klippimyndina sem grunn fyrir málverkin. Hann uppgötvar einnig
styrk skopmyndanna og fer að nota blygðunarlaust teiknimyndafígúrur
við hliðina á listaverkum þekktra listamanna sem hann meðhöndlar
eins og hverja aðra neysluvöru. Það er einnig í New York sem hann gerir
sína fyrstu samsöfnunartilraun (accumulation), Foodscape, sem var
reyndar ekki á sýningunni en er í dag eitt af hans þekktustu verkum. Í
framhaldinu gerir hann fleiri scape eða víðáttumyndir sem einkennast
allar af því að hann klippir saman aragrúa af sömu viðfangsefnum í eitt
víðfemt landslag sem hann ljósmyndar, yfirfærir með aðstoð mynd
varpa á málarastriga og málar svo oftast með iðnaðarmálningu með
lakkáferð til að afmá allan mismun á milli myndanna og ná fram jafnri
birtu yfir myndflötinn.
Eftir dvölina í New York hefst söfnunarárátta Errós fyrir alvöru og hann
tekur að sanka að sér gríðarlega miklu magni af blöðum, plakötum,
póstkortum, ljósmyndum og alls konar myndefni á ferðalögum sínum
um heiminn. Hann stundar flóamarkaði og fornsölur, biður vini sína