Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Side 76
B r a g i Þ o r g r í m u r Ó l a f s s o n
76 TMM 2010 · 3
lítið. Sumum finst bilið milli almennings og háskólans of breitt, öðrum
of skamt“ og bætti við að ef kennarar skólans byggju við sæmileg kjör
gætu þeir einbeitt sér fyllilega að skólanum í stað þess að „afla sjer
viðurværis á snöpum“ og þá myndu þeir ná betur til þjóðarinnar.
Málinu var þó ekki lokið með þessari svargrein Sigurðar, því nokkrum
dögum síðar birtist í Morgunblaðinu önnur grein eftir áðurnefndan höf
und undir titlinum „Doktorsvörnin enn“.9 Út frá greininni má ætla að
höfundurinn, „G.Sv.“, sé Gísli Sveinsson þingmaður, því hann segist í
greininni hafa barist fyrir málefnum Háskólans á Alþingi þennan vetur.
Í greininni bendir hann á nauðsyn þess að Háskólinn haldi virðulegu
formi og stíl á athöfnum sínum, því varla sé von á því að fólk „falli
í duftið“ fyrir fyrirlesurum skólans og taki ekki eftir neinu öðru en
„visku þeirra sem þar standa að“. Gísli undirstrikar þessi orð með því að
segja að „það sé varla hægt að ætlast til þess af hugsandi mönnum (hvort
sem til heyra hinni „akademisku“ stjett eða ekki), að þeir glápi þegjandi
og með hrifningu á alt, sem háskólanum kemur við, hvort sem þeim
þætti vera „formleysi“ eða annað í fari þessarar virðulegu stofnunar.“10
Þarna þurfi Háskólinn því að skapa virðulegan umbúnað fyrir athafnir
sem sæmdi hinni æðstu menntastofnunar þjóðarinnar.
Ekki virðast hafa orðið frekari eftirmál af þessari deilu um umbúnað
og stíl doktorsvarna Háskóla Íslands, en geta má þess til gamans að
tveimur árum síðar, í október 1940, fór fyrsta doktorsvörnin fram í hús
næði Háskólans, þegar Júlíus Sigurjónsson læknir varði þar ritgerð sína,
Studies on the Human Thyroid in Iceland.11 Engar blaðadeilur urðu um
þá vörn.
Tilvísanir
1 Helgi P. Briem, Byltingin 1809 (Reykjavík, 1936). Bókin kom einnig út í lengri útgáfu sama ár
undir titlinum Sjálfstæði Íslands 1809.
2 „Doktorsritgerð Helga P. Briem“, Nýja dagblaðið 7. apríl 1938, bls. 3.
3 Guðni Jónsson, Saga Háskóla Íslands. Yfirlit um hálfrar aldar starf (Reykjavík, 1961), bls. 126.
4 „Doktorsvörn Helga P. Briem“, Nýja dagblaðið 8. apríl 1938, bls. 1. Jón Þorkelsson, Saga
Jörundar Hundadagakóngs (Kaupmannahöfn, 1892).
5 G. Sv., „Doktorsvörn“, Morgunblaðið 14. apríl 1938, bls. 5.
6 Sama heimild, bls. 6.
7 Sigurður Nordal, „Doktorspróf“, Morgunblaðið 17. apríl 1938, bls. 4.
8 Sama heimild, bls. 4.
9 G.Sv. „Doktorsvörnin enn“, Morgunblaðið 23. apríl 1938, bls. 5.
10 Sama heimild, bls. 5.
11 Sjá um hana t.d. „Fyrsta doktorsvörnin í nýja Háskólanum“, Morgunblaðið 20. október 1940,
bls. 3 og 7.