Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Page 102

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Page 102
Á d r e p u r 102 TMM 2010 · 3 frá virkri og frjórri vísindalegri umræðu. Ef hún er í gangi verður þeim mun erfiðara fyrir fornleifafræðinga að komast upp með að grafa og grafa og leggja aldrei neitt til málanna. Og aðeins með vísindalegri umræðu er hægt að skilja hismið frá kjarnanum, greina hverjir eru að gera eitthvað af viti og hverjir ekki, hverjum er treystandi til að taka að sér stór og flókin verkefni, og, það sem mest er um vert, skapa þekkingu sem raunverulega nýtist samfélagi okkar. Á þetta hefur skort og ástæðan er fyrst og fremst sú að þó að fé hafi legið á lausu til uppgraftarverkefna þá hefur fjárfesting verið afar lítil í grunnrann­ sóknum og meira að segja þau stóru uppgraftarverkefni sem opinberir sjóðir hafa styrkt hafa sjaldnast verið til lykta leidd því fé fæst seint og illa til að ljúka þeim. Margir íslenskir fornleifafræðingar rekast frá einum uppgrefti til annars. Þeir skrifa, ef vel lætur, tæknilegar skýrslur um það sem í ljós kemur, en hafa sjaldnast aðstæður eða orku til að setja niðurstöður sínar í vísindalegt sam­ hengi eða kynna þær skipulega fyrir vísindasamfélaginu og almenningi. Niður­ stöður skila sér seint eða ekki inn í vísindalega umræðu sem er fyrir vikið bæði lítil og slitrótt. Þetta jafnast á við það að draga fisk úr sjó en láta hann svo rotna á hafnarbakkanum. Það er bara ekki gáfulegt. Fornleifastofnun Íslands var stofnuð fyrir 15 árum til að vinna gegn þessari þróun og hefur náð góðum árangri, m.a. með útgáfu alþjóðlegs vísindatímarits, Archaeologia islandica, og þátttöku í verkefnum á borð við Fornleifaskóla barnanna. Stofnuninni eru hinsvegar sett sömu takmörk og greininni í heild: hún er rekin nánast eingöngu fyrir verkefnafé og hefur takmarkað bolmagn til að sinna grunnrannsóknum. Mjór vísir er líka kominn í Háskóla Íslands þar sem fornleifafræði hefur verið kennd síðan 2002 en með aðeins tvö og hálft stöðugildi svo að einnig eru takmörk fyrir því hvers má vænta þaðan. Frábær árangur námsbrautar í fornleifafræði í að laða að sér framhaldsnemendur í meistara­ og doktorsnám, sýnir hinsvegar hversu frjór jarðvegurinn er til að gera góða hluti. Það væri meira vit í því að grafa minna og markvissar, og nýta frekar það fé sem tiltækt er til að fjármagna grunnrannsóknir og gera fornleifafræðingum kleift að fylgja eftir niðurstöðum uppgrafta sinna, þróa hugmyndir og kenn­ ingar, gefa út, fræða og mennta – fullvinna aflann. Ýmsar leiðir eru færar til að ná slíkum markmiðum en eina lausn vil ég nefna hér að lokum sem mér sýnist vert að athuga. Í stað núverandi fyrirkomulags væri sanngjarnara og árangursríkara að framkvæmdaaðilum sem gera jarðrask væri skylt að greiða tryggingargjald, og að iðgjöldin yrðu nýtt til að fjármagna öflugar grunnrannsóknir og markvisst vísindastarf í íslenskri fornleifafræði. Þetta mætti líka kalla skatt og það er gert í Frakklandi þar sem áþekku kerfi hefur verið komið á. Í núverandi kerfi er það eins og hver önnur óheppni ef framkvæmdaaðili lendir í því að þurfa að borga fyrir fornleifarannsóknir. Flestir komast hjá því vegna þess að fornleifar eru einfaldlega ekki á hverju strái. Sumir eru í aðstöðu til að hanna sínar fram­ kvæmdir framhjá fornleifum en aðrir lenda í því að þurfa að borga háar fjár­ hæðir og kemur það hlutfallslega mest niður á smæstu aðilunum. Það er líka
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.