Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Page 138

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Page 138
D ó m a r u m b æ k u r 138 TMM 2010 · 3 Jón var þrígiftur. Hann átti í stuttu og sérkennilegu hjónabandi með sænskri konu á árunum 1950–56, en lengst af því tímabili var hjónabandið aðeins á pappírnum. Árið 1956 gekk hann svo að eiga Þorbjörgu Möller, sem tók sér eftirnafnið Leifs. Þau voru gift þar til Jón lést árið 1968 og eignuðust einn son. Hugmyndir Jóns um vöxt tónlistarlífsins á Íslandi voru alla tíð mjög fram­ sæknar og óhætt að segja að þar hafi hann verið langt á undan sinni samtíð. Allar götur frá árinu 1921 lét Jón sig íslenskt tónlistar­ og menningarlíf miklu varða og átti í illdeilum við marga menn í tengslum við þann áhuga. Hann kom fram með margar hugmyndir til eflingar íslensku tónlistarlífi, hafði háar hug­ myndir um ríkisútvarp og kom að starfsemi þess með skrautlegum hætti eins og hans var von og vísa og Árni rekur á greinargóðan hátt – hann kom að stofnun Tónskáldafélags Íslands, STEFS – Samtaka réttindahafa tónlistar, Bandalag íslenskra listamanna var stofnað að hans frumkvæði, og svona mætti lengi telja. En kapp hans og hvatvísi varð til þess að menn risu oft öndverðir gegn hugmyndum hans, ekki endilega vegna þess að hugmyndirnar sjálfar væru slæmar, heldur allt eins vegna framsetningarinnar. Hugmyndirnar voru reyndar oft taldar loftkastalar – og voru það kannski á þeim tíma sem þær komu fram, þótt margar þeirra hafi orðið að veruleika síðar. II. Jón Leifs lifði á viðsjárverðum og dramatískum tímum sem gerir sögu hans oft og tíðum mjög spennandi. En persónuleiki hans sjálfs er þó það afl sem veldur flestum viðsjám í lífi hans. Hann hafði alltaf óraunsæjar væntingar til allra hluta, hvort sem það var gildi verka hans og viðtökur eða þær stöður sem hann taldi sig eiga rétt á – og greiðslur fyrir unnin störf. Hann var sjálfselskur og sjálfmiðaður og allt sem hann tók sér fyrir hendur miðaðist við hann sjálfan, tónlist hans og þrá eftir því að verða mikið tónskáld. Þetta sést strax í bréfum hans þegar hann var ungur maður og þegar leið á ævi hans markaði þessi þrá öll samskipti hans við ástvini hans og vini. Dóttir hans Snót sendi honum óvægnar línur eftir dauða Lífar sem segja meira en mörg orð og sýna að hún hefur haft glöggan en um leið beiskan skilning á karakterbrestum hans. Þú leist ekki á eiginkonu þína og börn sem sköpunarverk Guðs, sem þú barst ábyrgð á, heldur leistu á okkur sem verkfæri þinna eigin hugmynda. Að gera manns eigið vesæla sjálf að mælikvarða allra hluta er til vitnis um hættulega mikið sjálfsöryggi […] (Bls. 278) Jón bjó við þann harm að eitt barna hans drukknaði rétt þegar lífið átti að vera að byrja, kannski var það afleiðing af erfiðum skilnaði foreldra hennar. Hin tvö þjáðust af geðklofa.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.