Heimsmynd - 01.12.1986, Page 19
V:
eftir Herdísi Þorgeirsdóttur
!
STJARNA
S álfstceöisflokks
Pað er mikið vatn runnið til sjávar frá
því að hávaxin fjórtán ára stúlka stóð
upp á fundi í Kvennaskólanum og flutti
ræðu. Eitthvað var það við málflutning
hennar, áherslur og framkomu sem vakti
athygli kennarans. Að fundi loknum
gekk hann til hennar og sagði: Þú átt eftir
að ná langt Sólveig. Kannski ferðu ein-
hvern tíma á þing...
Og Sólveig Pétursdóttir stendur nú á
þeim tímamótum að verða líklega þing-
maður Sjálfstæðisflokksins eftir næstu
kosningar. Hún er alla vega sigurvegari
prófkjörsins sem fór fram í október. Pað
eru fá dæmi þess að næstum óþekktur
aðili taki þátt í prófkjöri og nái inn í
sigurstranglegt sæti. Hún er 34 ára
gömul, þriggja barna móðir og lögfræð-
ingur að mennt. Hún gekk í Heimdall
sextán ára gömul en hefur ekki starfað
ötullega með flokknum fyrr en undanfar-
ið ár. Hún tók þátt í borgarstjórnarkosn-
í ingunum síðastliðið vor, var í 19. sæti en
< starfaði af svo miklum áhuga í kosninga-
O baráttunni að hún var skipuð varaborgar-
á fulltrúi í kjölfar kosninganna.
Þegar Sólveig tilkynnti ákvörðun sína
um þátttöku í prófkjöri fyrir þingkosn-
ingar í lok september varð einum stjórn-
málamanni að orði: Sú er köld!
Þjóðviljinn birti frétt þess efnis að nú
væri kona fundin í Sjálfstæðisflokknum.
Helgarpósturinn birti grein þar sem Sól-
veig var sögð ný stjarna stjórnmálanna. í
kjölfarið komu síðan fleiri konur sem
gáfu kost á sér. Mynstrið varð flóknara
og þótt ljóst væri að mikill áhugi væri
innan flokksins á að fá nýja konu á þing,
var ekki borðliggjandi hver eða hvort
nokkur þeirra fyrir utan núverandi
menntamálaráðherra, myndi hreppa
hnossið. í blaðaskrifum var talað um ætt-
artengsl Sólveigar en hún er tengdadóttir
Björns, bróður Geirs Hallgrímssonar, og
dóttir Péturs Hannessonar fyrrum for-
manns Óðins, félags verkamanna í Sjálf-
stæðisflokknum. Það vakti jafnframt at-
hygli að þegar leið að prófkjöri var Sól-
veig alls ekki talin sigurstranglegust
kvennanna í þeim fjölmiðlum sem fjöll-
uðu um málið. En hún sigraði. Fékk
rúmlega fjögur þúsund atkvæði, þar af
tæp tvö hundruð í fyrsta sæti.
HEIMSMYND 19