Heimsmynd - 01.12.1986, Page 47

Heimsmynd - 01.12.1986, Page 47
heilagra manna tölu. Pegar upptaka manns í tölu heilagra kemur fyrst til mála, hefst umfangsmikil rannsókn á líf- erni viðkomandi manns sem oft getur staðið árum saman. Þegar látinn maður síðan er tekinn í tölu heilagra við hátíð- lega athöfn í Péturskirkjunni þá merkir það að heiðra megi viðkomandi mann opinberlega af því að hann sé hjá Guði. Dýrkun helgra manna má rekja til fyrstu alda kristindómsins. Nú stendur yfir umfangsmikil rann- sókn á lífsferli ítalska prestins Padre Pio (1887-1974), sem hófst fyrir atbeina páfa vorið 1983. En hvað hafði Padre Pio um heilagleika að segja? í bréfi frá 1915 segir hann svo: Heilagleiki merkir að vér verð- um sjálfum oss æðri, hann merkir fullkominn sigur á ástríðum vorum, hann merkir að við eigum að gleyma því sem er sjálfra okkar og heimsins, við eigum að taka fátækt fram yfir auðæfi, auðmýkt fram yfir vegsemd og þjáningu fram yfir unað. Heilagleiki er að elska aðra eins og sjáifa oss, vegna kærleika vors til Guðs. Og þá er ótalið það sem helst einkenn- ir kaþólsku kirkjuna en það er sú mikla ást sem kaþólskir hafa á Maríu guðsmóð- ur. Kaþólsk kona íslensk segir: „Ekki gæti ég hugsað mér heimili án móður. Þegar við tökum Maríu fram yfir allar konur og karla eins og kaþólskir gera og heiðrum hana sérstaklega erum við ekki að gera annað en að fylgja fordæmi Biblí- unnar sjálfrar. Hún sýnir Maríu heiður sem hún sýnir engum öðrum manni. Les- ið um komu engilsins til guðsmóðurinnar og það sem hann boðaði henni. Engillinn segir að María njóti náðar Guðs, eða samkvæmt latneska textanum að hún sé full náðar, og Elísabet heilsar henni með orðunum: Blessuð ert þú meðal kvenna. Enn fremur segir engillinn að hún eigi að verða móðir Guðssonarins.“ Annað atr- iði í þessum boðskap Iiggur líka í augum uppi: Náin tengsl Maríu og endurlausnar- verks Guðs. Hann gerir hjálpræðisáform sitt ekki að veruleika nema hún gjaldi því jáyrði sitt. Þess vegna kalla kaþólskir Maríu gjarnan móður hinna trúuðu. Sá heiður sem kaþólskir hafa sýnt Maríu hefur annað veifið færst í aukana vegna svonefndra Maríubirtinga. Einna helst er fræg vitrun Guðsmóður í Lourdes árið 1858. Ennþá meiri athygli vakti það 1917 er hún birtist þremur Það sem Islendingar óttast allra mest er að * skera sig úr. Eg er uiss um að fjöldi manns hefur áhuga á að kynnast kaþólsku kirkjunni en þora ekki að skera sig úr. Menn eru hrœddir við að það verði híað á þá... (FERTUGUR KARLMAÐUR) sveitabörnum í Fatima í Portúgal. í ársbyrjun 1984 var íbúatala heimsbyggðarinnar 4.673.656.000. Kaþ- ólskir voru 825.592.000 og þar með taldir íslendingar nokkuð á annað þúsund. En af hverju hafa ekki fleiri íslending- ar snúið sér til kaþólskunnar ef rétt er að áhugi á henni hafi glæðst hér? HEIMSMYND ræddi við kaþólskan mann sem var ögn skorinorðari en prest- arnir tveir í Breiðholtinu. Sá sagði ástæð- una vera að íslendingar væru ekki nógu kjarkaðir. „Það að við erum ekki fleiri kaþólskir hér á landi er ekki nærri því eins mikill leyndardómur og halda mætti, þó vissulega megi segja að okkur vanti hefðina. En ég held þó miklu fremur að það sem íslendingurinn óttast allra mest sé að skera sig úr. Ég er viss um að fjöldi manns hefur áhuga á að kynnast kaþ- ólsku kirkjunni en þora ekki að taka skrefið vegna þess að þeir eru hræddir um að það verði híað á þá upp á gamla móðinn. Menn vilja allt annað en að vera álitnir skrýtnir." Annar kaþólikki, íslenskur karlmaður um fertugt, sem HEIMSMYND ræddi við, svaraði því aðspurður um hvers vegna hann tæki kaþólsku kirkjuna fram yfir aðrar kirkjur: „Það var eitt sinn að biskupinn okkar var spurður sömu spurn- ingar og hann sagði: Segjum svo að ein- hver byði mér heim til sín og á borði stæðu tvö glös af rauðu og tæru víni en sá væri munurinn að annað glasið væri barmafullt en hitt aðeins hálft. Ég myndi vitaskuld seilast í barmafulla glasið.“ Séra Robert Bradshaw: „Þarna sat ég og ætlaði í stórmennsku minni að sanna að Guð sé til. Það var þetta kvöld sem mér skildist að prestur getur aðeins hjálpað og leiðbeint. Sjálf trúin er gjöf frá Guði." HEIMSMYND 47
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.