Heimsmynd - 01.10.1987, Blaðsíða 17
i
i
>
i
L
*
>
I
V
Díana prinsessa og
hertogaynjan af Jórvík
vekja athygli
heimspressunnar . . .
þungar skyldur á herðar. Sú staðreynd að
það ok sé að verða henni um megn kitlar
gulu pressuna í Lundúnum þótt það angri
hana um leið því einn góðan veðurdag er
ætlast til þess að hún verði eins vammlaus
og virðuleg og tengdamóðir hennar Elísa-
bet II.
Gifting þeirra Díönu og Karls Breta-
prins var heimsviðburður á sínum tíma.
Hin unga brúður vakti athygli sökum þess
að hún var grönn og glæsileg, verðandi
drottning breska samveldisins og mun
yngri en arftaki þess en það sem vakti
mesta athygli var sú staðreynd að hér var
verið að setja hana inn í embætti. Hún var
ekki aðeins að giftast hinum eftirsótta pip-
arsveini heldur áberandi starfi. Sagt er að
tengdaforeldrum hennar hafi meðal ann-
ars þótt hún eftirsóknarverð vegna sak-
leysis og æsku sem gerði það að verkum
að unnt væri að móta hana í starfi. Pau
gerðu sér ekki grein fyrir því sem breska
pressan er að uppgötva núna að lafði Di
hefur þvert á móti vaknað til vitundar um
að kvaðir og skyldur starfs þessa séu alls
ekki við hennar hæfi.
Hjónabandi Andrews prins, sem er
fjórði í röðinni til að erfa bresku krúnuna,
og Söru Ferguson fyrir ári var stillt upp
sem fjölskylduathöfn, mun óformlegri en
giftingu Díönu og Karls. Sara eða Fergie
eins og hún er almennt kölluð var ekki til-
neydd til að vera með hatt þegar hún lagði
af stað í brúðkaupsferðina. Henni var
frjálst að klæða sig eftir eigin höfði. Og
enginn stóð á öndinni yfir fatavali hennar
(rósóttum Laura Ashley-kjólum) þótt
hún yrði að þola gagnrýni vegna auka-
kflóanna. En sökum þess að hún var hlát-
urmild, prakkaraleg, með rautt slegið hár
og alvöru kvenmaður, eins og eiginmaður
hennar lýsir henni, féll hún
strax í kramið hjá breskum al-
menningi svo ekki sé minnst á
fjölskylduna í Buckingham-
höll. Að vísu hefur hún lagt
rósóttu kjólunum nú, grennt
sig um fimmtán kfló, fengið
Andrew prins er fjórði i
röðinni til að erfa bresku
krúnuna. Hjónavígsla
hans og Söru Ferguson
fyrir ári var því með allt
öðru sniði en ríkisarfans
fyrir sjö árum. Kröfurnar
til Fergie eins og hún er
kölluð eru allt aðrar.