Heimsmynd - 01.10.1987, Blaðsíða 107
Agústa DANlELSDÓTTIR
sem Vincent van Gogh gerði ódauðlegan
með málverkum sínum. Kjólarnir voru
gamaldags úr satínefnum í pastellitum og
blúndusjöl borin við. Hárgreiðsla sýning-
arstúlknanna var mjög viðamikil. En
Lacroix sýndi líka fatnað í takt við tíðar-
andann, stutt pils þótt þau væru síðari en
hjá flestum öðrum. „Pað er augljóst að
maðurinn er ekki hommi, eins og svo
margir aðrir karltískuhönnuðir. Hann dá-
ir kvenlíkamann og veit hvar mörkin
liggja,“ sagði einhver.
Lacroix sýndi einnig kjóla með
áherslu á mittið og víð pils.
Undirpilsin voru sum úr
svartri blúndu. Prátt fyrir viða-
mikil pils lætur hann kvenleg
form njóta sín. Á ýmsan hátt
gekk hann fram hjá öllum hefðbundnum
reglum hátískunnar, samanber kápu með
hala aftan á. Við tweed-jakka notaði hann
reipi í stað leðurbelta og horn í hatta í stað
fjaðra. Hann vakti einnig athygli fyrir
notkun ljósari lita og daufari en aðrir. Þó
blandaði hann sterkum litum inn á milli,
rauðu, fjólubláu og grænu. Satínslá í lík-
ingu við skikkju nautabana í skærbleikum
lit með gulu fóðri vakti almenna hrifn-
ingu. Þar sem aðrir hönnuðir notuðu stóra
hlunkalega skartgripi lét Lacroix sýning-
arstúlkur sínar bera gullkrossa á svörtu
flauelsbandi eða þunga gyllta, hjartalaga
eyrnalokka. „Það er geggjaður undirtónn
í þessu öllu,“ sagði amerískur blaðamað-
ur. Enn eitt dæmið er minkakápa með
hunangslitum ermum úr satíni. Lacroix
fékk fólk til að hlæja, sem er ekki algengt
á sýningum hátískuhúsanna og það sem
meira er um vert, hann gaf ýmsum von um
að geta klætt sig án þess að borga hundr-
uðir þúsunda fyrir. Eins og ljósmyndari
HEIMSMYNDAR komst að orði: „Nú
fer ég heim, tek gamla pelsinn hennar
ömmu og fóðra hann með gömlu undir-
kjólaefni.“
am
llir aðilar úr tískuheimmum
sem HEIMSMYND ræddi
við voru sammála um að
.' K Lacroix hefði svo sannar-
lega vakið eftirtekt en flest-
um fannst að sýningin hefði
verið of trúðsleg, of leikhúsleg og fötin
meira í líkingu við búninga en stílhreina
hátísku. „Hann þarf að vekja athygli á sér
með því að ganga fram af fólki,“ sagði
Marc Bohan aðalteiknari Diorhússins.
Sjálfur lagði Bohan áherslu á stuttar síddir
en innan hefðbundinna marka. Með fræg-
ari viðskiptavinum hans má telja Karólínu
prinsessu af Mónakó og Nancy Reagan
forsetafrú Bandaríkjanna. „Ég sé Karó-
línu ekki fyrir mér í of stuttu pilsi að
klöngrast út úr bíl við opinberar móttök-
ur,“ sagði Bohan og kvaðst vilja láta við-
skiptavini sína ráða síddinni sjálfa. Annað
Margir sögðu sýningu Lacroix fremur minna á leiksýningu en tískusýningu. Hann er
augljóslega undir sterkum áhrifum frá heimaslóðum sínum í Arles í Suður-Frakk-
landi og notar sjöl óspart.
litur. Guli liturinn hefur ekki verið vinsæll
lengi en er nú að ryðja sér til rúms.
En það eru hvorki síddir né litir sem
ráða úrslitum. Til að skapa tísku verður
að ná upp ákveðinni stemmningu og það
I tókst engum betur í París núna en Christi-
an Lacroix. Hann hélt nokkrar sýningar
og komust mun færri að en vildu. HEIMS-
MYND var í hópi þeirra heppnu og á
þeirri sýningu ætlaði allt um koll að keyra
vegna hrifningar viðstaddra. Áhorfendur
stóðu upp, hrópandi og klappandi, sumir
köstuðu meira að segja rósum í átt að svið-
inu. Nýr kafli er hafinn í Parísartískunni,
gamlir kóngar stíga úr hásætum sínum.
„Lacroix lætur gömlu tískukóngana líta
út eins og þeir séu með hægðatregðu,"
sagði John Fairchild ritstjóri bandaríska
tímaritsins Women’s Wear Daily og féll
fyrir vikið í ónáð hjá Saint Laurent, sem
meinaði honum inngöngu á sýningu hjá
sér. Burtséð frá því voru flestir sammála
um að Lacroix sætti tíðindum vegna þess
að hann tæki mið af nýjum markhópi,
niun yngri konum en hingað til hefur tíðk-
* ast.
Það eru aðeins þrír mánuðir
síðan Lacroix hóf að starfa
sjálfstætt og því er skot hans
upp á stjörnuhimininn mun
athyglisverðara. Hann var
þegar farinn að vekja at-
hygli sem aðalhönnuður hjá Jean Patou-
tískuhúsinu og gekk undir nafninu l’en-
fant terrible en hann er aðeins 36 ára gam-
all og því yngsti hátískuhönnuðurinn í
París.
Auðvitað eru margir hátískuhönnuð-
anna grænir af öfund vegna þeirrar um-
fjöllunar sem Lacroix hefur fengið og
sjálfur segir hann að hann hafi ekki átt allt
þetta lof skilið. Áður en sýningin hans
hófst gerði hann krossmark. Þegar sýn-
ingunni lauk ætlaði lófaklappinu aldrei að
linna. Söngkonan Madonna hringdi strax
í hann og pantaði nokkra alklæðnaði fyrir
næsta söngferðalag sitt.
Klæðnaði hans myndu margir líkja
fremur við búninga enda er hugur hans
augljóslega á heimaslóðum í Suður-
Frakklandi en hann er frá Arles, bænum
HEIMSMYND 107