Heimsmynd - 01.10.1987, Blaðsíða 115

Heimsmynd - 01.10.1987, Blaðsíða 115
Frammistaða Arnórs með Anderlecht á síðasta keppnistímabili vakti slíka athygli 1 að belgíska sjónvarpið gerði um hann sér- stakan sjónvarpsþátt, sem sýndur var hér á landi snemma í vor. í þættinum var rak- inn ferill Arnórs, sýnd mörk sem hann skoraði og staða hans í belgískum fótbolta skilgreind. En þrátt fyrir það að Arnór uni hag sínum hið besta í Belgíu segist hann samt ekki vera fráhverfur því að færa sig um set suður á bóginn. Draumalandið er Ítalía. Yfir Arnór hefur reyndar rignt tilboð- um frá stórliðum víðs vegar í Evrópu, meðal annars frá enska liðinu Ipswich, þýska f élaginu FC Köln, nokkrum liðum í Frakklandi og síðast en ekki síst frá ónefndu stjörnuliði á Ítalíu. Það var ein- mitt síðasttalda freistingin sem Arnóri féll þyngst að þurfa að standast. Ástæður þess að ekki varð af því að sinni að hann slægist í hóp blóðheitustu knattspyrnumanna í Evrópu voru margþættar, en líklega fyrst og fremst þær að „maður er orðinn of dýr“, eins og hann kemst sjálfur að orði. Að hálfu AnderlechtJtx Arnór ekki falur fyrir minna verð en sem svarar 80 milljón- um íslenskra króna. Allt um það ber Arnór Guðjohnsen það ekkert endilega með sér að vera virði jafn- þyngdar sinnar í gulli. Hann er blátt áfram og þægilegur í fasi. Framkoman markast af hóflegu sjálfsöryggi og hann á auðvelt með að koma fyrir sig orði. Hann virðist ekki hafa beðið alvarlegt tjón á sálu sinni þótt hann staldraði næsta stutt við í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti. „Maður hefur fórnað öllu fyrir fótboltann," segir hann, „þar með talinni skólagöngu og i menntun." En ekki svo að skilja að hann sýti það. „Hjá mér hefur lífið aldrei geng- ið út á annað en fótbolta. Ég hef engin önnur áhugamál." Og draumurinn? „Hann er sá að sonur minn, Eiður Smári, sem fæddist sama dag og ég kom út til Belgíu fyrir tíu árum, leiki einhvern tíma með mér í liði.“ Arnór Guðjohnsen hóf knattspyrnufer- ilinn í sjötta flokki Völsungs á Húsavík, en í þeim kaupstað fæddist hann 30. júlí 1961. Níu ára að aldri fluttist hann með for- eldrum sínum suður til Reykjavíkur, nán- ar tiltekið í Neðra-Breiðholt. Drengnum þótti „ægilegt að þurfa að flytja frá Húsa- vík“ og lengi vel fór hann norður á sumrin til að keppa með Völsungum. Eftir skamma viðdvöl í ÍR, sem honum „leidd- ist af því að við töpuðum öllum leikjum", gekk hann til liðs við Víking. Þar átti hann í raun réttri að vera í þriðja flokki en ekki leið á löngu uns hann þótti ómissandi í meistaraflokki. Frægt er mark sem hann skoraði fyrir Víking í leik gegn Vestmann- eyingum í íslandsmótinu 1978. Andstæð- ingarnir töldu að Arnór hefði verið rang- stæður og markið þar af leiðandi ógilt. En línuvörðurinn, sem fyrir tilviljun var faðir l Arnórs, Eiður Guðjohnsen, var á annarri skoðun og úrskurði hans varð ekki hagg- að. „Það fór mjög í skapið á Eyjamönnum að pabbi skyldi ekki dæma rangstöðu" segir Arnór og glottir „og þeir töluðu um að hann hefði ekki verið óvilhallur. En ég veit að ég var ekki rangstæður þótt þetta væri á mörkunum. Og hvað sem því líður — við unnum tvö núll. . Þetta sama sumar, þegar Arnór hafði aðeins leikið með meistaraflokki Víkings hálft keppnistímabil, gerðist það eftir leik gegn Keflvíkingum að framkvæmdastjóri belgíska liðsins Lokeren kom að máli við hann og bauð honum út til að kynna sér aðstæður þar. Á þær leist Arnóri dável. „Ég sló því til og skrifaði undir samning við Lokeren nokkrum dögum fyrir sautján ára afmælið mitt. Það var mikil- vægt fyrir mig vegna þess að þar með tald- ist ég vera belgískur leikmaður og þurfti því ekki að etja kappi við aðra útlenda leikmenn; en kveðið er á um að þeir megi aðeins vera þrír í hverju liði.“ Viðskilnað- urinn við Víking varð ekki allsendis sár- saukalaus. Forráðamenn félagsins voru ósáttir við það að helsti leikmaðurinn hyrfi endurgjaldslaust á braut á miðju keppnistímabili og af því spunnust deilur og blaðaskrif. „Þetta var leiðindamál," segir Arnór og dæsir. „Auðvitað var slæmt fyrir þá að missa mig en það voru engar reglur til um svona lagað þannig að þeir höfðu ekkert til að byggja kröfur sín- ar á. Það fauk heilmikið í okkur pabba út af þessu máli, og ég sagðist aldrei aftur myndu spila með Víkingum enda ætla ég að standa við það.“ Arnóri þótti að mörgu leyti ákjósanlegt að hefja feril sinn sem atvinnumaður er- lendis með félaginu Lokeren. „Þetta er lít- ill klúbbur sem hentugt var að nota sem stökkpall til að komast síðar í topplið" segir hann. Það tókst að ná því inn í samn- inginn að ekki mætti selja Arnór fyrir meira en sautján og hálfa milljón íslenskra króna. Þetta kostaði mikla baráttu því að slíkt er venjulega ekki gefið eftir, og þurfti faðir Arnórs að fá þrjá lögfróða menn í lið með sér til að knýja fram samþykki for- ráðamanna Lokeren. „Þetta ákvæði í samningnum kom sér auðvitað mjög vel fyrir mig þegar Anderlecht, stórveldið í belgíska fótboltanum, fékk augastað á mér og vildi kaupa mig. Annars hefðu þeir hjá Lokeren getað haldið mér hjá sér eins lengi og þeim sýndist en ég hefði ekki haft áhuga á að daga uppi þar. Fyrir þetta er ég pabba og hinum mönnunum þremur óendanlega þakklátur." Reyndar hefur Eiður, faðir Arnórs, verið syni sínum innan handar á alla lund síðan hann gerðist atvinnumaður í knatt- spyrnu. Samningamál við erlend fótbolta- félög eru flókin og fáir leikmenn eru með nákvæmlega eins samninga. Það eru líka umtalsverðar fjárupphæðir í húfi. Undan- farin tvö til þrjú ár hefur þó Arnór æ meir farið að sjá um þessi mál sjálfur. „Ég var náttúrlega mjög ungur þegar ég kom út,“ segir hann. „í ofanálag var ég með konu og nýfætt barn. Það létti því ekki lítið und- ir með mér að foreldrar mínir og systur skyldu dvelja hérna hjá mér fyrsta árið.“ Eiginkona hans heitir Ólöf Einarsdóttir og er árinu yngri en Arnór. Hún er útlærð í þeirri fræðigrein sem nefnist almanna- tengsl og flestir minnast hennar líklega enn sem sérlega glæsilegs leiðsögumanns íslensku þátttakendanna í söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Brussel 1987. Eins og er skylda allra góðra íslendinga eru þau Arnór sannfærð um að „pólitík í stigagjöf- inni“ hafi ráðið því að lagið Hœgt og hljótt varð ekki ofar í keppninni. . . Þau hjón, Arnór og Ólöf, hafa komið sér vel fyrir í rúmgóðu húsi í litlum bæ rétt fyrir utan Brussel. Svefnherbergi eru fjög- ur og garðurinn í kringum húsið er stór en það er engin sundlaug. „Þetta er mjög gott hverfi fyrir strákinn, hann Eið Smára. Þarna er fullt af krökkum til að leika sér við og skólinn er nálægt. Flestir liðsmenn í Anderlecht búa í bæjum eða hverfum fyrir utan Brussel." Bflakostur er nógur: Arn- ór ekur Mercedes Benz 190E Brabus en Ólöf ósköp venjulegum Renault. Daglegt líf Anrórs Guðjohnsens snýst allt um fótbolta. Á keppnistímabilinu eru æfingar tvisvar á dag, tvo tíma í senn. Vinnudeginum lýkur venjulega um klukk- an fimm síðdegis. Þá eru menn að jafnaði of uppgefnir til að geta tekið sér annað fyrir hendur en hvfla sig fyrir næstu lotu. Arnór segir að sér sé ekki fyrirskipað að neyta neins sérstaks fæðis öðru fremur en þó að sjálfsögðu uppálagt að forðast feit- meti. „Dagskammturinn er þetta 3000 til 3500 kalóríur." Fjórum klukkustundum fyrir leiki fara liðsmenn Anderlecht saman út að borða til þess að ná upp félagsanda og fyrir mjög þýðingarmikla leiki er oft dvalið sólar- hring á hóteli. Að öðru leyti eru liðsmenn engir sérstakir vinir heldur fer hver sína leið eftir æfingar. „Samkeppnin er svo rnikil," segir Arnór, „að það er eins og menn vilji ekki koma of nálægt hver öðr- um. Það er meira um það að konur leik- manna hafi samband sín á milli.“ Þetta er ekkert undarlegt þegar hafðir eru í huga þeir peningar sem eru í húfi. Eins og fyrr segir er Arnór nú metinn á 80 milljónir og nýlega seldi Anderlecht undrabarnið Enzo Scifo til Inter Milano fyrir 130 millj- ónir. Það er því ekki út í hött þegar Arnór segir að þetta sé ekki lengur fyrst og fremst fótbolti heldur viðskipti. Og í þeim leik er enginn annars bróðir. Hjá Anderlecht hefur Arnór hingað til leikið hægra megin á miðju, með frjáls- ræði í sókninni. „Þetta hefði verið kallað hægri útherji hér áður fyrr,“ segir hann, „og er mjög skemmtileg staða. En ég veit ekki hvort ég spila hana áfram í vetur. Það getur verið að ég færi mig lengra inn á miðjuna, þar kann ég best við mig og þar gefast helst tækifæri til að skora mörk.“ Og til þess er leikurinn gerður, ekki satt? HEIMSMYND 115
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.